Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
159. fundur
21. ágúst 2026
kl.
08:15
-
09:47
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
varaformaður
Haukur Arnar Gunnarsson
varamaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
aðalmaður
Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Verkfundur var haldinn í gær fimmtudaginn 20.ágúst var fundargerð sett undir málið að honum loknum.
Sveitarstjóri fór yfir fundargerð verkfundar.
Verkið er á áætlun en fram kom að þar sem mánaðartöf var á því að hægt var að byrja vegna snjóa.
Stefnt er að því að hefja þrýstiprófanir í byrjun september.
Lagt fram til kynningar.
Verkið er á áætlun en fram kom að þar sem mánaðartöf var á því að hægt var að byrja vegna snjóa.
Stefnt er að því að hefja þrýstiprófanir í byrjun september.
Lagt fram til kynningar.
2.
Samningur um mælaleigu, þjónustu og notkunarmælingar orkusölumæla
Dalvíkurbyggð er með samning við Frumherja sem er í gildi til febrúar 2029. Þessi þjónusta er kostnaðarsöm og er hafin vinna við að skoða hvað er í stöðunni þegar samningur rennur út.
Verkefnastjóra þvert á svið falið að fá heildarlista yfir mæla í notkun til að kanna hvort endurlöggilding hafi átt sér stað frá Frumherja. Í kjölfarið verði leitað álits hjá bæjarlögmanni um næstu skref og túlkun samnings.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
3.
Ósk um formlega staðfestingu vatnstökuheimildar Laxóss ehf.
Með fundarboði fylgdi erindi frá Laxós ehf., þar sem þess er óskað að sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar staðfesti með formlegum hætti vatnstöku úr Þorvaldsdalsá.
Sveitarstjóra og verkefnastjóra þvert á svið falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
4.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Sveitarstjóri kynnti eftirfarandi skýrslur: Staða bókhalds janúar - júlí 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.Staða launakostnaðar janúar - júlí 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun. Stöðumat sveitarstjóra vegna fjárhagsáætlunar janúar - maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Sveitarstjóri og verkefnastjóri fert á svið fara yfir fjárfestingar og framkvæmdir á árinu 2026. Yfirlit lagt fram á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Með fundarboði fylgdi tímarammi vinnu við fjárhagsáætlun.a) Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslur, forgangsröðun og stefnu.b) Fundur kjörinna fulltrúa vegna vinnu við fjárhagsáætlun 26. ágúst nk. samkvæmt tímaramma.
Lagt fram til kynningar.
7.
Gjaldskrár 2027
Teknar fyrir eftirfarandi gjaldskrár: a) Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar b) Gjaldskrá Verbúða c) Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur d) Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar e) Gjaldskrá fráveitu DalvíkurbyggðarGjaldskrár má sjá á heimasíðu Dalvíkurbyggðar
Lagt fram til kynningar.
Óðinn og Stefán fóru af fundi kl. 9:28
Óðinn og Stefán fóru af fundi kl. 9:28
8.
Nýr vigtarskúr
Á 157. fundi veitu- og hafnaráðs þann 16. júní sl. undir máli 202406129 var eftirfarandi bókað: Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að byggja nýtt vigtarhús á grunni þess gamla og felur sveitarstjóra að vinna að málinu eins hratt og auðið er."Þá bókaði sveitarstjórn undir sama máli eftirfarandi:Til máls tóku: Benedikt Snær Magnússon. Börkur Þór Ottósson. Helgi Einarsson. Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs, þ.e. að sveitarstjóra er falið að vinna að málinu eins hratt og auðið er. Börkur Þór Ottósson, Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir greiða atkvæði á móti. Samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun þá er gert ráð fyrir hönnunarkostnaði árið 2026 og framkvæmdum/fjárfestingum á árinu 2027.Fyrir fundinum liggur minnisblað hafnarstjóra/sveitarstjóra.
Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram, samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
9.
Ferjubryggja Árskógssandur, viðgerð
Með fundarboði fylgdi minnisblað Vegagerðarinnar, ástandsskoðun á ferjubryggju á Árskógssandi, með tillögum að úrbótum. Jafnframt kemur fram að koma þurfi þessari framkvæmd inn á Samgönguáætlun næst þegar hún verður endurskoðuð.
Veitu- og hafnaráð leggur mikla áherslu á að farið sé í þessa framkvæmd sem fyrst, sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
10.
Skýrsla um úttekt á Dalvíkurhöfn
Með fundarboði fylgdi skýrsla um reglubundna úttekt/eftirlit á Dalvíkurhöfn, sem gerð var 2.júlí sl. Úttektin var án frávika og athugasemda.
Lagt fram til kynningar.
11.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, kynningarbréf
Með fundarboði fylgdi kynningarbréf frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem stjórn óskar eftir að það verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn. Þess er vinsamlegast óskað að meðfylgjandi skjöl verði send öllum sveitarstjórnarfulltrúum og jafnframt lögð fyrir þær nefndir eða ráð sveitarfélagsins sem fara með málaflokka er tengjast sjávarútvegi. Dalvíkurbyggð er aðili að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.Sveitarstjóri hefur sent meðfylgjandi bréf til allra sveitarstjórnarfulltrúa í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.