Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1198. fundur
22. október 2026 kl. 12:00 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Helgi Einarsson og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir taka þátt í fundinum í gegnum TEAMS þar sem þau eru á Hafnasambandsþingi. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að bæta máli á dagskrá, mál 202610098; Gamla bryggjan á Hauganesi.
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
Á fundinum var farið yfir:
a) skýrslu fjárfestinga og framkvæmda 2027-2030 frá síðasta fundi byggðaráðs. Gerðar voru nokkrar breytingar á fundinum til viðbótar.
b) viðhaldsáætlun 2027 frá síðasta fundi byggðaráðs. Engar breytingar voru gerðar til viðbótar.
c) búnaðarkaupalista 2027 frá síðasta fundi byggðaráðs. Ein breyting var gerð á fundinum er tengist a) lið hér að ofan.
d) Minnisblað yfir erindis sem bárust vegna auglýsingar um fjárhagsáætlunarvinnu og stöðuna á þeim.
d.1) Mál 202608075: Á fundi fjölskylduráðs var samþykkt að gerður verði rekstrarsamningur við MIðgarð upp á kr. 500.000. Einnig var samþykkt að styrkja Snocross um kr. 500.000 vegna mótahalds.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa í vinnu við fjárhagsáætlun 2027 styrki að upphæð kr. 500.000 til Miðgarðs vegna reksturs og að gerður verði samningur við félagið þess efnis. Deild 06800.
d.2) Mál 202608065: Á fundi framkvæmdaráðs var samþykkt að hafna erindi sóknarnefndar Stærri-Árskógsskirkju um að sett verði í fjárhagáætlun fjármuni til að lagfæra og malbika veginn upp að kirkjunni. Framkvæmdaráð vísar til þess að um sé að ræða framkvæmda á einkalandi og engarlagalegar skyldur hvíla á sveitarfélaginu um fjárhagslega aðkomu. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda niðurstöðu en felur sveitarstjóra að hlutast til um að sóknarnefndinni verði leiðbeint um erindi /umsókn til Vegagerðarinnar um úrbætur á þessum hérðasvegi.
d.3) Mál 202606190: Á fundi framkvæmdaráð var samþykkt að staðsetja afgirt hundasvæði í móunum sunnan við Íþróttamiðstö og því vísar til gerðar fjárhagsáætlunar. Í tillögum að fjárhagsáætlun 2027 var gert ráð fyrir kostnaði vegna hundasvæðis 2027 en byggðaráðs samþykkir samhljóða að færa þann kostnað og gerð á nýju hundasvæði um eitt ár, eða 2028.
d.4) Málum 202608066 og 202608078 er varðar styrkir til íþróttafélaga er vísað til þeirra vinnu sem er í gangi innan fjölskylduráðs.
d.5) Mál 202606204: Styrktarsamningur við Félag eldri borgara; í tillögum að fjárhagsáætlun er ekki gert ráð fyrir hækkun á gildandi samningi.
e) Minnisblöð stjórnenda og starfsmanna sem á eftir að taka afstöðu til:
e.1) Tillaga að markaðs- og kynningaráætlun Dalvíkurbyggðar. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
e.2) Samræmd merking stofnana Dalvíkurbyggðar. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að setja 2,0 mkr. á áætlun 2027 og sömu fjárhæð árið 2028.
e.3) Ný göngukort fyrir Dalvíkurbyggð. Byggðaráð hafnar með 3 atkvæðum að nýtt göngukort verði prentað en samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að vinna að stafrænu göngukorti, ef svigrúm er í starfs- og fjárhagsáætlun 2027 á deild 21500.
e.4) Uppfærsla á skiltum við byggðamörk: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að bæta við í fjárhagsáætlun 2027 1,0 m.kr. á deild 21500 vegna uppfærslu á skiltum við mörk sveitarfélagsins með uppfærðu byggðamerki.
e.5) Minnisblað vegna aukningu á tímafjölda hjá tímavinnufólki í Félagsmiðstöðinni Dallas. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að launaáætlun taki mið af árinu 2026.
e.6) Vinnufyrirkomulag Slökkviliðs; Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum forsendur fyrir launaáætlun deildar 07210 en fara þurfi yfir kjarasamning og vinnufyrirkomulag við tækifæri.
f) Farið yfir samantekt á öllum vinnubókum þar sem fram koma niðurstöður þeirra í samanburði við heimildir ramma.
g) Farið yfir samantekt á launaáætlun fyrir hverja deild í samanburði við rammaáætlun 2027.
h) Farið yfir samantekt á fjölda stöðugildi fyrir hverja deild árin 2026 vs. 2027 ásamt magnbreytingu launaliða á milli ára.
i) Styrktartölur í rekstrarsamningum við íþróttafélög; fjölskylduráð vísaði styrkveitingu skv. minnisblaði af fundinum til byggðaráðs. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gera ekki breytingar á deild 06800. Málið verði tekið upp sem fyrst á nýju ári með fjölskylduráði.
j) Styrktartölur vegna fjárfestinga íþróttafélaga; fjölsylduráð vísaði vinnuskjali þess efnis til byggðaráðs. Á fundinum gerði byggðaráð breytingar á fjárfestinga tillögu sveitarfélagsins, sbr. a) liður hér að ofan. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
k) Á fundinum var farið yfir tillögur að breytingum á Þjónustustefnu Dalvíkurbyggðar, sbr. sveitarstjórnarlög.



Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa tillögum, eins og þær liggja nú fyrir, að starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlunar til gerðar frumvarps að fjárhagsáætlun.


2.
Gamla bryggjan á Hauganesi
Málsnúmer 202610098
Tekið fyrir erindi frá Kollgátu, fyrir hönd eigenda Fjörubaðanna á Hauganesi, dagsett þann 22. október 2026, þar sem óskað er eftir samstarfi við Dalvíkurbyggð um undirbúning að endurbyggingu og viðhaldi gömlu steinbryggjunnar á Hauganesi. Jafnframt er óskað eftir samþykki sveitarfélagsins, sem eiganda bryggjunnar, fyrir verkefninu og heimild til að undirbúa og leggja fram umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða með leyfi þess. Umsóknargögn eru í vinnslu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum, sem eigandi bryggjunnar, að heimila eigendum Fjörubaðanna á Hauganesi að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamanna.
Þessi heimild er ekki samþykki og/eða vísir að samstarfi, fjárhagsskuldbindingu og/eða öðrum skuldbindingum að hálfu sveitarfélagsins vegna þessa verkefnis.