Framkvæmdaráð
10. fundur
14. október 2026
kl.
13:30
-
00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir
formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
varaformaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Sindri Ólafsson
aðalmaður
Elín Björk Unnarsdóttir
varamaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir
skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir
deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Lögð fram til áframhaldandi umræðu tillaga að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 ásamt athugasemdum og umsögnum sem bárust við tillöguna og tillögu skipulagsráðgjafa að viðbrögðum við þeim. Gunnar Ágústsson hjá Yrki arkitektum sat fundinn í fjarfundabúnaði undir þessum fundarlið.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu í samvinnu við skipulagsráðgjafa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Hafnarsvæði Árskógssandi - nýtt deiliskipulag
Lögð fram tillaga á vinnslustigi að nýju deiliskipulagi fyrir hafnarsvæði á Árskógssandi, unnin af teiknistofunni Landslagi ehf.
Ómar Ívarsson hjá Landslagi ehf. sat fundinn í fjarfundabúnaði undir þessum dagskrárlið.
Ómar Ívarsson hjá Landslagi ehf. sat fundinn í fjarfundabúnaði undir þessum dagskrárlið.
Framkvæmdaráð samþykkir framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Lóð undir nýja slökkvistöð
Skipulagsfulltrúi leggur til að hafin verði vinna við nýtt deiliskipulag fyrir reit S-411, sem er skilgreindur sem svæði fyrir samfélagsþjónustu, þ.e. slökkvistöð og fleiri viðbragðsaðila eins og lögreglu.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við nýtt deiliskipulag fyrir reit S-411 skv. 40.-42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að samhliða verði unnin breyting á deiliskipulagi íþróttasvæðis Dalvíkur skv. 43.gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Landeldi og vinnsla norðan Hauganess - nýtt deiliskipulag
Lögð fram tillaga á vinnslustigi að nýju deiliskipulagi fyrir landeldi Laxóss norðan Hauganess, unnin af Form ráðgjöf ehf. og Teikna - Teiknistofu arkitekta.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að tillögunni í samvinnu við skipulagshönnuð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Hamarströð 1 - umsókn um stækkun húss
Erindi dagsett 24.september 2026 þar sem Karen Lena Óskarsdóttir sækir um stækkun húss á lóð nr. 1 við Hamarströð (áður Hamar, L151922).
Umsóknin gerir ráð fyrir að leyfilegt byggingarmagn á lóðinni verði aukið úr 220 m2 í 288 m2. Áformin kalla á breytingu á deiliskipulagi frístunda- og iðnaðarsvæðis í landi Hamars.
Umsóknin gerir ráð fyrir að leyfilegt byggingarmagn á lóðinni verði aukið úr 220 m2 í 288 m2. Áformin kalla á breytingu á deiliskipulagi frístunda- og iðnaðarsvæðis í landi Hamars.
Katrín Sif Ingvarsdóttir bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hún af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.
Framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi frístunda- og iðnaðarsvæðis í landi Hamars til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er talin þörf á grenndarkynningu sbr. 44. gr. laganna. Er skipulagsfulltrúa falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar fullnægjandi skipulagsgögn liggja fyrir.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.

6.
Umsókn um framkvæmdaleyfi í Böggvisstaðafjalli
Erindi dagsett 24.september 2026 þar sem Hörður Finnbogason f.h. Skíðafélags Dalvíkur sækir um framlengingu á áður útgefnu framkvæmdaleyfi fyrir landmótun á skíðasvæði Dalvíkur.
Fyrirhugað er að fjarlægja hól í efri brekku og hlaða efninu undir lyftuspor á milli mastra nr. 2 og 3 í efri brekku.
Fyrirhugað er að fjarlægja hól í efri brekku og hlaða efninu undir lyftuspor á milli mastra nr. 2 og 3 í efri brekku.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll tilskilin gögn hafa borist. Leyfi Náttúruverndarstofnunar er forsenda fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Garðatröð 4 - umsókn um lóð
Erindi dagsett 13.janúar 2025 þar sem Auður Jónsdóttir sækir um frístundalóð nr. 4 við Garðatröð.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.febrúar 2025 og var erindinu hafnað með vísan í endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.febrúar 2025 og var erindinu hafnað með vísan í endurskoðun á deiliskipulagi svæðisins.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Fjárhagsáætlun 2027; lagfæring og malbikun vegar
Tekið fyrir erindi frá formanni sóknarnefndar Stærri-Árskógskirkju, dagsett 15. ágúst sl. þar sem óskað er eftir því að Dalvíkurbyggð setji á fjárhagsáætlun næsta árs að lagfæra og malbika aðkomuveginn upp að kirkjunni og kirkjugarðinum í Stærri-Árskógi. Einnig er óskað eftir aðkomu sveitarfélagsins að lagfæringum á bílastæði kirkjunnar.
Með erindinu fylgdu minnisblöð frá fundi starfsmanna sem fóru yfir innsend erindi í fjárhagsáætlunargerðina og frá Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem lagt er til að erindinu verði hafnað á grundvelli þess að um framkvæmd í einkalandi er að ræða og engar lagalegar skyldur hvíla á sveitarfélaginu um fjárhagslega aðkomu að því.

Framkvæmdaráð hafnar erindinu á grundvelli þess að um framkvæmd á einkalandi er að ræða og engar lagalegar skyldur hvíla á sveitarfélaginu um fjárhagslega aðkomu að því.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs 2027
Farið yfir tillögu að framkvæmda- og viðhaldsáætlunum Eignasjóðs fyrir árið 2027 og meðfylgjandi minnisblöð.
Lagt fram til kynningar.
10.
Karlsrauðatorg 17 - úthlutun lóðar
Erindi dagsett 13.október 2026 þar sem Búðingar ehf. sækir um lóð nr. 17 við Karlsrauðatorg til byggingar fjölbýlishúss í samvinnu við Brák íbúðafélag hses.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóð nr. 17 við Karlsrauðatorg verði úthlutað án undangenginnar auglýsingar til Búðinga ehf. í samræmi við gr. 6.4 í reglum um útlutun lóða í Dalvíkurbyggð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.