Fara í efni

Fjölskylduráð

9. fundur
13. október 2026 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir formaður
Dominique Gyða Sigrúnardóttir varaformaður
Birta Dís Jónsdóttir aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir aðalmaður
Íris Björk Magnúsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
María Björk Stefánsdóttir Formaður Fjölskylduráðs
Hörður Snævar Jónsson boðaði forföll og í hans stað kemur Íris Björk Magnúsdóttir. Aðrir sem sitja fund: Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, Elvý Guðríður Hreinsdóttir, skólastjóri Krílakots, Valgerður Inga Júlíusardóttir, aðstoðarskólastjóri á Krílakoti, Una Pálmadóttir, fulltrúi starfsfólks á Krílakoti og Ingigerður Lilja Jónsdóttir, fulltrúi foreldra.
Dagskrá
1.
Öryggi barna í skólaakstri
Málsnúmer 202605143
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, fer yfir stöðu mála á verkefninu. Óskað var eftir að auka öryggi barna í skólaakstri í Dalvíkurbyggð.
Fjölskylduráð þakkar Friðriki fyrir upplýsingarnar og er ánægt með niðurstöðu í málinu.
2.
Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna
Málsnúmer 202606149
Lögð var fram til kynningar Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030 dags. september 2026. Gerður var samstarfssamningur sveitarfélaganna á Norðurlandi eystra árið 2025 sem er vettvangur fyrir svæðisbundið samráð um farsæld barna. Þessi starfshópur hefur undanfarna mánuði unnið að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna. A 1192 fundi byggðaráðs var áætlun um svæðisbundna forgangsröðun kynnt. Þar kom fram að áætlunin er unnin á grundvelli laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og er liður í lögbundnu hlutverki farsældarráða samkv. 5.gr.laganna. Við gerð hennar var byggt á stefnumótun stjórnvalda um farsæld barna, niðurstöðum farsældarþings og víðtæku samráði við sveitarfélög, þjónustuveitendur ríkisins og aðra samstarfsaðila á Norðurlandi eystra. Byggðaráð vísar áætlun til fjölskylduráðs og stjórnenda/starfsmanna Dalvíkurbyggðar sem vinna með málaflokkinn. Aætlunin byggir á 5 köflum sem eru um heilsu og vellíðan, lífsgæði og félagslega stöðu, menntun, öryggi og vernd, þátttöku og félagsleg tengsl.
Leikskólafólk kom inn á fund kl. 08:25
Lagt fram til kynningar. Nánari kynning á Farsældarlögum kemur inn á fund hjá ráðinu fyrir áramót.
3.
Styrkir til Sveitarfélaga í þágu farsældar barna
Málsnúmer 202609142
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýstir á vef stjórnarráðsins dags. 21.09.2026 eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og ofbeldi gegn börnum og styðja jafnframt við framkvæmd laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Sérstök áhersla er lögð á forvarnir, snemmtækan stuðnig og aukið öryggi barna. Starfsmenn félagsmálasviðs sem og fræðslu- og íþróttasvið sóttu um fyrrgreindan styrk þar sem áhersla er lögð á frekara samstarf og fræðslu við íþróttafélög í sveitarfélaginu, vinnu í félagsmiðstöð og frístund með það að markmiði að efla ýmiskonar forvarnir til að sporna gegn ofbeldi.
Lagt fram til kynningar
4.
Frá orðum til aðgerða Vitundarvakning um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna
Málsnúmer 202610025
Lagt fram til kynningar erindi frá Ríkislögreglustjóra og lögregluembættanna þar sem 6. október var upphaf vitundarvakningar um stafrænt ofbeldi meðal barna og ungmenna. Markmiðið er að fyrirbyggja stafrænt ofbeldi og fagfólk, foreldrar og börn viti hvernig bregðast skuli við. Í hverri viku nú í október verður nýr fræðslupakki fyrir efri bekki grunnskóla og framhaldsskóla kynntur á stoppofbeldi.mms.is. Pakkarnir sem opnaðir verða fjalla um: deilingu á nektarmyndefni og kynlífskúgunar, neteinelti, gervigreind og djúpfalsanir og loks stafrænt öryggi í ungum parasamböndum.
Lagt fram til kynningar
5.
Fundargerðir Farsældaráðs 2026
Málsnúmer 202603142
Fundargerð 8. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra lögð fram til kynningar. Fundur var haldinn í gegnum fjarfundabúnað 9. september 2026. Farið var yfir helstu niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar á Norðurlandi eystra 2026. Fram kom að niðurstöður fyrir landshlutann væru almennt jákvæðar hvað varðar fjölskyldutengsl, skóla, félagslega þátttöku og öryggi barna. Aku þess er mikil þátttaka í íþrótta og félagsstarfi og vímuefnaneysla mælist lág. Andleg líðan ungmenna er hins vegar stærsta áskorun barnanna. Farið var yfir áætlum um svæðisbundna forgangsröðum aðgerða um farsæld barna sem unnið hefur verið að á þessum fundum.
Lagt fram til kynningar
6.
Samkomulag um námsver á Dalvík
Málsnúmer 202610029
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fram drög að samkomulagi um námsver á Dalvík fyrir Símey sem er Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum samkomulag um námsver.
Starfsmenn skóla fóru af fundi kl. 09:05
7.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202609167
Trúnaðarmál 202609167

Bókað í trúnaðarmálabók
8.
Ósk um tilnefningu fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE
Málsnúmer 202609111
Tekið fyrir erindi frá SSNE dags. 12 ágúst 2026. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra óska eftir tilnefningu fulltrúa frá Dalvíkurbyggð í fjölmenningarráð SSNE fyrir komandi kjörtímabil. Fjölmenningarráð SSNE er samstarfsvettvangur sveitafélaga á Norðurlandi eysta sem hefur það hlutverk að efla samráð, miðla þekkingu og stuðja við þróun verkefna sem stuðla að inngildingu og virkri samfélagsþátttöku fólks af erlendum uppruna. SSNE vinnur að metnaðarfullu áhersluverkefni á sviði inngildingar sem verður unni í samstarfi við þekkingarnet Þingeyinga. Hvatt er að tilnefndur verði fulltrúi frá sveitarfélaginu sem hefur áhuga á málefnum fjölmenningar og samfélagsþróunarog getur tekið virkan þátt í starfi ráðsins.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að tilnefna Sjöfn Ólafsdóttur, Félagsráðgjafa, sem fulltrúa frá Dalvíkurbyggð í fjölmenningarráð SSNE.
9.
Ársreikningur GHD 2025
Málsnúmer 202603045
Lagt er fram til kynningar Ársreikningur og skýrsla stjórnar hjá Golfkúbbnum Hamri fyrir starfsárið 2025.
Lagt fram til kynningar
10.
Fjárhagsáætlun 2023; frá sjósundhópi
Málsnúmer 202206095
Kynna í Fjölskylduráði út frá Heilsueflandi samfélagi. Þar sem óskað er eftir aðstöðu skjóli fyrir fólk að skipta um föt.
Lagt fram til kynningar
11.
Styrktartölur í samningum íþróttafélaga - Vinnuskjal
Málsnúmer 202610024
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar fer yfir helstu tölur varðandi styrki til íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð og tillögur lagðar fram fyrir fjárhagsárið 2027.
Eyrún Rafnsdóttir fór af fundi kl. 09:40
Fjölskylduráð leggur til með fimm atkvæðum að tekin verði aukafundur varðandi þetta mál.
12.
Heimsókn í stofnanir sem tengjast Fjölskylduráði
Málsnúmer 202610030
Fjölskylduráð fer í heimsókn upp í íbúakjarna (Gæti breist)
Frestað þangað til síðar.