Á haustdögum voru verkgreinakennarar með uppbrot fyrstu tvær kennsluvikurnar. 1. til 4.bekkur fór upp í Bögg og þar söfnuðu nemendur jurtum og greinum. Krakkarnir gerðu jurtate í heimilisfræði og ófu listaverk þegar heim i skóla var komið. 5.bekkur smíðaði gáma sem notaðir eru í skólastofunni undir námsgögn og 6.bekkur setti upp nokkur textíllistaverk á skólalóðinni. Þetta vakti almenna lukku. Nú er kennsla með hefðbundnu sniði hafin þar sem yngri nemendur fara í allar verkgreinar samkvæmt hringekju. Einnig eru val og smiðjur á unglingastigi komið vel í gang. Í tálgusmiðju sóttu nemendur sér efnivið upp í Bögg og ýmsir hlutir eru byrjaðir að taka á sig mynd. Í myndlistarvali hafa nemendur hefur verið að vinna að portrettmyndum af frægum leikurum. Sjá má brot af afrakstri á meðfylgjandi myndum.


















