Fara í efni
30.09.2026 Fréttir, Berg, Auglýsingar

Listafólk Óskast

Deildu

Sýning í Bergi
7. nóvember – 5. desember 2026 · Dalvík, Norðurland

(English below)

Menningarhúsið Berg býður listamönnum frá Dalvík og Norðurlandi að sækja um sýningartækifæri í Bergi dagana 7. nóvember – 5. desember 2026.

SÝNINGARRÝMIN

STÓRI SALUR

Stærra fjölnota rými sem hentar vel fyrir einkasýningu eða samstæða heild verka.

Rýmið hentar sérstaklega vel fyrir verk sem hanga á vegg, svo sem málverk, teikningar, ljósmyndir og grafík, auk smærri, einfaldra eða færanlegra innsetninga, þar sem salurinn er einnig notaður fyrir aðra menningarviðburði.

ANDDYRI

Minna og hlýlegra rými sem hentar vel fyrir afmarkað úrval verka, minni verkasafn eða eitt ákveðið verkefni.

HVAÐ LEITUM VIÐ AÐ?

Við bjóðum bæði nýjum og reynslumiklum listamönnum, sem og sjálfstætt starfandi listamönnum, búsettum á Dalvík eða Norðurlandi, að sækja um, óháð miðli. Þar sem sýningartímabilið hefst skömmu eftir umsóknarfrest er ekki gerð krafa um ný verk; við höfum sérstakan áhuga á verkasöfnum sem eru þegar tilbúin til sýningar.

Við viljum einnig kynnast listamönnum og verkum sem gætu verið ný fyrir áhorfendur á Dalvík og í nærliggjandi byggðum.

Gert er ráð fyrir að velja einn eða tvo listamenn, eftir fjölda umsókna og því hversu vel verkin henta sýningarrýmunum.

OPNUN

Sýningin eða sýningarnar verða opnaðar með viðburði í Bergi laugardaginn 7. nóvember kl. 14.00.

SKILMÁLAR SÝNINGAR

  • Engin sýningar- eða leigugjöld eru fyrir listamenn.
  • Berg greiðir listamönnum ekki sýningargjald.
  • Ef verk seljast á sýningunni fær Berg 15% söluþóknun, en 85% rennur til listamannsins.
  • Listamenn bera sjálfir ábyrgð á flutningi verka til og frá Bergi og að verkin séu tilbúin til uppsetningar.

HVERNIG Á AÐ SÆKJA UM?

Sendið umsókn á berg@dalvikurbyggd.is og látið eftirfarandi fylgja:

  1. 5–10 myndir af verkum sem þegar eru tilbúin, sem JPG-skrár
  2. Stutta ævi- og starfságrip listamanns
  3. Stutta lýsingu á fyrirhugaðri sýningu eða verkasafni
  4. Áætlaðar stærðir og miðla verkanna
  5. Samskiptaupplýsingar
  6. Hvaða rými óskað er eftir: Stóri salur, Anddyri eða hvort sem er

UMSÓKNARFRESTUR
16. október 2026

Valdir listamenn fá svar beint frá Bergi 21. október. Sýningarrými eru takmörkuð.

//

Open Call
Exhibit At Berg
7 November – 5 December 2026
Dalvík, North Iceland

Menningarhúsið Berg invites local artists from Dalvík and North Iceland to apply to exhibit at Berg from 7 November – 5 December 2026.

THE EXHIBITION SPACES

STÓRI SALUR

A larger, multipurpose space suited to solo exhibitions and cohesive bodies of work.

Ideal for wall-based work such as painting, drawing, photography and prints, as well as small-scale, minimal or movable installations, as the hall also hosts other cultural events.

ANDDYRI

A smaller, more intimate space suited to a focused selection of work, a smaller body of work or a single project.

WHAT WE’RE LOOKING FOR

We welcome emerging, established and independent artists based in Dalvík or North Iceland, working in any medium. As the exhibition period begins shortly after the application deadline, there is no requirement to create new work; we are particularly interested in existing bodies of work that are ready to exhibit.

We’re also keen to discover artists and work that may be new to audiences in Dalvík and the surrounding region.

We expect to select one or two artists, depending on the applications received and the suitability of the work for each space.

OPENING EVENT

The exhibition(s) will open with an event at Berg on Saturday 7 November, 14:00.

EXHIBITION TERMS

  • There is no exhibition or rental fee for artists.
  • Berg does not pay artists an exhibition fee.
  • For artworks sold during the exhibition, Berg receives a 15% commission, with the remaining 85% going to the artist.
  • Artists are responsible for delivering and collecting their work and ensuring it is ready for installation.

HOW TO APPLY

Send your application to berg@dalvikurbyggd.is with the following:

  1. 5–10 images of existing work, attached as JPGs
  2. A short artist bio
  3. A brief description of the proposed exhibition or body of work
  4. Approximate dimensions and media of the works
  5. Your contact details
  6. Your preferred space: Stóri salur, Anddyri, or either

APPLICATION DEADLINE
16 October 2026

Selected artists will be contacted directly by Berg on 21 October. Exhibition dates are limited.