Fara í efni
02.11.2026

Fréttir úr ísat stofunni

Deildu

Ísat er stytting á heiti námsgreinarinnar íslenska sem annað tungumál og er fyrir nemendur af erlendum uppruna sem eru nýfluttir til landsins og hafa takmarkaða íslenskufærni, allt frá 1. bekk og upp í 10. bekk. Í ísat er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða í íslensku með fjölbreyttum hætti og gefa nemendum ærin tækifæri til að þjálfa hann svo þeir verði smám saman öruggari og leiknari í að tjá sig, bæði munnlega og skriflega. 

Í Dalvíkurskóla eru nemendur af 19 þjóðernum og þeir eiga samtals 18 móðurmál. Skólinn okkar er því svo sannarlega fjölmenningarlegur. 

Á hverju hausti er ávallt byrjað á upprifjun hjá þeim nemendum sem hafa verið áður í ísat, enda hafa margir þeirra verið lítið í íslensku málumhverfi um sumarið og varla talað íslensku síðan skóla lauk. Orðaforðinn er rifjaður upp með ýmsum hætti, svo sem með spjalli, leikjum, spilum, námsforritum og ritun. Samhliða þeirri vinnu gera allir nemendur stutt teikni- og ritunarverkefni þar sem þeir segja frá sumarfríinu sínu. Verkefnin prýða nú veggi ísat – stofunnar. 

Upprifjun er nú lokið hjá öllum hópum og hafa flestir nemendur verið að læra ný orð tengd mat og líkamanum síðustu vikur. Sú vinna hefur gengið með ágætum og nemendur leggja sig fram í kennslustundum. Næst á dagskrá er vinna með orðaforða tengdan heilsu og líðan og því næst bíða okkar alls kyns skemmtileg verkefni um dýr.

Þeir nemendur sem eru komnir lengst í íslenskunámi sínu fá ekki eins beina orðaforðakennslu, heldur er orðaforðavinnan samtvinnuð öðrum viðfangsefnum og aukin áhersla er lögð á ritun, málfræði og rétta setningamyndun. Það sem af er hausti hafa þessir nemendur útbúið og kynnt verkefni um sumarbúðir sem þeir fóru í ásamt fleiri samlöndum sínum til Búlgaríu og nú eru þeir að semja eigin texta við myndabók.

Meðfylgjandi eru myndir af nokkrum verkefnum nemenda um sumarið og myndir af nemendum að leysa ýmis verkefni í ísat tíma. 

/cdn/media/dalvikurskoli/ee53b6b4-451f-4f5d-b87f-608ed324e21a.jpg?v=1793656665
/cdn/media/dalvikurskoli/d846d2c1-3c4c-4800-906a-a320d8491c64.jpg?v=1793656664
/cdn/media/dalvikurskoli/c72db13b-e058-408d-8516-6d5c1bde36da.jpg?v=1793656663
/cdn/media/dalvikurskoli/b48039fe-9bdd-41e7-951b-26f5c19c28ce.jpg?v=1793656663
/cdn/media/dalvikurskoli/b57df2ad-c1ac-4e95-897b-6d1cfee0835b.jpg?v=1793656662
/cdn/media/dalvikurskoli/a1aec532-22da-4473-a91b-99f22c6b3226.jpg?v=1793656661
/cdn/media/dalvikurskoli/49ee9b0a-89b4-441b-83ca-10f0f4510236.jpg?v=1793656660
/cdn/media/dalvikurskoli/25037375-bf3a-4292-8706-d3cde8849129.jpg?v=1793656660
/cdn/media/dalvikurskoli/9af40820-b3ca-47cc-866c-9c5b9ed74175.jpg?v=1793656659
/cdn/media/dalvikurskoli/4af785c8-76b3-45d1-b863-0f6f307d4835.jpg?v=1793656658
/cdn/media/dalvikurskoli/1fbb77bc-4c24-4c3c-a7f4-ee7d3981dd89.jpg?v=1793656658