Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
61. fundur
7. september 2022
kl.
16:15
-
17:13
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Framkvæmdastjóri Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Á 60. fundi stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses þann 20. maí 2022 var eftirfarandi bókað:"Katrín sveitarstjóri hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra til bráðabirgða síðan í september 2020. Hún mun láta af störfum í lok kjörtímabilsins og því þarf stjórn að ákveða hvernig farið verður með framkvæmdastjórn stofnunarinnar.Stjórnin telur mikilvægt að hafa samskonar tengingu inn í stjórnkerfi Dalvíkurbyggðar og verið hefur. Stjórn beinir málefnum framkvæmdastjóra og skipan í fulltrúaráð skv. samþykktum félagsins til nýrrar sveitarstjórnar."
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að framkvæmdastjóri og prókúruhafi Leiguíbúða Dalvíkukrbyggðar hses er Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Staðfest með undirritun stjórnarmanna á eyðublað RSK 17.43. Framkvæmdastjóra falið að senda tilkynninguna inn til RSK.
2.
Ársreikningur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2021
Farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses sem er unninn af KPMG ehf. Tap varð á rekstri félagsins á árinu 2021 að fjárhæð kr. 5.600.050 samkvæmt rekstrarreikningi.
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir ársreikninginn samhljóða með 2 atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni.
3.
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2022
Til umræðu ársfundur félagsins og boðun hans.
Stjórn samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að boða til ársfundar Leiguíbúðanna þann 19.10.2022 kl. 17. Auglýsing um ársfund samkvæmt samþykktum samfélagsins verði send fulltrúaráði skriflega í síðasta lagi þann 28. júlí. Í auglýsingu skal kalla eftir tillögum um breytingar á samþykktum og/eða öðrum tillögum ársfundar. Eftirfarandi gögn fylgi fundasrboði: Ársreikningur 2021, fundargerðir stjórnar frá síðasta fundi, fjárhagsáætlun næsta árs.
4.
Eitrun við hús - köngulær og fl.
Formanni falið að skoða fyrirliggjandi fyrirspurn frekar.
5.
Hleðsla rafbíla
Stjórn samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fá Electro til að kanna hvaða leiðir eru færar svo að íbúi geti hlaðið rafmagnsbíl við íbúð sína.