Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 17. nóvember og hefst kl. 16:30. Dagskrá: Venjuleg aðlafundarstörf og lagabreytingar. Að loknum aðalfundi eða kl. 17:00 býður foreldrafélagið upp á fræðsluerindi um sjálfsmynd barna og hvað foreldrar geta gert til að styðja við góða sjálfsmynd. Fyrirlesari er Ingibjörg Ragna Malmquist, sálfræðingur.
Hlökkum til að sjá ykkur,
stjórn foreldrafélagsins
