Fara í efni
02.11.2026

Aðventan í Dalvíkurbyggð – sendið okkur ykkar viðburði

Deildu

Aðventan er fram undan og víða í Dalvíkurbyggð verður efnt til fjölbreyttra viðburða og samverustunda í aðdraganda jóla. Til að auðvelda íbúum og gestum að nálgast upplýsingar um það sem verður á dagskrá verður tekin saman aðventu- og jóladagskrá Dalvíkurbyggðar.

Óskað er eftir upplýsingum frá félagasamtökum, fyrirtækjum, stofnunum og öðrum sem standa fyrir viðburðum eða opinni dagskrá á aðventunni. Markmiðið er að safna upplýsingum á einn stað og gefa góða yfirsýn yfir það sem verður um að vera í sveitarfélaginu yfir hátíðarnar.

Þeir sem vilja koma viðburði á framfæri eru hvattir til að senda inn eftirfarandi upplýsingar:

  • heiti viðburðar og stutta lýsingu
  • dagsetningu og tímasetningu
  • staðsetningu
  • upplýsingar um tengilið eða hvar nálgast má frekari upplýsingar, ef við á

Birting viðburða í dagskránni er án endurgjalds. Aðventu- og jóladagskráin verður birt á vef Dalvíkurbyggðar og kynnt á miðlum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Upplýsingar um viðburði skulu berast á netfangið fridjon@dalvikurbyggd.is eða á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is fyrir 22. nóvember.
Við hvetjum alla sem standa fyrir viðburðum í Dalvíkurbyggð á aðventunni til að senda inn upplýsingar og leggja þannig sitt af mörkum til fjölbreyttrar og aðgengilegrar dagskrár fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins.