Fara í efni

Sveitarstjórn

392. fundur
23. júní 2026 kl. 16:15 - 17:16
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Monika Margrét Stefánsdóttir forseti
Helgi Einarsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Magni Þór Óskarsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Auður Olga Arnarsdóttir varamaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1183; frá 11.06.2026
Málsnúmer 2606003F
Fundargerðin er í 20 liðum.Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202605179.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202606025.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1184; frá 18.06.2026
Málsnúmer 2606005F
Fundargerðin er í 10 liðum.Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202605068.Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202605181.Liður 3 er sér mál á dagskrá, mál 202502144.Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202606100.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
3.
Fjölskylduráð - 3; frá 16.06.2024
Málsnúmer 2606002F
Fundargerðin er í 16 liðum.Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202605130.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202603167.Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202606052.Liður 16 er sér mál á dagskrá; mál 202602154.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
4.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 157; frá 16.06.2026
Málsnúmer 2606004F
Fundargerðin er í 12 liðum.Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202501059.Liður 10 er sér mal á dagskrá; mál 202406129.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
5.
Framkvæmdaráð - 4; frá 19.06.2026
Málsnúmer 2606006F
Fundargerðin er í 28 liðum.Liður 8 er sér mál á dagskrá, mál nr. 202406092.Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál nr. 202409139.Liður 18 er sér mál á dagskrá; mál nr. 202605029.Liður 21 er sér mál á dagskrá; mál nr. 202605056.Liður 22 er sér mál á dagskrá; mál nr. 202605036.Liður 23 er sér mál á dagskrá; mál nr. 202606108.Liður 24 er sér mál á dagskrá; mál nr. 202605173.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
6.
Frá 1184. fundi byggðaráðs þann 18.06.2026; Siðareglur kjörinna fulltrúa.Endurskoðun í upphafi kjörtímabilsins 2026-2030. Fyrri umræða.
Málsnúmer 202605181
Á 1184. fundi byggðaráðs þann 18. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var eftirfarandi bókað:Í upphafi kjörtímabils skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða siðareglur sveitarstjórnar. Ef niðurstaðan er að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Sjá nánar 29. gr. sveitarstjórnarlaga.Til máls tók:Helgi Einarsson, sem leggur til að siðareglum kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð verði vísað til byggðaráðs til endurskoðunar.Fleiri tóku ekki til máls.Niðurstaða : Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu gildandi siðareglur kjörinna fulltrúa með hugmyndum að breytingum til umræðu.Til umræðu.Niðurstaða : Afgreiðslu frestað.Á fundinum var farið yfir ofangreindar hugmyndir að breytingum.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum siðareglur kjörinna fulltrúa eins og þær liggja fyrir með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til fyrri umræðu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa siðareglum kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð eins og þær liggja nú fyrir með áorðnum breytingatillögum byggðaráðs til síðari umræðu í sveitarstjórn í september.
7.
Frá 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl.; Tillaga um fundaþóknun áheyrnafulltrúa.
Málsnúmer 202605179
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var samþykkt samhljóða sú tillaga að vísa til byggðaráðs að koma með tillögu til sveitarstjórnar um fundaþóknun áheyrnarfulltrúa í byggðaráði.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga þar sem lagt er til að áheyrnarfulltrúi fá greitt 3% af þingfararkaupi eða kr. 48.339 fyrir hvern fund, sbr. gildandi Samþykkt um starfskjör, laun og þóknanir kjörinna fulltrúa Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu byggðaráðs og samþykkir að fundaþóknun áheyrnarfulltrúa í byggðaráði verði 3% af þingfararkaupi eða kr. 48.339 fyrir árið 2026 samkvæmt Samþykkt um starfskjör, laun og þóknanir kjörinna fulltrúa Dalvíkurbyggðar.
8.
Frá 1183. fundi byggðaráðs þann 11.06.2026; Umsókn um samstarf og stofnframlag vegna byggingu fjölbýlishúss á Dalvík.
Málsnúmer 202606025
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Brák íbúðafélagi, dagsett þann 3. júní sl., þar sem fram kemur að félagið hefur áhuga á að byggja allt að 8 íbúða fjölbýlishús á Dalvík og stefnir á að leggja fram umsókn um stofnframlag hjá HMS í næstu úthlutun en umsóknarfrestur er til 26. júní nk. Fram kemur að staðsetning og framkvæmdartími verður unninn í nánara samstarfi með sveitarfélaginu, eins og reglur Dalvíkurbyggðar um stofnframlög kveða á um, en miðað er við að hefja framkvæmdir haustið 2026 og ef allt gengur vel að taka í notkun íbúðir fyrir árslok 2027. Óskað er eftir samþykki Dalvíkurbyggðar á stofnframlagi í þessu verkefni að upphæð kr. 46.920.000.Áður samþykkt stofnframlag að hálfu sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar á 381. fundi sínum þann 19. júní 2025, að upphæð kr. 72.478.925, félli þar með úr gildi.https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Reglugerdir/fjarmala/Eldra/180823.reglur-dalvikurbyggdar-um-stofnframlog_.pdfNiðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi er varðar stofnframlagið og leggur til við sveitarstjórn stofnframlag frá Dalvíkurbyggð allt að kr. 46.920.000 í verkefnið."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir stofnframlag frá Dalvíkurbyggð allt að kr. 46.920.000 í verkefnið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirbúa viðaukabeiðni til byggðaráðs varðandi stofnframlag Dalvíkurbyggðar.
9.
Frá 3. fundi fjölskylduráðs þann 16.06.2026; Kynningarbréf frá Berginu og drög að samningi
Málsnúmer 202605130
Á 3. fundi fjölskylduráðs þann 16. júní sl. var efirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Berginu headspace dags. 12.05.2026. Lögð eru fram drög að samstarfssamningi milli sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Bergsins Headspace en markmið samningsins er að efla aðgengi ungs fólksað stuðningi og ráðgjöf, þróa og styrkja lágþröskulda geðheilbrigðisþjónustu á Norðurlandi eysta, stuðla aðnemmtækri íhlutun og forvörnum sem og til að mæta þörfum ungs fólks á svæðinu með aðgengilegri og faglegriþjónustu. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2026 til og með 30. júní 2029. Framlag Dalvíkurbyggðar fyrir tímabilið 1.07.2026-30.06.2027 er 310.465 krónur.Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fjórum atkvæðum samning við Bergið headspace með þeim skilyrðum að viðvera verði í Dalvíkurbyggð eins og á öðrum stöðum. Máli vísað til staðfestingar í sveitastjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og samþykkir samning við Bergið Headspace með þeim skilyrðum að viðvera verði í Dalvíkurbyggð eins og á öðrum stöðum.
Kostnaði vegna framlags Dalvíkurbyggðar að upphæð kr.310.465 er vísað á lið 02800-9145 í fjárhagsáætlun 2026.
10.
Frá 3. fundi fjölskylduráðs þann 16.06.2026; Samningur og handbók vegna samfélagsverkefna
Málsnúmer 202606052
Á 3. fundi fjölskylduráðs þann 16. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Fangelsinsmálastofnun ríkisins dags. 05.06.2026 um gerð samnings um ólaunaða samfélagsþjónustu mæli almannahagsmunir ekki gegn því. Samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar getur maður sem er dæmdur í allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi afplánað refsingu sína með ólaunaðri samfélagsþjónustu. Sama gildir ef fésekt, 100.000 eða hærri innheimtist ekki og lögreglustjóri hefur ákveðið að maður skuli afplána vararefsingu hennar. Óskað er eftir að Dalvíkurbyggð verði eitt þeirra sveitarfélaga sem veitir samfélagsþjónustu sem þýðir að vinnustaðir á vegum Dalvíkurbyggðar nýti starfskrafta samfélagsþjóna en skuli um leið sjá þeim fyrir verkefnum þann tíma sem þeim ber að vinna. Samningurinn er ótímabundinn en uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila fyrirvaralaust. Meðfylgjandi fundarboði er einnig handbók vinnustaða SÞ.Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir samning með fjórum greiddum atkvæðum og vísar málinu til staðfestingar í sveitastjórn."
Til máls tóku:

Benedikt Snær Magnússon, sem leggur til að þessu máli verði vísað aftur til fjölskylduráðs og óskar eftir að það komi meiri upplýsingar um hvaða vinnustaði er að ræða í samfélaginu og hvaða starfsmenn munu halda utan um verkefnið.

Helgi Einarsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og meðfylgjandi samningsdrög við Fangelsismálastofnun um ólaunaða samfélagsþjónustu. Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdótti greiða atkvæði á móti.

Samningurinn er ótímabundinn en hægt er að segja honum upp fyrirvaralaust af hálfu beggja aðila.
11.
Frá 3. fundi fjölskylduráðs; Endurnýjun á samningi við Heilsu- og sálfræðiþjónustuna.
Málsnúmer 202603167
Á 3. fundi fjölskylduráðs þann 16. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fara yfir uppfærðan samning við Heilsu - og sálfræðiþjónustuna.Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fjórum greiddum atkvæðum Samning við Heilsu - og sálfræðiþjónustuna slf til þriggja ára með möguleika á framlengingu."
Til máls tók:

Magni Þór Óskarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og fyrirliggjandi samningsdrög á milli Dalvíkurbyggðar og Heilsu- og sál ehf. um sérfræðiþjónustu við stofnanir Dalvíkurbyggðar. Samningurinn gildir frá og með 1. október nk. og til og með 30. september 2029 með möguleika á framlengingu ef þess er óskað. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með þriggja mánaða fyrirvara.
12.
Frá 157. fundi veitu- og hafnaráðs þann 16.06.2026; Vatnstankur Upsa - Vinnuhópur.
Málsnúmer 202501059
Á 157. fundi veitu- og hafnaráðs þann 16. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgir samantekt frá veitum Dalvíkuryggðar fyrir nýkjörið veitu- og hafnaráð. Samantektin greinir frá stöðu mála 4 - 7 á dagskrá fundarins.Niðurstaða : Upplýst var um stöðu á byggingaframkvæmdum við nýjan vatnstank við Upsa.Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja vinnuhóp um nýjan vatnstank niður. Vísað til sveitarstjórnar til umræðu og afgreiðslu."
Til máls tóku:

Börkur Þór Ottósson.
Helgi Einarsson.

Monika Margrét Stefánsdóttir, forseti, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
"Ég legg til að endurskipað verði í vinnuhópinn þannig að kjörnir fulltrúar í veitu- og hafnaráði skipi hópinn ásamt starfsmönnum ráðsins sem eru nú sveitarstjóri og verkefnastjóri þvert á svið.
Sveitarstjóra verði falið að gera erindisbréf fyrir vinnuhópinn þar sem m.a. komi fram að Faglausn haldi áfram utan um verkefnið, sveitarstjóri skrifi fundargerðir hópsins og verkefnastjóri haldi utan um störf hópsins.
Fjallað verði um verkefnið reglulega á fundum veitu- og hafnaráðs ."

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.
13.
Frá 1184. fundi byggðaráðs þann 18.06.2026; Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla
Málsnúmer 202502144
Á 1184. fundi byggðaráðs þann 18. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Á 379. fundi sveitarstjórnar þann 15. apríl 2025 var eftirfarandi bókað:Á 304.fundi fræðsluráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:Farið yfir stöðuna á verkefninu.Fræðsluráð leggur til með fjórum atkvæðum að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og vinnuhópurinn taki líka til skólalóðar Árskógarskóla.Niðurstaða : Enginn tók til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðusluráðs að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og taki einnig til skólalóðar við Árskógarskóla.Eftirtaldir starfsmenn skipa vinnuhópinn: Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og skólastjóri grunnskóla. Endurskipa þarf kjörna fulltrúa frá fjölskylduráði og framkvæmdaráði.Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að formenn fjölskylduráðs og framkvæmdaráðs taki sæti kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum.b)Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar haldi utan um vinnuhópinn.c) Byggðaráð leggur til að deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar sé falið að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn."
Til máls tóku:

Benedikt Snær Magnússon, sem leggur fram eftirfarandi bókun:
"Við í D listanum fögnum því að halda eigi áfram vinnu við hönnun á skólalóð við Kötlukot og lóð Dalvíkurskóla. Við vonum að nýskipað fólk í vinnuhópnum taki sem fyrst til starfa, því það eru peningar á áætlun nú í sumar, og nauðsynlegt er að sjá hönnun á lóðunum, áður en farið verður í framkvæmdir. Okkur í D listanum þykir miður að ekki hafi legið fyrir tillaga um að einhver frá D listanum yrði skipaður í þennan vinnuhóp, en á fundi byggðarráðs lá fyrir tillaga meirihlutans um að formenn þessara nefnda yrðu í hópnum, og þess vegna veltum við því fyrir okkur hvort yfirlýsingar um gott samstarf á kjörtímabilinu sé innihaldslaust."

Helgi Einarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum þá tillögu að formenn fjölskylduráðs og framkvæmdaráðs taki sæti kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum. Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir sitja hjá.
b) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum þá tillögu að deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar haldi utan um vinnu vinnuhópsins.Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir sitja hjá.
c) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum þá tillögu að deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar sé falið að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir sitja hjá.
14.
Frá 157. fundi veitu- og hafnaráðs þann 16.06.2026; Hafnarskúr, nýtt vigtarhús
Málsnúmer 202406129
Á 157. fundi veitu- og hafnaráðs þann 16. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Sjá málefna- og samstarfssamning B lista og óháðra og K lista Dalvíkurbyggðar https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/PDF/Fjarmala-stjornsyslu/Sveitarstjorn/malefna-og-samstarfssamningur-2026-2030.pdfNiðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að byggja nýtt vigtarhús á grunni þess gamla og felur sveitarstjóra að vinna að málinu eins hratt og auðið er."
Til máls tóku:

Benedikt Snær Magnússon.
Börkur Þór Ottósson.
Helgi Einarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs, þ.e. að sveitarstjóra er falið að vinna að málinu eins hratt og auðið er. Börkur Þór Ottósson, Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir greiða atkvæði á móti.

Samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun þá er gert ráð fyrir hönnunarkostnaði árið 2026 og framkvæmdum/fjárfestingum á árinu 2027.
15.
Frá 3. fundi fjölskylduráðs þann 16.06.2026; Beiðni um styrk til kaupa á loftdýnu
Málsnúmer 202602154
Á 3. fundi fjölskylduráðs þann 16. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi fr fimleikadeild UMFS. Deildin óskar eftir styrk í aðstöðu deildarinnar. Niðurstaða : Fjölskylduráð hafnar erindinu með fjórum greiddum atkvæðum."Í erindi félagsins kemur fram að óskað er eftir styrk allt að kr. 1.000.000 til að mæta kostnaði vegna kaupanna sem er kr. 1.015.000 með flutningi. Fram kemur jafnframt að loftdýnan hefur þegar verið keypt og tekin í notkun.
Til máls tóku:

Börkur Þór Ottósson.
Benedikt Snær Magnússon.
Helgi Einarsson.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.


Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og hafnar erindi fimleikadeildar UMFS um styrk vegna kaupa á loftdýnu.Börkur Þór Ottósson, Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir greiða atkvæði á móti.
16.
Frá 1184. fundi byggðaráðs þann 18.06.2026; Endurskoðun á byggðakvótakerfinu - drög að umsögn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202605068
Á 1184. fundi byggðaráðs þann 18. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 13. mái sl, þar sem upplýst er að möguleiki er að sækja um frest til að veita umsögn um endurskoðun á byggðakvótakerfinu fram í miðjan júní. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn eigi síðar en 26. maí sl.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig erindi frá Innviðaráðuneytinu dagsett þann 8. maí sl., þar sem fram kemur að Innviðaráðuneytið hefur hafið heildarendurskoðun á byggðakvótakerfinu þ.m.t. með það að markmiði að móta skýrari, markvissari og skilvirkari umgjörð um ráðstöfun þeirra aflaheimilda sem ætlaðar eru til stuðnings sjávarbyggðum. í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga sem hafa notið almenns og/eða sértæks byggðakvóta (Aflamarks Byggðastofnunar) um áhrif þessara veiðiheimilda á sveitarfélagið og einstök byggðarlög innan þess, ef við á. Sérstök áhersla er lögð á að umsagnir endurspegli bæði reynslu af núverandi fyrirkomulagi og afstöðu til framtíðarskipanarkerfisins. Óskað er eftir að umsagnir berist með því að svara meðfylgjandi atriðum til umsagnar. Heimilt er að skila frekari athugasemdum eða greinargerð samhliða, en svör við atriðunum teljast meginhluti umsagnar.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna drög að umsögn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og leggja fram á næsta fundi byggðaráðs."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög sveitarstjóra að umsögn sem var farið yfir á fundinum.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri umsögn til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Til máls tók:

Benedikt Snær Magnússon.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda og meðfylgjandi umsögn Dalvíkurbyggðar um endurskoðun á byggðakvótakerfinu.
17.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Hesthúsasvæði Hringsholti - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202409139
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Kynningu á tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti lauk þann 22.maí sl.Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Hestamannafélaginu Hring, Minjastofnun Íslands, veitumDalvíkurbyggðar, Vegagerðinni, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði íHringsholti og að tillagan verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti og að tillagan verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
18.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Nýtt íbúðahverfi sunnan Dalvíkur - breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202406092
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 405-ÍB sunnan Dalvíkur lauk þann 4.júní sl. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2025 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 405-ÍB skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tók:
Börkur Þór Ottósson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og fyrirliggjandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2025 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 405-ÍB skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Börkur Þór Ottósson situr hjá.
19.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Árskógssandur - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 202605029
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett 5.maí 2026 þar sem Lárus Hinriksson sækir um stöðuleyfi fyrir 40 ft gám á hafnarsvæði á Árskógssandi. Fyrirhugað er að hafa í gámnum aðstöðu fyrir hvalaskoðunarbát.Niðurstaða : Framkvæmdaráð hafnar erindinu.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og hafnar ofangreindu erindi um stöðuleyfi fyrir 40 ft gám á hafnarsvæði á Árskógssandi.
20.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Fjöldahjálpastöðvar á Norðurlandi
Málsnúmer 202605056
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett 7.maí 2026 þar sem Rauði krossinn við Eyjafjörð óskar eftir formlegri staðfestingu á því húsnæði sem skilgreint er sem fjöldahjálparstöð í Dalvíkurbyggð.Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til að Dalvíkurskóli verði skilgreindur sem fjöldahjálparstöð í Dalvíkurbyggð. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu framkvæmdaráðs og samþykkir að Dalvíkurskóli verði fjöldahjálparstöð í Dalvíkurbyggð.
21.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Grenndarstöðvar sorphirðu - staðsetningar og útfærslur
Málsnúmer 202605036
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Á fundi framkvæmdaráðs þann 13.maí 2026 var samþykkt að staðsetja grenndarstöðvar á Hauganesi og Árskógssandi á gömlu þvottaplönunum en um leið var áhersla lögð á að frágangur við stöðvarnar yrði snyrtilegur og ásýnd þeirra góð. Einn fundarmanna sat hjá við afgreiðsluna.Á fundi sveitarstjórnar þann 5.júní sl. var málinu vísað aftur til framkvæmdaráðs til umfjöllunar.Niðurstaða : Framkvæmdaráð stendur við fyrri bókun og felur formanni og deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar að kynna útfærslu grenndarstöðva á upplýsingafundi fyrir íbúa.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tóku:

Benedikt Snær Magnússon.
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Helgi Einarsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir að grenndarstöðvar á Hauganesi og Árskógssandi verði staðsettar á gömlu þvottaplönunum með því skilyrði að frágangur við stöðvarnar verði snyrtilegur og ásýnd þeirra góð.
Börkur Þór Ottósson, Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir greiða atkvæði á móti.
22.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Göngur og réttir í Dalvíkurbyggð 2026
Málsnúmer 202606108
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Til umræðu ákvörðun um fjallskil og göngur haustið 2026.Fyrir lá samantekt á óskum fjallskilastjóra um dagsetningar á fjallskilum og göngum.Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir að fyrstu göngur í Svarfaðardalsdeild og Dalvíkurdeild verði aðra helgi í september sem er 11.-12.september og seinni göngur viku síðar sem er 18.-19. september. Göngur í Árskógsdeild verða fyrstu helgina í september 4. - 5. september og seinni göngur viku síðar. Hrossasmölun og eftirleit í Skíðadalsafréttum semer Holárafrétt, Sveinsstaðarafrétt og Kóngsstaðardalur verði 3. október."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu framkvæmdaráðs fjallskil og göngur í Dalvíkurbyggð haustið 2026.
23.
Frá 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19.06.2026; Skipun í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd loftslagsstefnu
Málsnúmer 202605173
Á 4. fundi framkvæmdaráðs þann 19. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett 8.apríl sl. þar sem SSNE (Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra) óskar eftir tilnefningu frá Dalvíkurbyggð að fulltrúa í samvinnuvettvang fyrir framfylgd Loftsagsstefnu Norðurlands eystra.Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir að tilnefna deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar sem fulltrúa í samvinnuvettvang fyrir framfylgd Loftsagsstefnu Norðurlands eystra.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tilnefningu og felur deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að vera fulltrúi Dalvíkurbyggðar í samvinnuvettvangi fyrir framfylgd Loftlagsstefnu Norðurlands eystra.
24.
Frá 1184. fundi byggðaráðs þann 18.06.2026; Aðalfundur MHR 2026
Málsnúmer 202606100
Á 1184. fundi byggðaráðs þann 18. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Miðstöð héraðsskjalasafna, dagsett þann 11. júní sl., þar sem boðað er til aðalfundar MHR í gegnum TEAMS fimmudaginn 25. júní nk. kl. 10:30.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela starfandi forstöðumanni safna og menningarhúss að sitja fundinn ef hún hefur tök á og til vara sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
25.
Tillaga um sumarleyfi sveitarstjórnar
Málsnúmer 202606141
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi eftirfarandi tillaga um sumarleyfi sveitarstjórnar:"Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2026.Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 32. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 24. júní 2026 til og með 31. ágúst 2026."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu um frestun funda og sumarleyfi sveitarstjórnar.