Í hverjum mánuði velur ákveðinn bekkur bók mánaðarins. Í október varð bókin Grísafjörður fyrir valinu en 4. bekkur sá um að velja bókina. Grísafjörður er verðlaunuð barnabók frá árinu 2020 eftir Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttir. Sagan fjallar um tvíburana Ingu og Baldur sem lenda í óvæntum ævintýrum í sumarfríinu. 4. bekkur valdi þessa bók því þau voru að lesa hana í nestinu og fannst hún mjög skemmtileg.
Þegar bekkur velur bók mánaðarins þarf að auglýsa bókina í skólanum, búa til plaggat með mynd af bókinni og upplýsingum um bókina. Einnig er gaman að setja allskonar upplýsingar sem tengjast bókinni á einhvern hátt á veggi skólans til að auka áhuga á henni.
4.bekkur mælir með að allir lesi þessa bráðskemmtilegu bók.






