Í vikunni fór fram Litla upplestrarhátíðin hjá nemendum 4. bekkjar. Litla upplestrarhátíðin er litla systir Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er í 7. bekk. Það sem þær eiga sameiginlegt er að ávallt er haft að leiðarljósi að keppa að betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu.
Lögð er áhersla á virðingu og vandvirkni, allir nemendur eru virkir þátttakendur, koma fram á lokahátíð og fá viðurkenningarskjal í lokin.
Það var engin undantekning í ár og stóðu allir nemendur sig með stakri prýði. Nemendur lásu bæði einir og í hópi fyrir framan fullan sal af fólki og sýndu að þeir höfðu lagt mikla vinnu og metnað í að gera þessa hátíð sem glæsilegasta. Í lokin var notaleg samverustund með fjölskyldum og kennurum.