Fara í efni
18.11.2026

Bergþór Ólafsson heimsækir 9. - 10. bekk

Deildu

Bergþór er fjórði rithöfundurinn sem heimsækir okkur í haust. Bergþór heimsótti 9. og 10. bekk og las upp úr bókinni sinni Draumar undir berum himni. Draumar undir berum himni er unglingabók og fjallar um stelpuna Svövu sem er að útskrifast úr grunnskóla. Á þessu síðasta ári fékk hún að vita að faðir hennar sem alið hefur hana upp er ekki blóðfaðir hennar. Svava fékk lítið að vita meira um hann og því skipuleggur hún leynilega ferð ásamt Agli kærasta sínum norður í land til að reyna á finna hann. Sú ferð er ekki þrautalaus og lenda þau í hinum ýmsu raunum. 

Bergþór eru 4 rithöfundurinn sem heimsækir okkur í haust og hafa nú allir bekkir skólans fengið rithöfund í heimsókn til sín í upplestur og spjall um bækur. 

/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_7196.jpeg?v=1795001070