Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

62. fundur
26. september 2022 kl. 17:30 - 18:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Hleðsla rafbíla
Málsnúmer 202209018
Formaður fór yfir álit Electro á lausn málsins.
Það er möguleiki á því að setja upp rafhleðslustöð á bílastæði við syðra raðhúsið. Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að bíða með þá framkvæmd að svo stöddu.
2.
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2022
Málsnúmer 202208148
Stjórn samþykkir fundarboð Ársfundar 2022 og felur framkvæmdarstjóra að boða til fundarins ásamt formanni.
3.
Fjárhagsáætlun Leiguíbúða DB 2023
Málsnúmer 202209096
Drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 lögð fyrir stjórn.
Stjórn samþykkir að fela framkvæmdarstjóra að gera breytingar á áætluninni í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir stjórn á næsta fundi.