Fara í efni

Framkvæmdaráð

11. fundur
28. október 2026 kl. 13:30 - 14:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Sindri Ólafsson aðalmaður
Elín Björk Unnarsdóttir varamaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Málsnúmer 202302116
Lögð fram samantekt á umsögnum og athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma aðalskipulags og viðbrögðum við þeim.
Lagt fram til kynningar.
2.
Sandskeið - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
Málsnúmer 202610070
Erindi dagsett 12.október 2026 þar sem Júlíus Magnússon sækir um stöðuleyfi fyrir 40 ft gám við Sandskeið.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar umsókn um stöðuleyfi til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Frumvarp um breytingar á skipulagslögum
Málsnúmer 202610101
Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010.
Frumvarpið var birt á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytis í samráðsgátt stjórnvalda þann 2.október sl. og var umsagnarfrestur veittur til 16.október.
Umsagnarbeiðni eða upplýsing um kynningu frumvarpsins var ekki send Dalvíkurbyggð.
Framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar gagnrýnir það verklag ráðuneytis að drög að frumvarpi til breytingar á skipulagslögum hafi ekki verið send sveitarfélaginu til formlegrar umsagnar. Þá gagnrýnir framkvæmdaráð jafnframt þann stutta umsagnarfrest sem veittur er í samráðsgátt stjórnvalda í þessu máli sem og öðrum sambærilegum. Umsögn í svo veigamiklu máli sem breyting á skipulagslögum er þarf að fara fyrir skipulagsnefnd og sveitarstjórn og því verður tveggja vikna umsagnarfrestur að teljast fráleitur í því samhengi.
Framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar gerir eftirfarandi athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum:
- Gerð er athugasemd við breytingu á 27.gr. laganna varðandi heimild til að vísa ágreiningi um breytingar á svæðisskipulagi til bindandi úrskurðar ráðherra. Að mati framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar er með þessu ákvæði verið að skerða skipulagsvald sveitarfélaga og óljóst í hvaða tilvikum eða á hvaða hátt vísa skuli ágreiningi til ráðherra.
- Gerð er athugasemd við breytingu á 40.gr. laganna þar sem kveðið er á um að sveitarstjórn skuli senda tillögu að deiliskipulagi til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) til athugunar áður en tillaga er auglýst, en að HMS geti jafnframt ákveðið að taka deiliskipulagstillögu til athugundar að lokinni auglýsingu ef stofnunin metur það svo. Að mati framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar er umrædd breyting ekki til þess fallin að flýta fyrir afgreiðslu umfangsmeiri skipulagsmála sem kalla á mismunandi sjónarmið íbúa og þar með fjölda athugasemda. Málsmeðferð slíkra mála yrði seinkað umtalsvert ef athugun HMS færi fram fyrir auglýsingu og svo aftur að henni lokinni. Þá er jafnframt óljóst hver yrði raunverulegur afgreiðslufrestur HMS þar sem tilgreindur þriggja vikna frestur er skýrður sem meginregla. Reynsla sveitarfélagsins hefur hinsvegar verið sú að verkefnaálag HMS leiði oft á tíðum til lengri afgreiðslufrests frá stofnuninni heldur en þess sem tilgreindur er í skipulagslögum.
Að öðru leyti fagnar framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar tímabærri endurskoðun á skipulagslögum.