Fara í efni
07.10.2026

Bókaklúbbur í 4. bekk

Deildu

Dalvíkurskóli er í Erasmus+ verkefninu Read-y, en það er verkefni sem snýr meðal annars að því að efla lestur og lestraránægju barna. 

Einn hluti verkefnisins felst í því að vera með bókaklúbba fyrir nemendur. Þetta er verkefni í þróun og ákváðum við að prófa eina útgáfu af bókaklúbbi með fjórða bekk, en við skiptum bekknum upp í tvo hópa þar sem hver hópur var með sína bók. 

Fundirnir voru fjórir og fyrir hvern fund fékk hver nemandi ákveðið hlutverk sem hann átti að sinna fyrir næsta fund, auk þess að spjallað var um bókina og pælt í söguþræði, persónum og því sem gæti gerst næst. Skoðuð voru ný eða flókin orð, búnar voru til spurningar, nemendur teiknuðu mynd, skrifuðu eftirminnilega setningu og sumir spreyttu sig á því að stjórna fundinum. 

Á síðasta fundinum var boðið upp á popp og djús til fagna lestri góðrar bókar. Nemendur voru áhugasamir og flestir sammála um að endurtaka ætti leikinn síðar.