Fara í efni
09.11.2026

Fyrsti bekkur heimsækir Samherja

Deildu

Fyrsti bekkur fékk að heimsækja Samherja í vikunni. Við fengum höfðinglegar móttökur. Börnin fengu hárnet og hlífðarskó sem var mjög spennandi og svo fengum við að skoða verksmiðjuna með henni Sollu sem svaraði spurningum og leiddi okkur um svæðið. Að skoðunarferðinni lokinni fengum við snúða og djús.  Heimsóknin var vegna verkefnis sem við erum að vinna með Krílakoti um Dalvíkurbyggð. 

Takk fyrir okkur Samherji.