Fara í efni
06.10.2026

Útikennsla 3.-4. bekkur

Deildu

Við förum einu sinni í viku með 3. og 4. bekk í útikennslu. Dæmi um það sem við höfum verið að gera er ratleikur með kort, nafnorðaverkefni, leikir, heimsókn á bókasafnið í Bergi og að æfa sig í þeim reglum sem gott er að hafa í útikennslu. Við nýttum líka tækifærið í haustlitadýrðinni til að tína laufblöð fyrir föndurverkefni. 

/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_3619.jpg?v=1791276155
/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_3574.jpg?v=1791276146