Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

160. fundur
4. september 2026 kl. 08:15 - 10:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Kristinn Bogi Antonsson varamaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
Með fundarboði fylgja punktar sem komu fram á fundi með kjörnum fulltrúum þann 26.ágúst sl. Jafnframt var til grundvallar OneDrive mappa sem kjörnir fulltrúar hafa aðgang að og í henni eru öll gögn vegna vinnu við fjárhagsáætlun.
Veitu- og hafnaráð fór yfir drög að fjárfestingaráætlun fyrir veitur og hafnir og engar breytingar á henni lagðar til. Fjárhagsáætlun verður einnig tekin fyrir á næsta fundi ráðsins.
Lagt fram til kynningar.
2.
Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 202608079
Á 1190.fundi byggðaráðs var eftirfarandi bókað:Teknar fyrir eftirfarandi gjaldskrár: a) Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar b) Gjaldskrá Verbúða c) Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur d) Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar e) Gjaldskrá fráveitu Dalvíkurbyggðar Gjaldskrár má sjá á heimasíðu DalvíkurbyggðarNiðurstaða: Lagt fram til kynningar.Fyrir liggja drög að gjaldskrám þar sem gert er ráð fyrir hækkun um 2,5% í samræmi við samþykkt byggðaráðs.
a) Gjaldskrá Hafnasjóðs lögð fram til kynningar.
b) Gjaldskrá Verbúða var ekki rædd.
c) Veitu- og hafnaráð samþykkir með 3 atkvæðum Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar, er þetta gert í ljósi viðhaldsþarfar hitaveitu og uppbyggingu nýrra íbúðahverfa. Tryggvi K. Guðmundsson greiðir atkvæði gegn tillögu um gjaldskrárhækkun.
d) Gjaldskrá Vatnsveitu lögð fram til kynningar.
e) Gjaldskrá fráveitu lögð fram til kynningar.

Unnið verður í gjaldskrám fram að næsta fundi ráðsins. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
3.
Veitur Dalvikurbyggðar, samstarf
Málsnúmer 202510053
Með fundarboði fylgdi samningsviðauki við samning um samstarf og þjónustu vegna veitureksturs í Dalvíkurbyggð frá 1.nóvember til 31.desember 2026. Gildandi samningur rennur út þann 31.október 2026.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum fyrirliggjandi drög að viðauka við samning við Norðurorku og vísar honum til sveitarstjórnar til umræðu og afgreiðslu.