Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal
Framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdir
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti þann 19.júní 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir undirbúningsframkvæmdir vegna virkjunaráforma fyrir Árskógsvirkjun, þ.e. framkvæmdir á landi sem hafa ekki bein áhrif á vatnshlot í Þorvaldsdal og felast í vegagerð, lagningu aðrennslispípu og efnisnámi.
Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og deiliskipulag Árskógsvirkjunar og er framkvæmdaleyfið veitt með þeim skilyrðum sem tilgreind eru í útgefnum leyfisgögnum. Leyfið ásamt framlögðum gögnum er aðgengilegt í Skipulagsgátt undir máli nr. 1259/2026. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1259/process
Vakin er athygli á að niðurstaða sveitarstjórnar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sbr. 4.gr. laga nr.130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar.
Dalvík, 30.október 2026
Skipulagsfulltrúi
