Framkvæmdaráð
4. fundur
19. júní 2026
kl.
09:30
-
12:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir
formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
varaformaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Sindri Ólafsson
aðalmaður
Garðar Hrafn Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir
skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir
deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Kynning á málaflokkum, verkefnum og verklagi málefna framkvæmdaráðs
Skipulagsfulltrúi og deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar fóru yfir þá málaflokka sem heyra undir framkvæmdaráð auk helstu verkefna sem eru í vinnslu á framkvæmdasviði og verklag við afgreiðslu mála á sviðinu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Erindisbréf framkvæmdaráðs
Lagt fram erindisbréf framkvæmdaráðs ásamt viðauka við Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar þar sem gerð er grein fyrir heimildum framkvæmdaráðs til fullnaðarafgreiðslu mála.
Lagt fram til kynningar.
3.
Ritun fundargerða - leiðbeiningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Skipulagsfulltrúi fór yfir verklag við ritun fundargerða hjá Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
4.
Birting gagna á heimasíðu undir fundargerðum
Skipulagsfulltrúi fór yfir reglur um birtingu gagna með fundargerðum í ráðum og nefndum Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar - ákvörðun um endurskoðun í upphafi kjörtímabils
Á fundi sveitarstjórnar þann 5.júní sl. var samþykkt að unnið verði áfram að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Lagt fram til kynningar.
6.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Lagt fram erindi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, dags. 1.júní sl., þar sem gerð er grein fyrir ábendingum sem stofnunin setur fram við tillögu að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Framkvæmdaráð samþykkir að tillaga að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 verði auglýst ásamt ábendingum HMS skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, til samræmis við bókun sveitarstjórnar frá 17.mars sl.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Lækjarbakki, Árskógssandi - umsókn um frístundabyggð
Erindi dagsett 21.apríl 2026 þar sem landeigendur Lækjarbakka 1, 3 og 4 á Árskógssandi óska eftir því að landnotkun verði breytt úr landbúnaðarlandi L1 í frístundabyggð. Áformin kalla á breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.Málið var áður á dagskrá framkvæmdaráðs þann 13.maí sl. og var afgreiðslu frestað þar til frekari upplýsingar lægju fyrir frá landeigendum.
Framkvæmdaráð samþykkir að erindinu verði beint til yfirstandandi vinnu við nýtt Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Nýtt íbúðahverfi sunnan Dalvíkur - breyting á aðalskipulagi
Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 405-ÍB sunnan Dalvíkur lauk þann 4.júní sl. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2025 vegna stækkunar á íbúðarsvæði 405-ÍB skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Íbúðahverfi sunnan Dalvíkur - nýtt deiliskipulag
Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð sunnan Dalvíkur lauk þann 4.júní sl. Tvær athugasemdir bárust og eru þær lagðar fram ásamt tillögu skipulagsfulltrúa að svörum við efni athugasemda. Umsagnir bárust frá Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Landsneti, veitum Dalvíkurbyggðar, Náttúruverndarstofnun og Vegagerðinni.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna að endanlegri útfærslu tillögunnar til samræmis við innkomnar athugasemdir og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
10.
Íbúðarhverfi sunnan Dalvíkur - hugmyndasamkeppni um götuheiti
Lagðar fram tillögur að heiti á nýju íbúðarhverfi sunnan Dalvíkur og götum innan þess.
Framkvæmdaráð samþykkir að nýtt íbúðarhverfi sunnan Dalvíkur fái heitið Hlíðahverfi og að götur innan hverfisins fái eftirfarandi heiti:
Gata A: Vallahlíð
Gata B: Upsahlíð
Gata C: Urðahlíð
Gata D: Tjarnarhlíð
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Gata A: Vallahlíð
Gata B: Upsahlíð
Gata C: Urðahlíð
Gata D: Tjarnarhlíð
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Hesthúsasvæði Hringsholti - nýtt deiliskipulag
Kynningu á tillögu á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti lauk þann 22.maí sl.Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Hestamannafélaginu Hring, Minjastofnun Íslands, veitum Dalvíkurbyggðar, Vegagerðinni, Rarik og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti og að tillagan verði auglýst skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
12.
Framkvæmdir Dalvíkurbyggðar 2026 - umsókn um framkvæmdaleyfi
Erindi dagsett 18.júní 2026 þar sem deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum sem áætlaðar eru á vegum Dalvíkurbyggðar á árinu 2026.Framkvæmdirnar sem um ræðir eru:Endurnýjun Böggvisbrautar suður, frá Mímisvegi og suður úr.Framkvæmdir við lagfæringar á bíla- og dvalarsvæði milli Ægisgötu og Sjávargötu á Árskógssandi.Fyrsti áfangi stígs meðfram strandlengju Dalvíkur, meðfram Sandskeiði frá Sunnutúni að Sandskeiði 21. Vinna við endurbætur á skólalóð Dalvíkurskóla, mön meðfram Mímisvegi og fallvarnarefni. Vinna við skólalóð Árskógarskóla/Kötlukots. Stækkun á lóð.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
13.
Árskógsvirkjun - umsókn um framkvæmdaleyfi
Erindi dagsett 2.júní 2026 þar sem Arctic Hydro hf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir vegagerð, efnistöku á landi og lagningu aðrennslispípu í tengslum við uppbyggingu Árskógsvirkjunar í Þorvaldsdal.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Garðar Hrafn Sigurjónsson greiðir atkvæði á móti tillögunni.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Garðar Hrafn Sigurjónsson greiðir atkvæði á móti tillögunni.
14.
Skáldalækur syðri - umsókn um leyfi til veglagningar
Erindi dagsett 29.maí 2026 þar sem Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir sækir um framkvæmdaleyfi til veglagningar í landi Skáldalækjar syðri vegna áforma um byggingu frístundahúss á landinu.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. Er afgreiðslan með fyrirvara um jákvæða umsögn Vegagerðarinnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
15.
Fjöruböðin - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir kennileiti úr grjóti
Erindi dagsett 9.júní 2026 þar sem Jóhann Guðni Reynisson f.h. Fjörubaðanna ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir niðursetningu á grjóti sem kennileiti framan við Fjöruböðin á Hauganesi.
Framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum í Dalvíkurbyggð auk þess sem umsagna skal aflað frá þar til bærum opinberum aðilum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
16.
Hríshöfði - umsókn um byggingarleyfi fyrir tengivirki
Grenndarkynningu á áformum um byggingu tengivirkis á lóð Landsnets og Rarik í Hríshöfða lauk þann 15.júní sl.Umsögn barst frá Náttúruverndarstofnun.
Framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leyti áform um byggingu tengivirkis og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
17.
Skíðabraut 7C - umsókn um byggingu sólstofu
Erindi dagsett 2.júní 2026 þar sem Christina Niewert sækir um leyfi til byggingar sólstofu við hús á lóð nr. 7C við Skíðabraut. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Skíðabraut 5, 7A og 7B.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
18.
Árskógssandur - umsókn um stöðuleyfi
Erindi dagsett 5.maí 2026 þar sem Lárus Hinriksson sækir um stöðuleyfi fyrir 40 ft gám á hafnarsvæði á Árskógssandi. Fyrirhugað er að hafa í gámnum aðstöðu fyrir hvalaskoðunarbát.
Framkvæmdaráð hafnar erindinu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
19.
Hringtún 23 - umsókn um lóð
Erindi dagsett 18.maí 2026 þar sem Helgi Halldórsson sækir um lóð nr. 23 við Hringtún.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
20.
Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum í Svarfaðardal
Erindi dagsett 5.júní 2026 þar sem Jóhann Heiðar Friðriksson f.h. Hjólreiðafélags Akureyrar sækir um leyfi til að halda Íslandsmót í götuhjólreiðum í Svarfaðardal þann 20.júní nk. Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
21.
Fjöldahjálpastöðvar á Norðurlandi
Erindi dagsett 7.maí 2026 þar sem Rauði krossinn við Eyjafjörð óskar eftir formlegri staðfestingu á því húsnæði sem skilgreint er sem fjöldahjálparstöð í Dalvíkurbyggð.
Framkvæmdaráð leggur til að Dalvíkurskóli verði skilgreindur sem fjöldahjálparstöð í Dalvíkurbyggð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
22.
Grenndarstöðvar sorphirðu - staðsetningar og útfærslur
Á fundi framkvæmdaráðs þann 13.maí 2026 var samþykkt að staðsetja grenndarstöðvar á Hauganesi og Árskógssandi á gömlu þvottaplönunum en um leið var áhersla lögð á að frágangur við stöðvarnar yrði snyrtilegur og ásýnd þeirra góð. Einn fundarmanna sat hjá við afgreiðsluna. Á fundi sveitarstjórnar þann 5.júní sl. var málinu vísað aftur til framkvæmdaráðs til umfjöllunar.
Framkvæmdaráð stendur við fyrri bókun og felur formanni og deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar að kynna útfærslu grenndarstöðva á upplýsingafundi fyrir íbúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
23.
Göngur og réttir í Dalvíkurbyggð 2026
Til umræðu ákvörðun um fjallskil og göngur haustið 2026. Fyrir lá samantekt á óskum fjallskilastjóra um dagsetningar á fjallskilum og göngum.
Framkvæmdaráð samþykkir að fyrstu göngur í Svarfaðardalsdeild og Dalvíkurdeild verði aðra helgi í september sem er 11.-12.september og seinni göngur viku síðar sem er 18.-19. september. Göngur í Árskógsdeild verða fyrstu helgina í september 4. - 5. september og seinni göngur viku síðar. Hrossasmölun og eftirleit í Skíðadalsafréttum sem er Holárafrétt, Sveinsstaðarafrétt og Kóngsstaðardalur verði 3. október.
24.
Skipun í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd loftslagsstefnu
Erindi dagsett 8.apríl sl. þar sem SSNE (Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra) óskar eftir tilnefningu frá Dalvíkurbyggð að fulltrúa í samvinnuvettvang fyrir framfylgd Loftsagsstefnu Norðurlands eystra.
Framkvæmdaráð samþykkir að tilnefna deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar sem fulltrúa í samvinnuvettvang fyrir framfylgd Loftsagsstefnu Norðurlands eystra.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
25.
Fundaáætlun framkvæmdaráðs 2026
Lögð fram tillaga að fundaáætlun framkvæmdaráðs fyrir árið 2026 að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
Framkvæmdaráð samþykkir fundaáætlun fyrir síðari hluta ársins 2026 þar sem fundardagar verða annar og fjórði miðvikudagur í ágúst.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
26.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Farið yfir helstu verkefni og framkvæmdir ársins.
Lagt fram til kynningar.
27.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Lagðar fram skýrslur fyrir þá málaflokka sem heyra undir framkvæmdaráð varðandi stöðu bókhalds í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.
28.
Fundargerðir byggingarfulltrúa 2026
Lagðar fram til kynningar fundargerðir 13.fundar, dags. 19.maí 2026, og 14.fundar, dags. 4.júní 2026, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.