Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

157. fundur
16. júní 2026 kl. 14:00 - 15:29
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Sigvaldi Gunnlaugsson varaformaður
Haukur Arnar Gunnarsson varamaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Tryggvi K. Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Erindisbréf og trúnaðaryfirlýsing veitu- og hafnarráðs
Málsnúmer 202606090
Sveitarstjóri fór yfir erindisbréf veitu- og hafnaráðs og trúnaðaryfirlýsingu sem lögð er fram til undirritunar.
2.
Ritun fundargerða - leiðbeiningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202605205
Með fundarboði fylgdi auglýsing auglýsing nr. 1181/2021 um leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjóra, sbr. 16. gr. úr Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar:"Fundargerðir sveitarstjórnar eru skráðar í tölvu. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.Um ritun fundargerða sveitarstjórnar skal að öðru leyti farið eftir leiðbeiningum ráðuneytis sveitarstjórnarmála um ritun fundargerða sveitarstjórna nr. 1181/2021, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.Fundargerðir sveitarstjórnar skulu birtar á vefsíðu Dalvíkurbyggðar, ásamt fylgigögnum samkvæmt reglum og heimildum þar um, að fundi loknum enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi."Ofangreint gildir einnig um ritun fundagerða byggðaráðs og fastanefnda sveitarfélagsins.Á 391.fundi sveitarstjórnar þann 5.júní sl., var eftirfarandi bókað:Til máls tóku:Helgi Einarsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Ég legg til að sveitarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs verði falið að fara yfir með starfsmönnum nefnda sveitarfélagsins sem og nefndarmönnum verklag við ritun fundargerða og birtingu gagna, með það að markmiði að fundargerðir séu skýrar, upplýsandi og stuðli að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins."Fleiri tóku ekki til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar.
Sveitarstjóri fór yfir verklag við ritun fundargerða hjá sveitarfélaginu.
3.
Birting gagna á heimasíðu undir fundargerðum
Málsnúmer 202605206
Með fundarboði veitu- og hafnaráðs fylgdu "Almennar reglur um birtingu gagna með fundargerðum í ráðum og nefndum Dalvíkurbyggðar" um birtingu gagna með fundargerðum sem birtar eru á heimasíðu sveitarfélagsins.Með fundarboði fylgdi einnig reglugerð um birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda nr. 464/2018 ásamt upplýsingum um umfjöllun Persónuverndarteymis sveitarfélagsins frá fundi fyrr á árinu.Á 391.fundi sveitarstjórnar þann 5.júní sl., var eftirfarandi bókað:Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara yfir með starfsmönnum nefnda sveitarfélagsins sem og nefndarmönnum verklag við ritun fundargerða og birtingu gagna, með það að markmiði að fundargerðir séu skýrar, upplýsandi og stuðli að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Sveitarstjóri fór yfir reglur um birtingu gagna með fundargerðum í ráðum og nefndum.
4.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Málsnúmer 202501059
Með fundarboði fylgir samantekt frá veitum Dalvíkuryggðar fyrir nýkjörið veitu- og hafnaráð. Samantektin greinir frá stöðu mála 4 - 7 á dagskrá fundarins.
Upplýst var um stöðu á byggingaframkvæmdum við nýjan vatnstank við Upsa.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja vinnuhóp um nýjan vatnstank niður. Vísað til sveitarstjórnar til umræðu og afgreiðslu.
5.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Málsnúmer 202501060
Með fundarboði fylgdu drög að samstarfssamningi við Norðurorku um jarðhitaleit í Þorvaldsdal. Jafnframt fylgdi með samantekt sjá 4.tl.
Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram ásamt bæjarlögmanni. Samþykkt með 4 atkvæðum. Tryggvi K. Guðmundsson sat hjá.
6.
Verk- og þjónustusamningar við ÍSOR
Málsnúmer 202606040
Með fundarboði fylgdu undirritaðar verk- og þjónustusamningar við ÍSOR ásamt samantekt sjá 4.tl.
Lagt fram til kynningar.
7.
Staða vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi
Málsnúmer 202602151
Með fundarboði fylgdi samantekt sbr. 4 tl.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fjöldahjálpastöðvar á Norðurlandi
Málsnúmer 202605056
Lagt fram til kynningar.
9.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Sveitarstjóri kynnti eftirfarandi skýrslur:Staða bókhalds janúar - maí 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.Staða launakostnaðar janúar - maí 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.
Lagt fram til kynningar.
10.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Málsnúmer 202406129
Sjá málefna- og samstarfssamning B lista og óháðra og K lista Dalvíkurbyggðar https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/PDF/Fjarmala-stjornsyslu/Sveitarstjorn/malefna-og-samstarfssamningur-2026-2030.pdf
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að byggja nýtt vigtarhús á grunni þess gamla og felur sveitarstjóra að vinna að málinu eins hratt og auðið er.
11.
Fundaáætlun veitu- og hafnaráðs 2026
Málsnúmer 202512018
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fundir ráðsins verði haldnir fyrsta föstudag í mánuði kl. 8:15 frá og með ágúst 2026.
12.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 202601120
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands af 481. fundi þann 17.mars sl. og af 482. fundi þann 13.apríl sl.
Lagt fram til kynningar.

Óðinn Steinsson vék af fundi kl. 15:14.