Fara í efni
18.11.2026

Ævar Þór rithöfundur í heimsókn

Deildu

Í síðustu viku kom Ævar Þór rithöfundur í heimsókn í skólann okkar. Hann las upp úr nýju bókinni sinni Teiknimyndaránið fyrir nemendur í 4. - 8. bekk. Bókin fjallar um vinina Tóta og Halla og þegar Tóti tilkynnir Halla að hann muni flytja til Svíþjóðar sumarið fyrir 7. bekk hrynur veröldin. Vinirnir munu ekki einu sinni ná að horfa saman á framhaldið af Bankaráninu áður en Tóti fer! Ja, ekki nema Halli nái að fremja hið fullkomna rán. Mikil spenna var að fá Ævar í heimsókn og bíða nú nemendur spenntir eftir að bókin hans komi á bókasafnið hjá okkur. 

Ævar Þór Benediktsson hefur skrifað fjölmargar bækur og talsett enn fleiri teiknimyndir.

/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_7167.HEIC?v=1794999889
/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_7174.jpeg?v=1795000327
/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_7185.jpeg?v=1795000347
/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_7179.jpeg?v=1795000340
/cdn/media/dalvikurskoli/IMG_7176.jpeg?v=1795000333