Fara í efni

Fjölskylduráð

3. fundur
16. júní 2026 kl. 08:15 - 11:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir formaður
Hörður Snævar Jónsson aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Erindisbréf og trúnaðaryfirlýsing fjölskylduráðs
Málsnúmer 202604025
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri, fara yfir erindisbréf og trúnaðaryfirlýsingu fjölskylduráðs Dalvíkurbyggðar.
Farið yfir erindisbréf.
2.
Ritun fundargerða - leiðbeiningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202605205
Farið var yfir erindi frá sveitarstjórn, fundi nr. 391 dags. 05.06.2026 þar sem Helgi Einarsson leggur fram tillögu sem samþykkt var með 7 greiddum atkvæðum. Tillaga Helga var sú að sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs væri falið að fara yfir með starfsmönnum nefnda sveitarfélagsins sem og nefndarmönnum verklag við ritun fundargerða og birtingu gagna, með það að markmiði að fundargerðir séu skýrar, upplýsandi og stuðli að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins."
Lagt fram til kynningar.
3.
Birting gagna á heimasíðu undir fundargerðum
Málsnúmer 202605206
Tekið fyrir erindi frá sveitarstjórn, 391 fundi dags. 05.06.2026 um almennar reglur um birtingu gagna með fundargerðum í ráðum og nefndum Dalvílíkurbyggðar um birtingu gagna með fundargerðum sem birtar eru á heimasíðu sveitarfélagsins.Með fundarboði fylgdi einnig reglugerð um birtingu upplýsinga að frumkvæði stjórnvalda nr. 464/2018 ásamt upplýsingum um umfjöllun Persónuverndarteymis sveitarfélagsins frá fundi fyrr á árinu.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að fara yfir með starfsmönnum nefnda sveitarfélagsins sem og nefndarmönnum verklag við ritun fundargerða og birtingu gagna, með það að markmiði að fundargerðir séu skýrar, upplýsandi og stuðli að auknu gagnsæi í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202605168
Trúnaðarmál - 202605168
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Kynningarbréf frá Berginu og drög að samningi
Málsnúmer 202605130
Tekið fyrir erindi frá Berginu headspace dags. 12.05.2026. Lögð eru fram drög að samstarfssamningi milli sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Bergsins Headspace en markmið samningsins er að efla aðgengi ungs fólks að stuðningi og ráðgjöf, þróa og styrkja lágþröskulda geðheilbrigðisþjónustu á Norðurlandi eysta, stuðla að snemmtækri íhlutun og forvörnum sem og til að mæta þörfum ungs fólks á svæðinu með aðgengilegri og faglegri þjónustu. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2026 til og með 30. júní 2029. Framlag Dalvíkurbyggðar fyrir tímabilið 01.07.2026-30.06.2027 er 310.465 krónur.
Fjölskylduráð samþykkir með fjórum atkvæðum samning við Bergið headspace með þeim skilyrðum að viðvera verði í Dalvíkurbyggð eins og á öðrum stöðum. Máli vísað til staðfestingar í sveitastjórn.
6.
Endurnýjun á samningi
Málsnúmer 202603167
Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fara yfir uppfærðan samning við Heilsu - og sálfræðiþjónustuna.
Fjölskylduráð samþykkir með fjórum greiddum atkvæðum Samning við Heilsu - og sálfræðiþjónustuna slf til þriggja ára með möguleika á framlengingu.
7.
Samningur og handbók vegna samfélagsverkefna
Málsnúmer 202606052
Tekið fyrir erindi frá Fangelsinsmálastofnun ríkisins dags. 05.06.2026 um gerð samnings um ólaunaða samfélagsþjónustu mæli almannahagsmunir ekki gegn því. Samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar getur maður sem er dæmdur í allt að 24 mánaða óskilorðsbundið fangelsi afplánað refsingu sína með ólaunaðri samfélagsþjónustu. Sama gildir ef fésekt, 100.000 eða hærri innheimtist ekki og lögreglustjóri hefur ákveðið að maður skuli afplána vararefsingu hennar. Óskað er eftir að Dalvíkurbyggð verði eitt þeirra sveitarfélaga sem veitir samfélagsþjónustu sem þýðir að vinnustaðir á vegum Dalvíkurbyggðar nýti starfskrafta samfélagsþjóna en skuli um leið sjá þeim fyrir verkefnum þann tíma sem þeim ber að vinna. Samningurinn er ótímabundinn en uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila fyrirvaralaust. Meðfylgjandi fundarboði er einnig handbók vinnustaða SÞ.
Fjölskylduráð samþykkir samning með fjórum greiddum atkvæðum og vísar málinu til staðfestingar í sveitastjórn.
8.
Tengiráðgjafar
Málsnúmer 202512037
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 25.11.2025 frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þar sem tilkynnt er að styrkveitingu vegna starfs tengiráðgjafa væri hætt. Störf tengiráðgjafa voru sett á laggirnar í kjölfar Covid 29 með það verkefni að vinna gegn félagslegri einangrun og einmanaleika eldra fólks. Í kjölfar vinnu í kringum tilraunaverkefnið Gott að eldast var mikil áhersla lögð á að tengiráðgjafar sveitarfélaganna sem eru þátttakendur í verkefninu væru í stjornendahópi verkefnisins. Dalvíkurbyggð hefur fengið greitt frá ríkinu 9.104.836 krónur á ári sem hefur runnið í verkefnið enda gríðarlega gott starf sem tengiráðgjafi hefur unnið þar. Málið var síðan tekið fyrir í félagsmálaráði, fundi 293, þar sem bókað var " Félagsmálaráð lýsir yfir óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Félagsmálaráð skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga og greiði þessa upphæð á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni og telur ráðið þetta vera algjöran forsendubrest fyrir þessu mikilvæga verkefni."Málið var einnig tekið fyrir á fundi sveitastjórnar fundi nr. 387 þar sem bókað var "Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir bókun félagsmálaráðs og lýsir sveitarstjórn yfir mikilli óánægju sinni með ákvörðun Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um að hætta að veita fjárstyrk í störf tengiráðgjafa í verkefninu Gott að eldast. Sveitarstjórn skorar á ráðuneytið að staðið verði við nýgerða samninga á meðan tilraunaverkefninu Gott að eldast stendur. Mjög mikil vinna og metnaður hefur farið í þetta verkefni. Gott að eldast verkefnið hefur gengið mjög vel en er á mjög viðkvæmum stað og mikilvægt að sú vinna sem er í gangi fái að halda áfram óáreitt. Sveitarstjórn jafnframt fer fram á fund um málið með ráðherra/ráðuneytinu sem fyrst."Í kjölfar þessara bókuna áttu Eyrún Ingibjörg sveitastjóri, Eyrún sviðsstjóri félagsmálasviðs og Elísa Rán hjúkrunarforstjóri Dalbæjar fund með starfsmönnum félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Í kjölfari þess fundar var verkefnastjórn verkenisins Gott að eldast sent bréf þar sem Dalvíkurbyggð óskar eftir auka fjárveitingu vegna starfs tengiráðgjafa. Svar barst frá verkefnastjórn að fjárstuðningi vegna tengiráðgjafa af hálfu ríkisins er lokið. Óska þarf eftir viðauka alls kr. 9.000.000 til sveitastjórnar svo ekki þurfti að skera niður þjónustu sem veitt er á tilraunatíma verkefnisins Gott að eldast.Mikilvægt er að halda áfram góðu starfi tengiráðgjafa í tengslum við verkefni Gott að eldast og er þar með óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun félagsmálasviðs allt að 9.000.000 (sama og greiðslur ríkisins voru) til að veita óbreytta þjónustu allavega meðan á tilraunaverkefninu stendur.
Fjölskylduráð samþykkir með 4 greiddum atkvæðum og felur sviðsstjóra félagsmálasviðs að óska eftir viðauka til sveitarstjórnar vegna starfs tengiráðgjafa.
9.
Fundargerðir Farsældaráðs 2026
Málsnúmer 202603142
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra dags. 13.05.2026Fundurinn var staðfundur og haldinn í Hofi á Akureyri. Rætt var um stöðuna varðandi tilvonandi farsældardag farsældarráðs, stofnaður var framkvæmdahópur farsældarráðs sem í sitja sviðsstjórar velferðarsviða hvers sveitarfélags. Erindi var um tækifæri farsældar og hagrænan ávinning snemmtækrar íhlutunar. Í lokin voru vinnustofur um mótun áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna til fjögurra ára.
Lagt fram til kynningar.
10.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202606059
Trúnaðarmál nr. 202606059Bókað í trúnaðarmálabók
11.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202606036
Trúnaðarmál nr. 202606036Bókað í trúnaðarmálabók
12.
Þjónustu samningur við Akureyrarbæ
Málsnúmer 202606047
Elvý Guðríður Hreinsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fer yfir drög að samning við Akureyrarbæ til að styrkja leikskólastarf í Dalvíkurbyggð.
Fjölskylduráð samþykkir með fjórum atkvæðum að óska eftir loka samningi og leggja fyrir ráðið sem fyrst. Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og skólastjóri leikskólans á Krílakoti fylgja málinu eftir. Jafnfram þarf að koma fram í samningi gildistími og betri sundirliðunar á kostnaði.
13.
Innra mat skóla
Málsnúmer 201806041
Elvý Guðríður Hreinsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti og Valgerður Inga Júlíusardóttir, fara yfir innramatsskýrslu á Krílakoti fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Lagt fram til kynningar
14.
Samningu um skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, rannsóknir og úttektir
Málsnúmer 202502063
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir drög að samningi um skólaþjónustu við Háskólann á Akureyri.
Fresta til næsta fundar hjá ráðinu.
15.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202606066
Trúnaðarmál - 202606066
Bókað í trúnaðarmálabók.
16.
Beiðni um styrk til kaupa á loftdýnu
Málsnúmer 202602154
Tekið fyrir erindi fr fimleikadeild UMFS. Deildin óskar eftir styrk í aðstöðu deildarinnar.
Fjölskylduráð hafnar erindinu með fjórum greiddum atkvæðum.