Nú á haustdögum hefur 9. bekkur verið að vinna með ævintýri og upplýsingatækni í ensku. Nemendum var skipt í hópa og hverjum hópi var úthlutað einu ævintýri. Nemendur áttu síðan að lesa saman ævintýrið og gera síðan eigin útgáfu af ævintýrinu. Fyrirmælin voru að túlka ævintýrið á ensku í orðum og myndum og búa til sína eigin stafrænu ævintýrabók.
Nemendur létu vel af vinnunni og minntust nokkrir á að það væri skemmtilegt uppbrot að vinna með ljósmyndir í stað myndbanda eins og þau eru vanari að gera. Á meðfylgjandi myndum má sjá dæmi um ævintýrabækur 9. bekkjar en ævintýrin sem voru tekin fyrir voru: Litli ljóti andarunginn, Mjallhvít og dvergarnir sjö, Öskubuska, Rauðhetta og úlfurinn, Prinsessan á bauninni og Þyrnirós.


