Í október lásu nemendur 8. bekkjar ævintýrabókina ÓGN, ráðgátan um Dísar-Svan eftir Hrund Hlöðversdóttur. ÓGN er æsispennandi ævintýrasaga sem höfðar til ungmenna á öllum aldri. Sagan byggir á þjóðsagnaarfi Íslendinga og tengir saman tvo heima, raunheima sem við þekkjum öll og álfheima sem færri þekkja.
Meðan á lestri stóð unnu nemendur fjölbreytt verkefni upp úr bókinni. Meðal verkefna voru ritanir, teikningar, veggspjaldagerð, túlkanir á sögunni, málfræði og stafsetning.
Í lok mánaðar kom Hrund rithöfundur bókarinnar í heimsókn í bekkinn og spjallaði við nemendur um bókina og sagði þeim hinar ýmsu sögur.
Hvað leynist í bókinni?
,,Amma heldur því fram að álfar séu til og segir barnabörnunum sögur úr álfheimum. Svandís trúir ekki á álfa en þegar dularfull skilaboð berast henni er hún ekki lengur viss í sinni sök. Hvað ef álfheimar eru til og leynast jafnvel í klettunum fyrir ofan bæinn?”
ÓGN, ráðgátan um Dísar - Svan er fyrsta bókin af þremur en bækurnar ÓRÓI krunk hrafnanna og ÓLGA kynjaslanga eru sjálfstætt framhald af fyrstu bókinni ÓGN.










