Fara í efni

Framkvæmdaráð

5. fundur
13. ágúst 2026 kl. 13:30 - 16:01
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Sindri Ólafsson aðalmaður
Garðar Hrafn Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Athafnasvæði við Sandskeið - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202409138
Anna Kristín Guðmundsdóttir og Ómar Ívarsson hjá teiknistofunni Landslagi ehf. kynntu drög að tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis við Sandskeið. Anna Kristín sat fundinn undir dagskrárliðum 1 og 2 og Ómar sat fundinn í fjarfundabúnaði undir sömu dagskrárliðum.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að tillögu að deiliskipulagi svæðisins í samvinnu við skipulagsráðgjafa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Hafnarsvæði Árskógssandi - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202409137
Anna Kristín Guðmundsdóttir og Ómar Ívarsson hjá teiknistofunni Landslagi ehf. kynntu lýsingu fyrir deiliskipulag hafnarsvæðis á Árskógssandi.
Framkvæmdaráð samþykkir að kynna framlagða skipulagslýsingu skv. 1.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Selárland - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202503039
Lögð fram umsögn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, dags. 24.júlí 2026 um breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis á Hauganesi.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við skipulagsráðgjafa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Íbúðahverfi sunnan Dalvíkur - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202205033
Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð sunnan Dalvíkur lauk þann 4.júní sl. Tvær athugasemdir bárust og eru þær lagðar fram ásamt tillögu að svörum við efni athugasemda. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Landsneti, veitum Dalvíkurbyggðar, Náttúruverndarstofnun og Vegagerðinni.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis sunnan Dalvíkur og svör við innkomnum athugasemdum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Hinriksmýri Árskógssandi - umsókn um skipulagsbreytingar
Málsnúmer 202603054
Lögð fram tillaga á vinnslustigi að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis við Hinriksmýri á Árskógssandi.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að deiliskipulagi svæðisins í samvinnu við skipulagsráðgjafa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Garðatröð 9 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202505161
Erindi dagsett 26.maí 2025 þar sem Reynir Lárusson sækir um frístundalóð nr. 9 við Garðatröð fyrir byggingu stálgrindarhúss til trjáræktunar.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.ágúst 2025 og var afgreiðslu frestað.
Framkvæmdaráð hafnar erindinu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Garðatröð 7 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202507033
Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Jón Þór Arngrímsson sækir um frístundalóð nr. 7 við Garðatröð.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.ágúst 2025 og var afgreiðslu frestað.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
8.
Garðatröð 7 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202507038
Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Ingi Þór Arngrímsson sækir um frístundalóð nr. 7 við Garðatröð.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.ágúst 2025 og var afgreiðslu frestað.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
9.
Garðatröð 7 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202507037
Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Arngrímur Jónsson sækir um frístundalóð nr. 7 við Garðatröð.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.ágúst 2025 og var afgreiðslu frestað.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
10.
Álfhólströð 8 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202508037
Erindi dagsett 13.ágúst 2025 þar sem Christof Wenker sækir um frístundalóð nr. 8 við Álfhólströð. Lóðinni var áður úthlutað til umsækjanda árið 2023 og hún innkölluð til sveitarfélagsins í lok árs 2024.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 10.september 2025 og var afgreiðslu frestað.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið.
Almennir skipulags- og byggingarskilmálar gilda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Mótorkrosssvæði - aðstaða
Málsnúmer 202606200
Á fundi byggðaráðs þann 2.júlí 2026 var umræðu um hugsanlega aðstöðu fyrir mótorkrossbraut vísað til skoðunar í framkvæmdaráði.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samvinnu við Miðgarð akstursíþróttafélag.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
12.
Fyrirspurn um gagnaver í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202607052
Lögð fram til umræðu fyrirspurn um hugsanlega lóð fyrir gagnaver í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
13.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2026
Málsnúmer 202501029
Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13.mars sl. var samþykkt að vísa drögum að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun inn í önnur fagráð sveitarfélagsins til umsagnar.Búið er að fjalla um drögin í öllum fagráðum og í kjölfarið taka tillit til athugasemda. Drögin eiga eftir að fara til Vegagerðarinnar og Lögreglu til umsagnar auk þess sem Byggðaráð lagði til að drögin yrðu auglýst og óskað eftir umsögn frá íbúum.
Framkvæmdaráð samþykkir að umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar verði auglýst fyrir íbúum og óskað eftir ábendingum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
14.
Búfjárbeit og ágangur búfjár - erindi til sveitarfélaga
Málsnúmer 202606201
Lagt fram til kynningar erindi atvinnuvegaráðuneytis, dags. 24.júní 2026, þar sem ábendingum er beint til sveitarfélaga verðandi málefni búfjárbeitar og ágangs búfjár.
Lagt fram til kynningar.
15.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Málsnúmer 202602011
Farið yfir stöðu á helstu fjárfestingum og framkvæmdum ársins.
Lagt fram til kynningar.
16.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Lagðar fram skýrslur fyrir þá málaflokka sem heyra undir framkvæmdaráð varðandi stöðu bókhalds í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.
17.
Karlsrauðatorg 4 - afmörkun lóðar
Málsnúmer 202608041
Lóðarhafi Karlsrauðatorgs 4 hefur óskað eftir nýrri afmörkun lóðarinnar. Stærð lóðar helst þó óbreytt.
Framkvæmdaráð samþykkir að gera breytingu á deiliskipulagi Dalvíkurhafnar til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44.gr. laganna.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Karlsrauðatorgi 6, Hafnarbraut 1 og Ránarbraut 1.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
18.
Kaldavatnslögn - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 202608042
Erindi dagsett 31.júlí 2026 þar sem Óðinn Steinsson f.h. Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu kaldavatnslagnar um 290 m leið í landi Dalvíkurbyggðar.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.