Fjölskylduráð
4. fundur
30. júní 2026
kl.
08:15
-
11:23
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir
formaður
Dominique Gyða Sigrúnardóttir
varaformaður
Hörður Snævar Jónsson
aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir
aðalmaður
Auður Olga Arnarsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027
Ósk um breytingu á skóladagatali leikskólans á Krílakoti.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á skóladagatali Krílakots fyrir skólaárið 2026 - 2027.
2.
Samningu um skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, rannsóknir og úttektir
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir drög að samningi um skólaþjónustu við Háskólann á Akureyri. Einnig tekið fyrir minnisblað frá sviðstjóra og stjórnendum skóla.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að ganga til samninga við Miðstöð skólaþróunnar Háskólans á Akureyri til þriggja ára.
3.
Pólskukennsla í Dalvíkurskóla
Tekið fyrir bréf frá Önnnu Mariu Rudnicka-Ostrowska dags. 06.06. 2026. Þar sem að hún er að hrósa sveitarfélaginu fyrir frábært samstarf um pólskukennslu í grunnskólanum.
Fjölskylduráð fagnar því að þetta gangi vel og telur mikilvægt að halda þessu áfram.
4.
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla
Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna - og framkvæmdadeildar, kemur inn á fund upplýsir um stöðuna á verkefninu.
Lagt fram til kynningar. Fjölskylduráð þakkar Helgu Írisi fyrir góða kynningu á verkefninu
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að formenn fjölskylduráðs og framkvæmdaráðs taki sæti kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum.
b)Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar haldi utan um vinnuhópinn.
c) Byggðaráð leggur til að deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar sé falið að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.
María Björk Stefánsdóttir, formaður fjölskylduráðs tekur sæti í vinnuhópnun.
Fjölskylduráð óskar eftir að Gitta Unn Ármannsdóttir, verði í hópnum fyrir hönd starfsfólks á leikskóla.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að formenn fjölskylduráðs og framkvæmdaráðs taki sæti kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum.
b)Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar haldi utan um vinnuhópinn.
c) Byggðaráð leggur til að deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar sé falið að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.
María Björk Stefánsdóttir, formaður fjölskylduráðs tekur sæti í vinnuhópnun.
Fjölskylduráð óskar eftir að Gitta Unn Ármannsdóttir, verði í hópnum fyrir hönd starfsfólks á leikskóla.
5.
Innra mat skóla
Tekin fyrir innra mats skýrsla fyrir Dalvíkurskóla. Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla fer yfir helstu niðurstöður.
Lagt fram til kynningar
6.
Öryggi barna í skólaakstri
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir málið.
Fjölskylduráð leggur til að sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs,
kanni þörf hjá foreldrum barna sem eru háð skólaakstri.
kanni þörf hjá foreldrum barna sem eru háð skólaakstri.
8.
Framlenging á samningi um skólaakstur 2026 - 2027
Bókun Byggðaráðs 12. mars 2026.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að nýta seinni heimild til framlengingu á samningi við Ævar og Bóas ehf. um eitt ár vegna skólaaksturs nemenda í Dalvíkurskóla og Árskógarskóla.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Málefni frestað
9.
Fjárframlag til rekstrar Bjarmahlíðar fyrir árið 2027
Tekið fyrir erindi dags. 12.05.2026 frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra. Undanfarin ár hafa sveitarfélög á Norðurlandi eystra komið að kostnaði við rekstur Bjarmahíðar. Í dag eru tvö stöðugildi starfsmann í Bjarmahlíð en þar er boðið upp á þjónustu fyrir þolendur ofbelis. Markmið Bjarmahlíðar eru að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Bjarmahlíð er gjaldfrjáls, lágþröskulda þjónusta og ekki þarf tilvísun til að fá þjónustu. Unnið er út frá áfallamiðaðri nálgun þar sem einstaklingum er boðin ráðgjöf, stuðningur og upplýsingar. Einstaklingum er mætt á þeirra forsendum, í hlýlegu og öruggu umhverfi. Einnig er boðið upp á fjarþjónustu ef þörf er á. Venjan er að viðtölin séu 1-3 talsins. Í Bjarmahlíð er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu stofnana og samtaka með það að leiðarljósi að kortleggja stöðu einstaklins í viðtölum og greiða leið hans í kerfinu þar sem hann fær áframhaldandi stuðning og ráðgjöf hjá viðeigandi aðilum. Bjarmahlíð sinni einnig fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis ásamt því að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið. Tillögur af kostnaðarskiptingu eru meðfylgjandi í meðfylgjandi rafbréfi. Lagt er til að framlag Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 verði kr. 782.358 kr.
Fjölskylduráð smþykkir með fimm atkvæðum
10.
Samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 23.06.2026Forsaga málsins er sú að 2025 barst sveitarfélögum landsins erindi þar sem kynnt var samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis.Á grundvelli samkomulagsins mun ríkið eigi síðar en 1. janúar 2026 taka ábyrgð á þriðja stigs þjónustu við börn með flóknar og fjölþættar þjónustuþarfir sem búsett eru utan heimilis. Á móti skuldbinda sveitarfélögin sig til að tryggja að viðunandi úrræði séu í boði fyrir þennan hóp barna á fyrsta og öðru stigi þjónustunnar. Eingöngu verður veitt framlag vegna barna sem sérfræðingateymi hefur staðfest að þurfi vegna fötlunar sinnar annars konar og meiri þjónustu en unnt er að veita á heimilum fjölskyldna þeirra.Þann 23. 06.2026 berst erindi frá Samband íslenskra sveitarfélaga þar athygli er vakin á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt reglugerð sem að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda. Með nýrri reglugerð hefur ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og sent reikninginn á sveitarfélög landsins. Samkomulagið fól í sér að ríkið tæki að sér framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis. Nú hefur mennta- og barnamálaráðuneytið hins vegar einhliða ákveðið að endurskilgreina þann hóp sem um ræðir og þrengja hann verulega þrátt fyrir að umrædd skilgreining hafi verið lögð til grundvallar í öllum þeim skýrslum sem unnar hafa verið undanfarin ár og þessir hópar aldrei fyrr verið aðgreindir. Ríkið er því að skilgreina sig frá ábyrgð á tilteknum hóp barna með tilheyrandi óvissu og auknum kostnaði sveitarfélaga. Þýðing þessarar breyttu skilgreiningar er veruleg. Samkvæmt þeirri skýrslu sem lá til grundvallar samkomulaginu voru 34 börn og ungmenni í skilgreindum hópi barna með fjölþættan vanda árið 2024. Samkvæmt útreikningum Sambandsins í aðdraganda samkomulagsins var gert ráð fyrir sambærilegum fjölda barna á þessu ári. Á þessu ári hefur hins vegar eingöngu verið samþykkt greiðsla fyrir 17 börn og því ljóst að fyrirhugað er að hópurinn sem um ræðir mun minnka verulega. Af þessu tilefni ítrekar Sambandið að samkomulagið snérist um skýra ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga til framtíðar en ekki um það að ríkið myndi leggja málaflokknum til ákveðið fjármagn. Með samkomulaginu tók ríkið að sér ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustu við þennan hóp. Það er óásættanlegt að ríkið ætli nú að skilgreina hópinn með öðrum hætti en samið var um þar sem það fjármagn sem ríkið ætlaði til málaflokksins er ekki fullnægjandi. Sambandið telur að engin fagleg rök liggi að baki þessari breytingu heldur fyrst og fremst fjárhagsleg sjónarmið. Jafnframt er um að ræða alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögunum sem treystu á að ríkið myndi standa við samkomulagið. Það er ljóst að þessi niðurstaða er mikil vonbrigði. Sambandið mun áfram berjast fyrir hagsmunum sveitarfélaga í þessu máli.
Lagt fram til kynningar
11.
Hvetjum til samveru í sumar
Tekið fyrir erindi frá SAMAN-hópnum dags. 10.05.2026 þar sem SAMAN hópurinn er að hvetja til samveru fjölskyldunnar í sumar. Þeir sem vinna fyrir SAMAN-hópinn eiga það sammerkt að vinna á einhver hátt með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun, meðferð og ráðgjöf. SAMAN-hópurinn minnir á mikilvægi samveru foreldra/forsjáraðila og unglinga sem lykilþátt í forvörnum. Rannsóknir hafa sýnt að samvera fjölskyldunnar er einn helsti skýringarþátturinn fyrir góðu gengi í forvörnum á undanförnum árum. Bent er á efni á miðlum SAMAN-hópsins, samanhopurinn.is
Lagt fram til kynningar
12.
Stafrænt samstarf í velferðarþjónustu
Lagt fram til kynningar rafpóstur frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 12.06.2026. Fram kemur í erindinu að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband Íslenskra sveitarfélaga muni fara í samstarf um öflun og nýtingu gagna í velferðarþjónustu og stofnunum þannig að yfirsýn fáist yfir aðstæður þeirra sem þurfa á þjónustu að halda og stuðlað sé að samfellu í þjónustunni. Meðal annars á að koma á sameiginlegu skipulagi gagnamála, hægt verði að nýta miðlæg lykilgögn sem gefa heildarsýn yfir velferðarþjónustuna á Íslandi. Markmið með þessari samvinnu er að tryggja samfellda þjónustu þvert á stjórnsýslustig og tengingu stefnu og fjárfestinga í þágu notenda þjónustu.
13.
Íþróttavika Evrópu - Sveitarfélög
Tekið fyrir bréf frá Ólympíusambandi Íslands dag. 05. júní 2026
Fjölskylduráð óskar eftir að íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar sæki um styrk í sjóðinn.
14.
Starfsáætlun Fjölskylduráðs
Farið yfir starfs - og fundaskipulag fjölskylduráðs.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að fundir verði annan og fjórða þriðjudag í mánuði.