Fara í efni
17.11.2026

Fréttir úr íþróttahúsinu

Deildu

Nú eru liðnar þrjár vikur síðan nýja gólfið í íþróttahúsinu var tekið í notkun. Krakkarnir og íþróttakennararnir eru smám saman að venjast rennisléttu parketinu og óhætt er að segja að mikil ánægja ríki með nýja gólfið!

Á dögunum fengum við skemmtilega heimsókn þegar Veronika Guseva, íþróttakennari úr Síðuskóla, kom og kynnti skíðaskotfimi fyrir hluta nemenda skólans. Kynningin sló heldur betur í gegn og krakkarnir voru mjög áhugasamir. Það var gaman að sjá hversu spennt þau voru að prófa þessa skemmtilegu íþrótt sem reynir bæði á einbeitingu og nákvæmni.

Annars er líf og fjör í íþróttahúsinu alla daga, enda leggjum við mikla áherslu á að krakkarnir fái fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu á hverjum degi. Markmiðið er að allir finni gleðina í hreyfingunni og njóti þess að vera virkir.

Hér fylgja nokkrar myndir frá heimsókn Veroniku þar sem krakkarnir fengu að kynnast skíðaskotfiminni. 📸

/cdn/media/dalvikurskoli/Skot-4.jpeg?v=1794901610
/cdn/media/dalvikurskoli/Skot-3.jpeg?v=1794901622
/cdn/media/dalvikurskoli/Skot-2.jpeg?v=1794901635