Nemendur í 1. og 2. bekk sýna frábært fordæmi í umhverfismálum.

Nemendur í 1. og 2. bekk sýna frábært fordæmi í umhverfismálum.

Nemendur í 1. og 2. bekk hafa reglulega verið í útikennslu í vetur þar sem farið er um bæinn og verkefni unnin. Við höfum nýtt tækifærið til náttúruverndar og til þess að fegra umhverfið. Í hverri ferð tökum við með okkur poka til að tína upp rusl sem við sjáum, enda hefur því miður verið töluvert af rusli í bænum okkar í vetur. Oft komum við til baka með fullan poka af rusli eftir göngutúrinn. Við höfum líka verið dugleg að safna dósum í þessum ferðum okkar sem fara svo í endurvinnslu og ákveðið var að afraksturinn yrði notaður til að kaupa ís nú á vordögum. Það hangir alltaf dósapoki í forstofunni hjá okkur og krakkarnir eru einnig duglegir að setja dósir þangað sem þau finna á skólalóðinni eða á leiðinni í skólann. Í vetur söfnuðu þeir alls 293 dósum! Það gerir 6739 krónur. Við í kennarateymi krakkanna erum rosalega ánægðar með hvað þeir eru duglegir. Á myndinni má sjá krakkana gæða sér á ísnum sem þeir unnu svo sannarlega fyrir.