Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

161. fundur
2. október 2026 kl. 08:15 - 09:55
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Sigvaldi Gunnlaugsson varaformaður
Kristinn Bogi Antonsson varamaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Elín Björk Unnarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Óðinn Steinsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Óðinn Steinsson Verkefnastjóri þvert á svið
Dagskrá
1.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Málsnúmer 202501059
Fyrir fundinum var til kynningar fundargerð síðasta verkfundar frá 17. september sl.
Stefán H. Steindórsson sat fundinn á Teams
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum falið að kanna með frágang lóðar sem skv. útboði á að eiga sér stað 2027.
2.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Lagt fram til kynningar og umræðu staða bókhalds hafnasjóðs og veitna fyrir janúar-ágúst 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.
Lagt fram til kynningar.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
Fjárhagsáætlun 2027, fjárfestingaráætlun 2027, þriggja ára áætlun fyrir 2028-2030 ásamt minnisblöðum þeim tengdum lagt fram eins og því var skilað inn til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs skv. tímaramma.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar áætlanir. Vísað til umræðu í byggðaráði.
4.
Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 202608079
Gjaldskrár Hitaveitu, Vatnsveitu og Hafnasjóðs fyrir árið 2027 lagðar fram til kynningar og umræðu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar gjaldskrár hitaveitu og vatnsveitu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum gjaldskrá hafna og verbúða. Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson tekur ekki þátt í afgreiðslu vegna vanhæfis.
Stefán H. Steindórsson vék af fundi kl. 9:35
5.
Fjárhagsáætlun 2027; ábendingar frá íbúaráði
Málsnúmer 202608029
Á fundi byggðaráðs þann 20.ágúst sl. var tekið fyrir erindi frá íbúaráði Árskógssands varðandi ýmis málefni á svæðinu og var erindinu vísað áfram til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða. Hér eru til umræðu erindi um flotbryggju og fráveitu/dælustöð úrgangs vestan við höfnina.
Veitu- og hafnaráð tekur undir erindi íbúaráðs um fráveitu/dælustöð enda er það í tillögu að fjáfestingaáætlun fráveitu til næstu þriggja ára.
Veitu- og hafnaráð synjar erindi um flotbryggju á Árskógssandi.

Veitu- og hafnaráð samþykkir ofangreind atriði með fimm atkvæðum.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs 2027
Málsnúmer 202609121
Lögð fram til kynningar drög að starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs fyrir árið 2027.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fimm atkvæðum drög að starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs 2027.
7.
Hafnasambandsþing 2026
Málsnúmer 202609109
Hafnasambandsþing 2026 verður haldið í Reykjanesbæ dagana 22. og 23. október 2026. Hafnir Dalvíkurbyggðar eiga rétt á fjórum þingfulltrúum.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fimm atkvæðum að senda tvo fulltrúa á Hafnasambandsþing 2026. Formaður ráðsins og hafnarstjóri og varaformaður til vara.