Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1196. fundur
15. október 2026 kl. 13:15 - 18:13
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
María Björk Stefánsdóttir varamaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Börkur Þór Ottósson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Slökkvistöð, nýbygging E2301
Málsnúmer 202602090
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs frá Faglausn Almar Eggertsson og Arnór Ísak Haddson, kl. 13:15.

Á 1193. fundi byggðaráðs þann 1. október sl., kom María Markúsdóttir, skipulagsfulltrúi á fundinn. Með fundarboði byggðaráðs þann 1. október sl. fylgdi nýjustu upplýsingar frá Faglausn hvað varðar grunnmynd og skýrslu sem sýnir hlutfallsskiptingu á milli Slökkviliðs Dalvíkur, HSN vegna sjúkrabíla og Lögreglunnar á Norðurlandi Eystra.
Einnig fylgdi með rafpóstur HSN, dagsettur þann 28. 09.2026. Til umræðu skipulagsmálin, staða þeirra vegna þessa verkefnis og tímalína.
Einnig rætt um lóðamál. Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.

Með 1196. fundarboði byggðaráðs fylgdu m.a. eftirfarandi vinnugögn:
Grunnmynd af Slökkvi, lögreglu- og sjúkrastöð ásamt kostnaðaráætlun.
Rafpóstur frá HSN, dagsettur þann 15.10.2026, þar sem fram kemur að HSN er tilbúið að vera með í þessu verkefni, með fyrirvara um leiguverð og kostnað.

Til umræðu ofangreint og næstu skref.

Almar og Arnór Ísak viku af fundi kl. 14:02.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna áfram að málinu og m.a. hvað varðar leiguverð vegna leigu HNS og Lögreglunnar á húsnæðinu.
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202606078
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:10.

Bókað í trúnaðarmálabók.
3.
Frá íþróttafulltrúa; Skúringaróbot í Íþróttamiðstöð - beiðni um viðauka.
Málsnúmer 202610007
Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 1. október sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna breytts verklags við þrif á nýju gólfi Íþróttamiðstöðvar. Skipta þarf um tæki til þrifa á gólfinu. Skúringavél sem keypt var árið 2022 er um 800 kg plús manneskja sem er ekki æskilegt ti lengri tíma við þrif á parket gólfi vegna þyngdar. Nýr skúringa róbot kostar rúmar 3.2 m.kr. . Skúringavélin er tekin upp í þannig að óskað er eftir viðauka að upphæð rúmlega 1,6 m.kr.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, viðauka nr. 36 við fjárhagsáætlun 2027, að upphæð kr. 1.650.000 á lið 06500-2810.
Á fundinum var farið yfir bókfærða stöðu á lið 06500-28100 í samanburði við heimild í áætlun.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með vísan á lið 06500-2810 í fjárhagsáætlun 2026 þannig að kaupin rúmist innan þeirrar heimildar.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
4.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Rekstur á félagsheimili í Árskógi
Málsnúmer 202610017
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 5. október sl. varðandi rekstur og umsýslu á Félagsheimilnu í Árskógi. Fram koma tvær tillögur:

I.
Að samið verði við Kvenfélagið Hvöt í Árskógi um rekstur og umsýslu á félagsheimilinu í Árskógi. Meðfylgjandi eru fyrstu drög að samningi sem mætti byggja á.
Einnig óskaði sviðsstjóri eftir því við kvenfélagið að það setti niður á blað hvað það væri sem vantaði að búnaði í félagsheimilið.

II.
Að rekstur og umsýsla á félagsheimilinu verði boðið út á sambærilegan hátt og gert er með Rima.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir að fá fulltrúa Kvenfélagsins Hvatar á fund.
5.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Ósk um breytingu á kílómetragjaldi í skólaakstri.
Málsnúmer 202609001
Á 1192. fundi byggðaráðs þann 23. september sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Ævari og Bóas ehf., dagsett þann 25. ágúst sl., þar sem óskað er eftir að hækka verð á hvern kílómeter til að ná réttu hlutfalli á milli bíla vegna breytinga á skólaakstri í Árskógarskóla, þ.e. einn bíll í akstri dottið út. Með fundarboði eru ítarupplýsingar frá Ævari og Bóas ehf., dagsettar þann 16. september sl., þar sem gert er frekari grein fyrir ósk um hækkun á greiðslum, þ.e. það er verið að færa stærri bíl á milli leiða og hætta með litla bílinn sem var að borga upp mismuninn.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað sviðsstjóra, dagsett þann 21. september sl.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að koma með útreikninga og gögn fyrir fund byggðaráðs sem sýna áhrifin á samninginn fyrir og eftir breytingar á skólahaldi í Árskógarskóla.
Afgreiðslu frestað."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
Uppfært minnisblað sviðsstjóra, dagsett þann 13. október sl. þar sem fram koma tvær tillögur til að taka afstöðu til.
Fylgiskjal með reikningi vegna aksturs til og frá Árskógarskóla í mars 2026.

Gísli vék af fundi kl. 14:38.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að farin verði leið I, skv. tillögu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, þ.e. að greitt verði við viðbótar kr. 30 á kílómetra frá og með 1. septmeber sl.
Breytingin rúmast innan heimildar í fjárhagsramma 2026 samkvæmt minnisblaði sviðsstjóra.
6.
Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík - Verðfyrirspurn 2026
Málsnúmer 202603083
Á 1193. fundi byggðaráðs þann 1. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir minnisblað frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 21. september sl., þar sem fram kemur að í mars 2026 auglýsti Dalvíkurbyggð eftir aðila sem hefði áhuga á að taka að sér rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík árin 2026 - 2028. Tvö tilboð bárust í reksturinn en ekki varð að samningum við hvorugan aðilann.
Í framhaldinu sýndi Nutris ehf., Árni Júlíusson sem er jafnframt rekstraraðili hótelsins á Dalvík, áhuga á því að reka tjaldsvæðið sumarið 2026 og var gert samning um Nutris ehf. um reksturinn 2026.
Sumarið gekk vel, þrátt fyrir knappann tímaramma í undirbúning, og hefur deildarstjóri ekki heyrt annað en góða hluti um umsjón tjaldsvæðisins í sumar.
Nú hefur Árni Júlíusson fyrir hönd Nutris ehf. boðið Dalvíkurbyggð að taka að sér rekstur tjaldsvæðisins til næstu þriggja ára /sumra ef viji er til þess.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundinum."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar um áætlaðan kostnað sveitarfélagsins vegna slátturs og umhirðu á tjaldsvæðinu, sem er kr. 688.000 m.v. 4 skipti.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að leggja fyrir byggðaráð drög að samningi við Nutris ehf. til þriggja ára um rekstur og umsjón með tjaldsvæðinu á Dalvík.
7.
Fyrirspurn um gagnaver í Dalvíkurbyggð; næstu skref.
Málsnúmer 202607052
Á 1193. fundi byggðaráðs þann 1. október sl. kom skipulagsfulltrúi, María Markúsdóttir, til að ræða staðsetningu og lóðamál vegna gagnavers.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi nýjasta útgáfa að viljayfirlýsingu.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við viljayfirlýsinguna eins og hún liggur fyrir og vísar henni til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu.
8.
Gjaldskrár 2027; tillögur fagráða
Málsnúmer 202608079
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu tillögur fagráða að gjaldskrám Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027.
a) Gjaldskrá fyrir málaflokk 06; Íþróttamiðstöð og Félagsmiðstöð. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum gjaldskrána eins og hún liggur fyrir með þeirri breytingu að bætt verði við í texta hvað varðar Félagsmiðstöðina að gisting er eingöngu fyrir hópa vegna íþrótta- og æskulýðsstarfssemi.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Gjaldskrá fyrir málaflokk 04; Dalvíkurskóli, Árskógarskóli, Félagsheimilið Árskógur, Frístund, máltíðir, leikskóla. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa gjaldskránni aftur til Fjölskylduráðs til frekari yfirferðar og útfærslu.
c) Gjaldskrá fyrir Félagsmálasvið. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára. Tillaga er um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum gjaldskrá fyrir Félagsmálasvið eins og hún liggur fyrir (m.a. framkfærslukvarði og lengd viðvera).
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
d) Gjaldskrá fyrir Tónlistarskólann á Tröllaskaga. Tillaga um 1,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum gjaldskrá TÁT eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
e) Gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingarmál 2027. Tillaga um 0% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum gjaldskrá vegna skipulags- og byggingamála eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
f) Gjaldskrá vegna gatnageerðargjalda 2027. Tillaga um 0% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum gjaldskrá vegna gatnagerðargjalda eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
g) Gjaldskrá vegna Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar og verbúða 2027. Tillaga um 2,5% hækkun.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Hafnasjóðs og verbúða fyrir árið 2027 með þeirri breytingu að tekið sé út árgjald vegna bása við flotbryggju.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
h) Gjaldskrá vegna sorphirðu 2027. Tillaga um 5% hækkun.
Samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs þá er sveitarfélögum skylt að innheimta gjald sem næst raunkostnaði við þjónustuna.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá vegna sorphirðu í Dalvíkurbyggð eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar,
i) Gjaldskrá vegna ýmissa gjalda á Framkvæmdasviði 2027 þar með talið leiga á Böggvisstaðaskála. upprekstur á búfé, leiguland, fjallskil, lausaganga, refaveiðar, minkaveiðar, efnistaka. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá vegna ýmissa gjalda á Framkvæmdasvið eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar,
j) Gjaldskrá vegna Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar 2027. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
k) Gjaldskrá vegna Hitaveitu Dalvíkur 2027. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur eins og hún liggur fyrir.
Vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
l) Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2027. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá vegna hunda- og kattahalds eins og hún liggur fyrir.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Gjaldskrá vegna Fráveitu Dalvikurbyggðar er í vinnslu.

9.
Álagning fasteignagjalda 2027; tillögur
Málsnúmer 202606054
Á 1190. fundi byggðaráðs þann 27. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1188. fundi byggðaráðs þann 13. ágúst sl. var óskað eftir að fá útreikninga á álagningu fasteignaskatts miðað við 0,42, 0,40, 0,38 hvað varðar íbúðarhúsnæði. Einnig að fá útreikninga fyrir atvinnuhúsnæði þar sem miðað er við álagningu fasteignaskatts 1,60, 1,55, 1,50.
Meðfylgjandi fundarboði eru útreikningar deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar samkvæmt ofangreindu og samanburður á niðurstöðum.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."

Til umræðu ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að álagning fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækki úr 0,44 í 0,42.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að álagning fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði lækki úr 1,65 í 1,58.
10.
Frá Kirkjugörðum Dalvíkurprestakalls; Stækkun kirkjugarðs við Dalvíkurkirkju; sjá útreikninga og gögn frá Framkvæmdasviði á fundi 1195.
Málsnúmer 202510116
Á 1192. fundi byggðaráðs þann 23. september sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá formanni Kirkjugarða Dalvíkursóknar, dagsett þann 24. ágúst sl., þar sem formaður sæki um allar þær framkvæmdir við fyrirhugaða stækkun kirkjugarðs við Dalvíkurkirkju sem Dalvíkurbyggð eigi að leggja af hendi samkvæmt lögum.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað sveitarstjóra hvað varðar lagalegar skyldur sveitarfélaga vegna kirkjugarða. Fram kemur m.a. að áður en kostnaður er samþykktur skal liggja fyrir sundurliðuð kostnaðaráætlun, afmörkun á hlutdeild sveitarfélagsins og staðfesting á fjárheimild. Sveitarstjóri óskaði eftir frekari gögnum og upplýsingum frá Kirkjugörðum Dalvíkursóknar, m.a. lýsingu á verkinu,tímaáætlun og sundurliðaðri kostnaðaráætlun fyrir þessari framkvæmd. Í svari formanns, dagsett þann 14. september sl., kemur fram að Dalvíkurbyggð eigi að leggja fram grafartækt land og efni í girðingu kringum garðinn. Varðandi verktíma þá vilji kirkjugarðar Dalvíkursóknar fá þetta gert sem fyrst.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu máli til Framkvæmdasviðs hvað varðar útreikninga á kostnaði sveitarfélagsins miðað við fyrirhugaða staðsetningu."

Samkvæmt gögnum Framkvæmdasviðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 kemur fram að áætlaður kostnaður er kr. 7.300.000 vegna stækkunar á kirkjugarði við Dalvíkurkirkju og kaupum á girðingu umhverfis hann.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.
11.
Fjárhagsáætlun 2027; Ósk um samstarf við uppbyggingu tónlistar-, lista- og þekkingarhátíðar; viljayfirlýsing ?
Málsnúmer 202608074
Á 1193. fundi byggðaráðs þann 1. október sl. kom Freyr Antonsson á fund byggðaráðs í samræmi við tillögu teymis innanhúss, til að fara yfir erindi frá Whale Music Festival ehf., þar sem óskað er eftir samstarfi við uppbyggingu Whale Music Festival á Dalvík fyrir tímabilið 2027-2030. Óskað er eftir fjárframlagi að upphæð kr. 5.000.000 árið 2027 og langtímasamstarfi við Dalvíkurbyggð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að leggja fyrir byggðaráð drög að viljayfirlýsingu á milli aðila um mögulegt samstarf árið 2027.
12.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
a) Fjármála- og stjórnsýslusvið
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir tillögur fjármála- og stjórnsýslusviðs hvað varðar fjárhagsáætlun 2027.

b) Yfirferð frá síðustu fundum.
Til umræðu yfirferð frá fundum byggðaráðs þann 6. og 13. október sl. þar sem farið var yfir tillögur að fjárhagsáætlun 2027 frá félagsmálasviði, fræðslu- og menningarsviði, og framkvæmdasviði.

c) Þjónustustefna.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi gildandi Þjónustustefna fyrir Dalvíkurbyggð.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Lagt fram til kynningar.

Næsti fundur byggðaráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 verður eftir fund sveitarstjórn nk. þriðjudag.
13.
Frá Innviðaráðunetyinu; Viðmið um sjálbæra þróun sveitarfélaga
Málsnúmer 202610043
Tekið fyrir erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett þann 12. október sl., þar sem fram kemur að Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs
tíma. Hægt er að senda inn umsögn til og með 13. nóvember nk.

Ráðuneytið hefur einnig útbúið mælaborð fyrir sveitarfélögin þar sem fulltrúar þeirra geta sett inn upplýsingar um sitt sveitarfélag og fá þá yfirlit yfir hvar það stendur út frá framangreindum viðmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.
Vakin er athygli á því að viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga voru kynnt á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 9. október sl. en samkvæmt upplýsingum á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga verður upptaka frá ráðstefnunni aðgengileg.
Sjá einnig tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Lagt fram til kynningar.
14.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026; nr. 1001-1003
Málsnúmer 202602001
https://www.samband.is/fundargerdir

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 1001-1003.

Lagt fram til kynningar.