Allir lesa er verkefni sem við erum að endurvekja í Dalvíkurskóla. 1 sinni í mánuði þá veljum við dag og tíma þar sem allur skólinn les saman á sama tíma. Það skiptir engu máli í hvaða tíma nemendur eru eða hvað er verið að kenna að þegar ritari segir í símkerfið í skólanum að allir eigi nú að ná sér í bók og byrja að lesa, þá hætta allir því sem þeir voru að gera ná sér í bók og lesa saman í 15 mínútur, nemendur og kennarar saman.