Fara í efni
26.10.2026

Árleg ormahreinsun hunda og katta í Dalvíkurbyggð

Deildu

Árleg ormahreinsun hunda og katta í Dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð býður, líkt og undanfarin ár, gæludýraeigendum sem eru með hunda og ketti skráða hjá sveitarfélaginu upp á ormahreinsun. Ormahreinsunin er innifalin í árlegu skráningargjaldi dýranna.
Ormahreinsunin fer fram á eftirfarandi dögum:

  • Miðvikudaginn 28. október 2026 – Hundar
  • Fimmtudaginn 29. október 2026 – Kettir

Tímasetning: Kl. 16:00–18:00 báða dagana.
Staðsetning: Áhaldahús Dalvíkurbyggðar við Sandskeið.

Dýralæknir verður á staðnum og annast ormahreinsunina. Reikningar vegna árgjalds fyrir hunda- og kattahald verða sendir út á næstunni.

Gæludýraeigendur hvattir til að yfirfara skráningar

Á heimasíðu Dalvíkurbyggðar má finna lista yfir skráða hunda og ketti.
Gæludýraeigendur eru hvattir til að yfirfara listana og ganga úr skugga um að dýr þeirra séu rétt skráð og að heimilisföng séu uppfærð.
Hafi orðið breytingar á fjölda dýra eða heimilisfangi er hægt að senda upplýsingar á netfangið odinn@dalvikurbyggd.is og verður skráningin uppfærð í samræmi við þær.
Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð ber eigendum að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu.
Þeir sem eiga eftir að skrá hunda eða ketti eru hvattir til að ganga frá skráningu hér og geta þá einnig nýtt sér ormahreinsunina.

Dalvíkurbyggð hvetur alla hunda- og kattaeigendur til að nýta sér þjónustuna og tryggja að skráningar dýra þeirra séu réttar.