Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
60. fundur
20. maí 2022
kl.
08:00
-
09:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Katrín Sigurjónsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Húsfélag og hússjóður
Framkvæmdastjóri gerir grein fyrir málum sem hafa komið upp vegna hússjóðs frá síðasta stjórnarfundi. Stærsta málið er kostnaður vegna hitaveitu en mikið gegnumstreymi var í gegnum húsin síðustu mánuði. Það er rakið til aðgerða sem var farið í vegna titrings og hávaða í lögnum í syðstu íbúðunum og þar sem í þeim sömu íbúðum var erfitt að halda uppi hita.Leitað var til Magnúsar í Flæði pípulagnir og kom hann í þrígang til að meta aðstæður og bregðast við. Strax eftir páska var settur loki í syðstu íbúðinni til að halda uppi hita á neysluvatni og til að varna því að kólni í lögnum þegar það er lítil notkun. Þetta á að halda jafnari hita á neysluvatni. Eftir þetta hafa ekki komið kvartanir um hitavesen.Rætt um farveg fyrir pöntun á slætti, jólaseríur o.fl. rekstrarlegar ákvarðanir.
Stjórnin felur formanni að ræða við sviðsstjóra félagsmálasviðs um smærri rekstrarþætti vegna húseigna.
2.
Viðhaldssjóður
Farið verður yfir þann kostnað sem hefur fallið á viðhaldssjóð frá síðasta fundi stjórnar.Fyrir liggur að það þarf að gera við sprungur í íbúð 3d sem verið er að skila núna um mánaðarmótin.
Stjórn samþykkir að leita til Híbýlamálunar um viðgerðir á sprungum í íbúð 3d vegna skila á íbúðinni. Kostnaður greiddur úr Viðhaldssjóði.
Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
4.
Framkvæmdastjóri Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
Katrín sveitarstjóri hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra til bráðabirgða síðan í september 2020. Hún mun láta af störfum í lok kjörtímabilsins og því þarf stjórn að ákveða hvernig farið verður með framkvæmdastjórn stofnunarinnar.
Stjórnin telur mikilvægt að hafa samskonar tengingu inn í stjórnkerfi Dalvíkurbyggðar og verið hefur.
Stjórn beinir málefnum framkvæmdastjóra og skipan í fulltrúaráð skv. samþykktum félagsins til nýrrar sveitarstjórnar.
Stjórn beinir málefnum framkvæmdastjóra og skipan í fulltrúaráð skv. samþykktum félagsins til nýrrar sveitarstjórnar.