Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1191. fundur
3. september 2026
kl.
13:15
-
15:33
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Börkur Þór Ottósson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
a) Fjárhagsrammi 2027 Til umræðu fjárhagsrammi vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027; verkefni, reksturinn, framkvæmdir, markmið, áherslur, stefna, forgangsröðun, fjárhagsleg markmið, áhættumat, o.s.frv.Á fundinum var unnið að fjárhagsramma 2027.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi fjárhagsramma 2027 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
2.
Skipun í Fjallskilanefndir 2026; sbr. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Tekið fyrir minnisblað frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 2. september 2026, þar sem fram kemur að deildarstjóri hefur verið í samskiptum við Fjallskilanefndir í öllum þremur fjallskiladeildum í Dalvíkurbyggð og hefur í samvinnu við hlutaðeigandi unnið eftirfarandi tillögu að skipan í Fjallskilanefndir:Fjallskilanefnd á Árskógsströnd:Fjallskilastjóri: Jónas Þór Leifsson, Syðri-HagaGitta Unn Ármannsdóttir, Syðri-HagaSnorri Snorrason, KrossumFjallskilanefnd á Dalvík:Fjallskilastjóri: Sigurbjörg Einarsdóttir, HóliZophonías Ingi Jónmundsson, Hrafnsstöðum 2Fjallskilanefnd í Svarfaðardal:Fjallskilastjóri: Árni Sigurður Þórarinsson HofiFriðrik Arnarson, JörfatúniHelgi Kristinn Kolbeins, Ytra-HvarfiBúið er að leita samþykkis hjá öllum tilnefndum nefndarmönnum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að skipan í fjallskilanefndir verði með þeim hætti sem lagt er til hér að ofan.
3.
X-Road; uppsetning og hýsing
Tekið fyrir minnisblað frá kerfisstjóra Dalvíkurbyggðar, Bjarna Jóhanni Valdimarssyni, dagsett þann 31. ágúst sl., þar sem fram kemur Dalvíkurbyggð þarf að koma á tengingu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) með þeim hætti sem krafist er samkvæmt stafrænum samskiptastöðlum opinberra aðila. Til þess þarf sveitarfélagið að tengjast X-Road (Straumnum), sem er öruggt gagnaflutningslag fyrir rafræn samskipti milli stofnana og upplýsingakerfa.X-Road er miðlægur hluti af stafrænni innviðaþróun hins opinbera á Íslandi og er notaður til að tryggja öruggan og rekjanlegan flutning gagna milli stofnana. Tenging við HMS og aðrar opinberar þjónustur byggir á þessum innviðum.Kerfisstjóri hefur farið yfir þá þjónustuaðila sem bjóða upp á uppsetningu og rekstur X-Road umhverfis og leggur kerfisstjóri til að Dalvíkurbyggð semji við Advania um þjónustuna. Einskiptiskostnaður er kr. 213.320 með vsk fyrir utan þróun samþættinga við HMS eða aðra þjónustuaðila. Árlegur kostnaður er kr. 853.272.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu kerfisstjóra að gengið verði til samninga við Advania um uppsetningu og hýsingu X-Road þjónustu í samræmi við framlagt tilboð, vegna nauðsynlegrar tengingar sveitarfélagsins við HMS og aðra stafræna innviði hins opinbera.
Einskiptiskostnaði er vísað á deild 09210 og mánaðarlegu gjaldi sem fellur til á árinu 2026.
Einskiptiskostnaði er vísað á deild 09210 og mánaðarlegu gjaldi sem fellur til á árinu 2026.
4.
Starfsemi Olís í Dalvíkurbyggð
Á samfélagsmiðlum og í samfélaginu hefur verið undanfarið til umræðu áform Olís að loka 1. nóvember nk. á Dalvík.Sveitarstjóri setti sig í samband við framkvæmdastjóra Olís, Ingunni Svölu Leifsdóttur, til að fá frekari upplýsingar.
Byggðaráð harmar lokun þjónustustöðvar Olís á Dalvík, þótt eldsneytissala og dælur verði áfram opnar eftir lokun.
Byggðaráð bindur vonir við að Olís komi húsnæðinu sem fyrst í notkun.
Byggðaráð bindur vonir við að Olís komi húsnæðinu sem fyrst í notkun.
5.
Samtök orkusveitarfélaga, kynning til sveitarfélaga
Á 1187. fundi byggðaráðs þann 30. júlí sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdu tvö skjöl frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga sem stjórn samtakanna óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarfélaginu.Dalvíkurbyggð er ekki aðili að Samtökum orkusveitarfélaga.Niðurstaða : Sveitarstjóri mun senda kynningabréfið til allra sveitarstjórnarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.Byggðaráð samþykkir samhljóða með þrem atkvæðum að kanna kosti og galla þess að ganga í Samtök orkusveitarfélaga."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu viðbótarupplýsingar, dagsettar þann 31. ágúst sl., þar sem tekið er saman tilgangur samtakanna, helstu verkefni undanfarin ár, ávinning af aðild.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ekki séu forsendur hjá Dalvíkurbyggð að ganga í Samtök orkusveitarfélaga.