Fara í efni
03.11.2026 Berg, Fréttir

Aðventumarkaður í Bergi

Deildu

🎄 Aðventumarkaður í Bergi – skráning er hafin! ✨

Aðventan nálgast og nú leitum við að söluaðilum fyrir aðventumarkaðinn í Menningarhúsinu Bergi, sem verður haldinn fimmtudaginn 3. desember í tengslum við aðventurölt Dalvíkurbyggðar.

Langar þig að taka þátt og selja handverk, gjafavöru, jólavarning eða annað spennandi? Við hvetjum áhugasama til að skrá sig!

Skráning fer fram með tölvupósti á berg@dalvikurbyggd.is.

Vinsamlegast látið eftirfarandi upplýsingar fylgja:

  • Fullt nafn
  • Netfang
  • Símanúmer
  • Lýsing á söluvarningi
  • Fjölda söluborða sem óskað er eftir

Borðagjald er 5.000 kr. fyrir hvert borð.

Takmarkaður fjöldi söluborða er í boði og skráningar eru teknar í þeirri röð sem þær berast – fyrstur kemur, fyrstur fær!

Við hlökkum til að sjá ykkur og skapa saman notalega aðventustemningu í Bergi!