Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

52. fundur
22. september 2026 kl. 15:00 - 16:25
í fjarfundi
Nefndarmenn
Margrét Víkingsdóttir aðalmaður
Hrefna Katrín Björgvinsdóttir aðalmaður
Katrín Freysdóttir formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Aðrir sem sitja fund: Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri TÁT.
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs Dalvíkurbyggða, fara yfir fjárhagslegt stöðumat á TÁT.
Lagt fram til kynningar
2.
Endurskoðun á Reglum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum
Málsnúmer 202512055
Unnið að samræmingu reglna varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum að fela sviðsstjórum að koma með fullmótaðar reglur á næsta fund hjá skólanefnd.
3.
Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 202608079
Tekin fyrir gjaldskrá TÁT fyrir fjárhagsárið 2027.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum að gjaldskrá TÁT hækki um 1,5% fjárhagsárið 2027.
4.
Starfsmannamál hjá TÁT
Málsnúmer 202503112
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri fer yfir starfsmannamál á TÁT.
5.
Styrktarsjóður TÁT
Málsnúmer 202402005
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri, fara yfir uppfærðar reglur varðandi styrktarsjóð TÁT.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum uppfærðar reglur fyrir styrktarsjóð TÁT.
6.
Starfsáætlanir fræðslu - og félagsmálasviðs
Málsnúmer 202609031
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri, fara yfir starfsáætlun TÁT fyrir fjárhagsárið 2027.
Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum drög að starfsáætlun TÁT fyrir fjárhagsárið 2027.
7.
Bílaleigubílar hjá TÁT skólaárið 2026 - 2027
Málsnúmer 202609117
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, fer yfir kostnaðartölur á bílaleigubílum fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Lagt fram til kynningar.