Fara í efni

Félagsmiðstöðin Dallas: Frístundaleiðbeinendur

Félagsmiðstöðin Dallas óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur frá og með 15.8.2026.

Auglýst er eftir starfsfólki sem starfar í faglegu frístundastarfi með börnum og unglingum. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Starf í félagsmiðstöðinni fer fram að jafnaði á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 16:30 til 22:30. Þegar félagsmiðstöðin mætir á viðburði eða fer í ferðir þá eru vaktirnar með öðru sniði. Starfið hentar vel með námi eða öðrum störfum þar sem vaktir geta verið breytilegar. Um fastráðningu í tímavinnu er að ræða. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning og framkvæmd á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga í félagsmiðstöðinni Dallas.
  • Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi. 
  • Hefur umsjón með hópum, verkefnum og viðburðum í tengslum við menningar-, félags-, og tómstundastarf í félagsmiðstöðinni Dallas í samstarfi við Frístundafulltrúa og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og annarra samstarfsaðila.
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga og samstarfsfólk. 
  • Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
  • Góð samskiptafærni.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 27. júlí 2026

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir Hera M. Guðmundsdóttir frístundafulltrúi hera.margret@dalvikurbyggd.is en upplýsingar um laun og starfskjör veitir mannauðs- og launafulltrúi Dalvíkurbyggðar launafulltrui@dalvikurbyggd.is