Fara í efni

Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga

51. fundur
18. ágúst 2026 kl. 15:00 - 16:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Hrefna Katrín Björgvinsdóttir aðalmaður
Katrín Freysdóttir formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Fjárhagslegt stöðumat TÁT 2026
Málsnúmer 202605010
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fara yfir sex mánaða stöðumat fyrir fjárhagsárið 2026.
Skólanefnd TÁT þakkar Þorvaldi Eyfjörð Kristjánssyni fyrir yfirferð á sex mánaða stöðumati TÁT fyrir fjárhagsárið 2026.
2.
Kostnaðarskipting sveitarfélaga vegna samrekstur á tónlistarskóla
Málsnúmer 202508003
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir hvernig kostnaðarskipting sveitarfélaga vegna samreksturs er háttað.
Skólanefnd TÁT þakkar Gísla Bjarnasyni sviðsstjóra fyrir yfirferð á kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga.
3.
Starfsmannamál hjá TÁT
Málsnúmer 202503112
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri fara yfir stöðugildi á TÁT skólaárið 2026 - 2027.
Lagt fram til kynningar
4.
Skóladagatal TÁT 2026 - 2027
Málsnúmer 202608012
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri, fara yfir og leggja fram skóladagatal TÁT fyrir skólaárið 2026 - 2027 til samþykktar.
Skólanefnd TÁT samþykkir með tveimur atkvæðum skóladagatal TÁT fyrir skólaárið 2026 - 2027.
5.
Nemendafjöldi í TÁT skólaárið 2026 - 2027
Málsnúmer 202608049
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT, fer yfir skráningar í tónlistarskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Lagt fram til kynningar
6.
Upplýsingar um stöðuna á viðhaldsframkvæmdum í Víkurröst og Fjallabyggð
Málsnúmer 202608051
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT, fer yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir í Víkurröst í sumar. Haukur fór yfir viðhald sem fór fram á Siglufirði.
Skólanefnd TÁT þakkar Þorvaldi og Hauk fyrir upplýsingar varðandi stöðuna á viðhaldi sem farið var í á Víkurröst og húsnæði tónlistarskólans á Siglufirði.
7.
Breytingar á tónmennt í Fjallabyggð
Málsnúmer 202608050
Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri TÁT, fer yfir breytingar á tónmennt í Fjallabyggð næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar. Boðið verði uppá tónlistargleði fyrir nemendur í Frístund á Siglufirði, einnig verður söngsalur í grunnskólanum fyrir 1. - 5. bekk á Siglufirði.
8.
Erindisbréf skólanefndar TÁT og fundaskipulag
Málsnúmer 202208122
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs lagði fram tímasett fundaskipulag skólaárið 2026 - 2027.
Skólanefnd TÁT samþykkir með tveimur atkvæðum fundaskipulag TÁT fyrir skólaárið 2026 - 2027.