Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1190. fundur
27. ágúst 2026 kl. 13:15 - 16:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Börkur Þór Ottósson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að bæta máli nr. 202608123 á dagskrá, liður 14. og var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Málefni Safna og Menningarhúss.
Málsnúmer 202605077
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Dominique Gyða Sigrúnardóttir, starfandi forstöðumaður safna og menningarhúss, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:15.Á 1186. fundi byggðaráðs þann 9. júlí sl. var eftirfarandi bókað:Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Dominique Gyða Sigrúnardóttir, starfandi forstöðumaður safna og menningarhúss, kl. 13:15.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi starfandi forstöðumanns, dagsett þann 9. júní sl., er varðar greiningu á stöðu Menningarhússins Bergs og safna Dalvíkurbyggðar; mannauður, stöðugildi og leiga á sal. Í greinargerðinni er lagt til að fjölga stöðugildum um 2 við söfn og Menningarhús.Einnig þurfi að skýra verkferla og samvinnu innanhúss, umsjón með húsinu, skýra tilgang og stefnu Menningarhússins, þar með talið útleigu. Meðfylgjandi fundarboði er tillaga sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að uppfærðum reglum varðandi útleigu á sal í Menningarhúsinu Bergi sem og greinargerð starfandi verkefnastjóra Menningarhúss.Til umræðu ofangreint.Dominique vék af fundi kl. 13:41.Niðurstaða : Unnið verður að málinu áfram og aflað verður frekari gagna á milli funda."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu gögn sem aflað hefur verið frá 1183. fundi byggðaráðs og send einnig tilbyggðaráðs á milli funda.Niðurstaða : a) Varðandi tillögu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að uppfærðum reglum varðandi útleigu á sal í Menningarhúsinu Bergi þá felur byggðaráð sveitarstjóra að vinna málið áfram með sviðsstjóra og koma með tillögu sem tekur eins og hægt er til allra sjónarmiða.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að stöðugildi við söfn og Menningarhús verði aukið sem nemur 100% stöðugildi, án tímabundinna átaksverkefna, sem tilraun til og með 31.12.2027. Breytingin er þá nettó 50% stöðugildi miðað við stöðugildisheimild 2026. Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og starfandi forstöðumanni er falið að koma með tillögu að útfærslu til byggðaráðs."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu erindi starfandi forstöðumanns safna og menningarhúss hvað varðar a) lið hér að ofan, bréf dagsett þann 12. ágúst sl., þar sem gert er grein fyrir tillögu að útfærslu á því stöðugildi sem byggðaráð samþykkti til viðbótar sem tilraun til og með 31.12.2027. Auglýstar hafa verið 4 stöður og inni í því er 70% viðbót á bókasafn og 30% viðbót fyrir menningarhúsið.Til umræðu ofangreint.Dominique Gyða vék af fundi kl.13:32.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda útfærslu stjórnenda safna og menningarhúss.
2.
Þátttaka í Grænum skrefum á vegum SSNE; vinnuhópur -staða mála.
Málsnúmer 202301149
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Eyþór Björnsson, aðalbókari, og Óðinn Steinsson, verkefnastjóri þvert á svið, kl. 13:35. Gísli Bjarnason sat fundinn áfram.Á 1060. fundi byggðaráðs þann 2. mars sl. var eftirfarandi bókað:Á 1057. fundi byggðaráðs þann 2. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 25.janúar 2023, þar sem fram kemur að sveitarfélögum svæðisins býðst að taka þátt í Grænum skrefum SSNE.Tilgangur verkefnisins er að efla umhverfisstarf á svæðinu og styðja sveitarfélögin við að uppfylla lögbundnar skyldurí loftslagsmálum. Hafi sveitarfélagið áhuga á að taka þátt er óskað eftir að skipaður sé tengiliður við verkefnið. Svarum þátttöku þarf að berast fyrir 24. febrúar nk. Með erindinu fylgir kynning á verkefninu. Niðurstaða:Byggðaráðsamþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá kynningu frá SSNE á ofangreindu verkefni. Kristín Helga kynntiofangreint verkefni. Niðurstaða:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn aðDalvíkurbyggð taki þátt í Grænum skrefum. Einnig að óskað verði eftir verkefnatillögu frá SSNE og að tengiliður viðverkefnið verði tilnefndur á fundi sveitarstjórnar 21. febrúar.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar um verkefnið frá SSNE ásamt gátlista.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs verði tengiliðurDalvíkurbyggðar við SSNE en verkefnið verði unnið af teymi innanhúss."Á 357. fundi sveitarstjórnar þann 21. mars sl., var eftirfarandi samþykkt:"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum þá tillögu byggðaráðs frá 1058. fundi að Dalvíkurbyggð taki þáttí Grænum skrefum á þeim forsendum að þátttaka Dalvíkurbyggðar verði á þeim hraða sem sveitarfélagið hefursvigrúm til, sbr. það sem fram kom í kynningu SSNE á fundi með byggðaráði. Jafnframt samþykkir sveitarstjórnsamhljóða að sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs verði tengiliður Dalvíkurbyggðar við SSNE vegna SkrifstofaDalvíkurbyggðar og verkefnið verði unnið af teymi innanhúss."Á starfsmannafundi Skrifstofa Dalvíkurbyggðar var síðan ákveðið að vinnuhópurinn væri skipaður verkefnastjóra þvert á svið, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, og aðalbókara, sem hafa jafnframt séð um að vera tengiliðir Dalvíkurbyggðar við SSNE.Vinnuhópurinn gerði grein fyrir framvindu þessa verkefnis og stöðu þess.Gísli, Óðinn og Eyþór viku af fundi kl. 13:46
Lagt fram til kynningar.
3.
Hönnunarstaðall Dalvíkurbyggðar; tillögur
Málsnúmer 202605165
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Friðjón Árni Sigurvinsson, upplýsingafulltrúi, kl. 13:50.a) Upplýsingafulltrúi fór yfir meðfylgjandi hönnunarstaðal fyrir Dalvíkurbyggðar í kjölfar á uppfærslu á byggðamerki Dalvíkurbyggðar. Um er að ræða samræmingu á öllu efni sem fer frá sveitarfélaginu út frá uppfærslu á byggðamerki, sveitarfélagið komi fram sem ein held, gömul stofnanamerki verði ekki notuð.Settar hafa verið reglur um notkun byggðamerkisins og lita í öllu efni sem sveitarfélagið sendir frá sér og er til umfjöllunar í næsta lið á dagskrá. Þannig verður letur, litir, heimasíða, útlit auglýsinga, bréfsefni, kynningar, undirskriftir í tölvupósti, o.s.frv. samræmt.b) Upplýsingagjöf almennt til íbúa og viðskiptavina.Í málefna- og samstarfssamningi B-lista og K-lista er sett það markmið að auka gagnsæi, upplýsingaflæði og íbúalýðræði í sveitarfélaginu, sem og efla upplýsinga- og kynningarmál.Til umræðu ofangreint og hvaða leiðir er hægt að fara.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan og meðfylgjandi hönnunarstaðal fyrir Dalvíkurbyggð. Þannig ber öllum stofnunum og fyrirtækjum Dalvíkurbyggðar og starfsfólki að fylgja samþykktum staðli.
b) Lagt fram til kynningar.
4.
Notkun á byggðamerki sveitarfélagsins; tillaga að reglum
Málsnúmer 202507005
Á 1172. fundi byggðaráðs þann 15. janúar sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að reglum um notkun á byggðamerki Dalvíkurbyggðar ásamt upplýsingum um stofnanamerki sem nokkrar stofnanir Dalvíkurbyggðar eru að nota.Sjá einnig;https://www.dalvikurbyggd.is/is/stjornsysla/fjarmal-og-rafraen-stjornsysla/utgefid-efni/byggdamerki-dalvikurbyggdarTil umræðu ofangreint.Friðjón Árni vék af fundi kl. 14:41.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar og byggðaráð felur upplýsingafulltrúa og fjármála- og stjórnsýslusviði að vinna áfram að reglunum samhljóða vinnu við mörkun Dalvíkurbyggðar og uppfærslu á byggðamerki."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð drög að reglum um notkun á byggðamerki sveitarfélagsins sem byggt er á hönnunarstaðli Dalvíkurbyggðar hér að ofan í 3 lið.
Friðjón vék af fundi kl. 14:34.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi reglur um notkun á byggðamerki sveitarfélagsins með áorðinni breytingu á 12. gr.

5.
Álagning fasteignagjalda 2027; nýjar prufur
Málsnúmer 202606054
Á 1188. fundi byggðaráðs þann 13. ágúst sl. var óskað eftir að fá útreikninga á álagningu fasteignaskatts miðað við 0,42, 0,40, 0,38 hvað varðar íbúðarhúsnæði. Einnig að fá útreikninga fyrir atvinnuhúsnæði þar sem miðað er við álagningu fasteignaskatts 1,60, 1,55, 1,50.Meðfylgjandi fundarboði eru útreikningar deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar samkvæmt ofangreindu og samanburður á niðurstöðum.
Lagt fram til kynningar.
6.
Mánaðarlegar skýrslur 2026; janúar - júlí
Málsnúmer 202602002
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðu bókhalds janúar- júlí í samanburði við heimildir við fjárhagsáætlun 2026 fyrir sama tímabil ásamt stöðu launakostnaðar janúar- júlí 2026 í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.
7.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
a) Samantekt eftir fund kjörinna fulltrúa 26.08.2026Á fundinum var farið yfir samantekir fyrir málefnasvið sveitarfélagsins eftir vinnufund kjörinna fulltrúa í gær um fjárhagsáætlun.b) Drög að fjárhagsramma 2027Farið yfir drög að fjárhagsramma 2027 miðað við nýjustu forsendur, sbr. fundur kjörinna fulltrúa í gær.
a) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
8.
Vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins; drög að erindisbréfi.
Málsnúmer 202503032
Á 1189. fundi byggðaráðs þann 20. ágúst sl. var samþykkt að fela deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að uppfæra erindisbréf vinnuhóps um húsnæði byggðasafnsins.Meðfylgjandi eru drög að erindisbréfinu.
Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum ofangreind og meðfylgjandi erindisbréf með þeirri breytingu að skiladagur sé 1. maí 2027.
Benedikt Snær Magnússon situr hjá.
9.
Aðalfundur Flokkun Eyjafjörður ehf.
Málsnúmer 202608103
Tekinn fyrir rafpóstur frá Flokkun Eyjaförður ehf., dagsettur þann 24. ágúst sl., þar sem fram kemur að framundan er að halda aðalfund félgsins þar sem kjörin verður ný stjórn og farið stöðu stöðu og verkefni félagsins. Jafnframt sé tilefni til að ræða framtíð félagsins og hlutverk þess. Í viðhengi eru gögn til upplýsingar, s.s. samþykktir, fundargerð aðalfundar og ársreikningur 2025. Tillaga að fundartíma kemur fljótlega.Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga hafa orðið breytingar á stjórn Flokkunar Eyjafjörður ehf.Flokkun Eyjafjörður ehf. er sameiginlegt félag sveitarfélaganna sjö á Eyjafjarðarsvæðinu.Um árabil hefur sú framkvæmd verið viðhöfð að framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaganna sitji í stjórn félagsins og bæjarstjóri Akureyrarbæjar gegni formennsku stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
10.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi
Málsnúmer 202608107
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 24. ágúst sl., þar sem óskað er umsagnar umsóknar Ungmennafélagsins Atla um tækifærileyfi fyrir dansleiki í tilefni gangna og rétta í Höfða þann 13. september nk.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að umrætt leyfi sé veitt með fyrirvara um umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
11.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202608116
Bókað í trúnaðarmálabók.
12.
Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2026
Málsnúmer 202604015
Lagðar fram til kynningar fundargerði stjórnar Dalbæjar frá 1. júlí sl. og 19. ágúst sl.Einnig fylgdi með fundarboði byggðaráðs ársreikingur Dalbæjar fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerðir Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses árið 2026: fundur stjórnar nr. 70.
Málsnúmer 202608117
Lögð fram til kynningar fundargerð Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses nr. 70 frá 20.ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
14.
Beiðni um tengilið vegna samráðs við starfshóp um ferjuáætlun
Málsnúmer 202608123
Tekið fyrir erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett þann 27. ágúst sl., (áður sent þann 19.06.2026) þar sem óskað er eftir tilnefningum í starfshóp um ferjuáætlun. Í starfshópnum verður sérhæfður hópur sérfræðinga en eftirtaldir aðilar munu eiga sæti í starfshópnum, auk fulltrúa innviðaráðuneytisins:VegagerðinSamgöngustofaAtvinnuvegaráðuneytiðLögð verður sérstök áhersla á samráð við hagaðila við vinnu starfshópsins. Af þeim sökum óskar innviðaráðuneytið eftir að Dalvíkurbyggð sendi ráðuneytinu upplýsingar um formlegan tengilið vegna samráðs við starfshópinn.Hlutverk tengiliða verður, auk þess að taka þátt í samráði við starfshópinn eftir því sem við á og veita honum nauðsynlegar upplýsingar, að yfirfara drög að lokaafurð hópsins áður en hún verður gefin út.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tilnefna sveitarstjóra/hafnastjóra.
15.
Fjölskylduráð - 5; frá 18.08.2026
Málsnúmer 2608001F
Fundargerðin er í 11 liðum.Liður 1 er sér mál á dagskrá.Liður 2 er sér mál á dagskrá.Liður 7 er sér mál á dagskrá.Liður 8 er sér mál á dagskrá.
Lagt fram til kynningar.
15.1 Gjaldfrjáls leikskóli
Stjórnendur leikskóla fara yfir hvernig hafi gengið með gjaldfrjálsan leikskóla og fara yfir hvað margir eru að nýta sér hann.

Tekið fyrir minnisblað frá formanni fjölskylduráðs og sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs, þar sem að lagt er til að ekki verði rukkað fyrir skráningadaga fyrir þau börn sem ekki eru í gjaldfrjálsum leikskóla.
Fjölskylduráð hafnar erindi með fjórum greiddum atkvæðum en einn greiddi með sem var María Björk Stefánsdóttir.

Sérbókun frá Birtu Dís Jónsdóttur:

Skráningardagar voru teknir upp sem hluti af þjónustu leikskólans við þá foreldra sem nauðsynlega þyrftu að vera með börn sín í leikskóla, frekar en að hafa leikskóla lokaða. Það að taka gjald fyrir er ákveðið tæki til þess að stýra þeim fjölda sem óskar eftir vistun þá ákveðnu daga, og eru skráningardagar hafðir þegar mestar líkur eru á að foreldrar geti verið með börnum heima, líkt og á milli jóla og nýárs, eða í sumarfríi. Skráningardagar hafa að hluta til leyst betri vinnutíma starfsfólks á leikskólanumog eru að virka vel þar sem stjórnendur geta með betra móti mætt fjölda barna með mönnun á vakt. Það að foreldrar greiði fyrir vistun barna á ekki að þýða að skráningardagar séu innifaldir, þar sem það eru auka vistunardagar sem greiða þarf sérstaklega fyrir.
Niðurstaða Monika Margrét Stefánsdóttir og Helgi Einarsson leggja til að þessu máli verði frestað og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar ásamt vinnu við endurskoðun á innritunarreglum og gjaldskrá.

Benedikt Snær Magnússon leggur fram eftirfarandi bókun:
"Ég tek undir bókun Birtu Dísar og minni á að skráningardagar eru fyrir þá sem nauðsynlega þurfa. Með því að skráningardagar verði innifaldir í leikskólagjöldum fyrir þá foreldra sem greiða þau er aftur verið að auka álag á leikskólastarfsmenn á þeim tímum sem þeir hafa verið að taka styttingu og með auknum fjölda barna gæti skipulag á mönnun á leikskólunum sett töku þeirra á styttingardögum í uppnám. Ef af verður gæti þurft að hafa leikskólana lokaða fremur en skráningardaga, og þar með verið að veikja tilgang skráningardaganna með skertri þjónustu við þá foreldra barna sem þurfa nauðsynlega að nýta vistun á þessum skráningardögum. Gjaldinu fyrir skráningardaga í Dalvíkurbyggð hefur verið stillt í hóf, en það má nefna að í samanburði við gjaldið í öðrum sveitarfélögum er gjaldið hóflegt."

Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að fresta afgreiðslu, Benedikt Snær greiðir atkvæði á móti.

15.2 Þjónustu samningur við Akureyrarbæ
Elvý Guðríður Hreinsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti fer yfir drög að samningi og hvernig hann muni nýtast stjórnendum í sinni vinnu. Fjölskylduráð samþykkir með 5 greiddum atkvæðum að gengið verði frá samningi við Akureyrarbæ. Niðurstaða Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ofangreindur samningur. Gildistími hans er frá og með 1. ágúst sl. og er ótímabundinn. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 6 mánaða fyrirvara. Kostnaður við samninginn er kr. 175.964 fyrir tímabilið ágúst - desember 2026. Ef þjónustan er meiri en tilgreint er í samningi þá þarf að greiða sérstaklega fyrir það. Innihald samningsns er stjórnunarráðgjöf fyrir leikskólastjóra og ýmis umsýsla.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi samning við Akureyrarbæ.
15.3 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202606078

Bókað í trúnaðarmálabók.
15.4 Endurskoðun á Menntastefnu Dalvíkurbyggðar
Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs þar sem hann óskar eftir að vinna við endurskoðun á Menntastefnu Dalvíkurbyggðar um eitt ár þar sem mikil óvissa er í þeim málaflokki og vinna við endurskoðun á Aðalnámskrá er að fara í gang hjá ráðuneytinu. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að fresta endurskoðun á Menntastefnu Dalvíkurbuyggðar í eitt ár. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
15.5 Starfsmannamál fyrir skólaárið 2026 - 2027
Stjórnendur skólanna fara yfir stöðuna á starfsmannamálum fyrir skólaárið 2026 - 2027. Lagt fram til kynningar
Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
15.6 Starfsmannamál í íbúðakjarna Lokastíg og liðveislu
Þórhalla Karlsdóttir, fer yfir stöðu mála varðandi starfsmannahald í íbúðakjarna Lokastíg og liðveislu. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
15.7 Kynningarbréf frá Berginu og drög að samningi
Tekið fyrir erindi frá Berginu headspace dags. 12.08.2026. Á 3. fundi fjölskylduráðs þann 16. júní var tekið fyrir erindi frá Berginu þar sem samþykktur var samstarfssamningur við þau með þeim skilyrðum að Bergið headspace yrði með viðveru hér á Dalvík eins og á Akureyri, Grenivík og Ólafsfirði. Málinu var vísað til sveitarstjórnar sem samþykkti ákvörðun fjölskyldurráðs á fundi sínum 23.06.2026. Rafbréf barst frá Berginu 12. ágúst 2026 þa sem þau sjá sér ekki fært nema þá í undantekningartilfellum að sinna viðveru á Dalvík, þau ætla að vera með fasta viðveru einn dag á mánuði á Ólafsfirði og þjónustan efld á Akureyri þar sem ungmenni okkar gætu nýtt sér viðtöl flesta daga vikunnar. Bergið headspace er einn starfsmann í þessu verkefni og voru Húsavík og Ólafsfjörður valin þar sem þar eru framhaldsskólar. Jafnframt verður áfram þjónusta á Akureyri og Grenivík. Í fyrirhuguðu samstarfi er þó gert ráð fyrir fræðslu og kynningum fyrir starfsfólk og ungmenni á Dalvík, auk aðgangs að fjarþjónustu Bergsins. Þannig verður sannarlega viðvera og þjónusta í Dalvíkurbyggð, þó ekki í formi reglulegra staðbundinna viðtala. Dalvíkurbyggð er nú eina sveitarfélagið sem á eftir að samþykkja saminginn svo hægt sé að hefja aukna þjónustu á svæðinu. Bergið óskar eftir svörum sem fyrst um hvort þessi útfærsla uppfylli skilyrði sveitarfélagsins fyrir aðkomu að samningnum Fjölskylduráð Dalvíkurbyggðar hafnar erindi með fimm atkvæðum og vísar í fyrra svar að ráðið telur mikilvægt að þessi þjónusta verði veitt í heimabyggð. Niðurstaða Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna afgreiðslu fjölskylduráðs og samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning við Bergið headspace. Byggðaráð tekur undir með fjölskylduráði að það eru vonbrigði að Bergið sér sé ekki fært að vera með viðveru í Dalvíkurbyggð og bindur vonir við að hægt verði að verða við þeim óskum.
15.8 Áform um breytingu á lögum nr. 382018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Lagt er fyrir erindi sem birtist á Samráðsgátt stjórnvalda þar sem kynnt eru áform um breytingu á lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarnandi stuðningsþarfir. Þar kemur margt fram eins og sjá má á fylgigögnum en helstu breytingar á lögunum eru:
* ákvæði um samræmt staðlað mat á umfangi stuðningsþarfa (SIS mat), en matið verður lögfest sem grundvöllum ákvarðana um þjónustu samkvæmt lögum og gerðar verði þjónustuáætlanir byggðar á þessu mati
** lögfest verð lágmarksstærð þjónustusvæða í þjónust við fatlað fólk þannig að hvert þjónustusvæði hafi að minnsta kosti 6.000 íbúa
* í lögunum skal vera sérstakt ákvæði um rétt fatlaðra barna að alast upp hjá fjölskyldum sínum og njóta þjónustu í nærumhverfi
* óheimilt er að innheimta gjald í frístundaþjónustu
* að innleitt verði samræmt og heildstætt mat á húsnæðisþörf fatlaðs fólks
* einstaklingur sem hlotið hafa dómsúrlauns um að sæta lögákveðnum öryggisráðstöfunum skuli njóta forgangs á biðlistum sveitarfélaga eftir húsnæði á þeirra vegum
* viðhalda skal virkt samráð við fatlað fólk og samtök þess með því að starfrækja formlegan vettvang á öllum þjónustusvæðum

Fjölskylduráð Dalvíkurbyggðar tekur undir með sviðsstjóra félagsmálasviðs í umsögn sveitarfélagsins sem send var á samráðsgátt stjórnvalda þann 14.08.2026 og gerir athugasemd við þá tillögu að lögfest verði að hvert þjónustusvæði í málefnum fatlaðra skuli hafa að minnsta kosti 6.000 íbúa. Fjölskylduráð vill eindregið koma á framfæri áhyggjum sínum af þeim áhrifum sem fyrirhugaðar breytingar kunna að hafa á þjónustu við íbúa sveitarfélagsins þar sem ekki er tekið nægilegt tillit til þeirra ólíku aðstæðna sem sveitarfélög búa við. Við mat á þjónustusvæðum þarf ekki einungis að horfa til íbúafjölda heldur einnig til landfræðilegrar legu, vegalengda, aðgengis að þjónustu, faglegu starfi og þeirra tengsla sem byggst hafa upp milli þjónustunotenda og þjónustuaðila. Sú hætta er fyrir hendi að með stækkun þjónustusvæða glatist tengsl þjónustunotenda og þjónustuveitenda og að ákvarðanataka færist fjær íbúum og möguleikum þeirra að hafa áhrif á eigin þjónustu. Dalvíkurbyggð telur að stærra þjónustusvæði leiði ekki sjálfkrafa til betri þjónustu eða meiri hagkvæmni. Þvert á móti getur aukin miðstýring leitt til þess að þjónustan fjarlægist notendur hennar, staðbundin þekking minnki og erfiðara verði að bregðast við þörfum einstaklinga með skjótum og sveigjanlegum hætti. Þegar þjónustan er skipulögð út frá stærri þjónustusvæðum getur skapast hætta á að gæði þjónustu verði metin út frá heildarskipulagi kerfis en ekki horft til þarfa einstaklinganna. Breytingar sem þessar geta einnig flækt stjórnsýsluna og dregið úr sveigjanleika við úrlausn einstakra mála. Sveitarfélög sem þyrftu að stækka þjónustusvæði sín eða sameinast um þjónustu við önnur sveitarfélög gætu glatað mikilvægri staðbundinni þekkingu og tengslum. Fyrir smærri sveitarfélög getur sameining þjónustusvæða leitt til viðbótarkostnaðar þar sem greiða þarf ráðandi sveitarfélagi fyrir stjórn, umsýslu og framkvæmd þjónustunnar. Mikilvægt er að þessi fjárhagslegu áhrif séu metin áður en breytingar eru ákveðnar. Niðurstaða Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að taka undir ofangreinda afgreiðslu fjöldkylduráðs og tekur undir umsögnina.
15.9 Aðsókn og opnunartímar Íþróttamiðstöðvar
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi fer yfir tölur varðandi aðsókn í sund og opnunartíma íþróttamiðstöðvar. Fjölskylduráð þakkar íþróttafulltrúa fyrir góða kynningu. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
15.10 Fjárhagsáætlun 2027
Lögð voru fram til kynningar forsendur með fjárhagsáætlun ársins 2027 sem og tímarammi vegna vinnu við fjárhagsáætlun. Einnig voru lagðar fram til kynninagr starfsáætlanir félagsmálasviðs og fræðslu- og menningarsviðs fyrir yfirstandandi ár Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
15.11 Fjárhagsáætlun 2026 - stöðumat
Sviðsstjórar fara yfir stöðuna á fjárhagsáætlun sviða er tengjast fjölskylduráði fyrir tímabilið janúar-júní 2026 Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 51; frá 18.08.2026
Málsnúmer 2608004F
Fundargerðin er í 8 liðum.Liður 4 er sér mál á dagskrá.
Lagt fram til kynningar.
16.1 Fjárhagslegt stöðumat TÁT 2026
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fara yfir sex mánaða stöðumat fyrir fjárhagsárið 2026. Skólanefnd TÁT þakkar Þorvaldi Eyfjörð Kristjánssyni fyrir yfirferð á sex mánaða stöðumati TÁT fyrir fjárhagsárið 2026. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.2 Kostnaðarskipting sveitarfélaga vegna samrekstur á tónlistarskóla
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir hvernig kostnaðarskipting sveitarfélaga vegna samreksturs er háttað. Skólanefnd TÁT þakkar Gísla Bjarnasyni sviðsstjóra fyrir yfirferð á kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.3 Starfsmannamál hjá TÁT
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri fara yfir stöðugildi á TÁT skólaárið 2026 - 2027. Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.4 Skóladagatal TÁT 2026 - 2027
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT og Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri, fara yfir og leggja fram skóladagatal TÁT fyrir skólaárið 2026 - 2027 til samþykktar. Skólanefnd TÁT samþykkir með tveimur atkvæðum skóladagatal TÁT fyrir skólaárið 2026 - 2027. Niðurstaða Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að skóladagatali TÁT fyrir skólaárið 2026-2027.
16.5 Nemendafjöldi í TÁT skólaárið 2026 - 2027
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT, fer yfir skráningar í tónlistarskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027. Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.6 Upplýsingar um stöðuna á viðhaldsframkvæmdum í Víkurröst og Fjallabyggð
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson, skólastjóri TÁT, fer yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir í Víkurröst í sumar. Haukur fór yfir viðhald sem fór fram á Siglufirði. Skólanefnd TÁT þakkar Þorvaldi og Hauk fyrir upplýsingar varðandi stöðuna á viðhaldi sem farið var í á Víkurröst og húsnæði tónlistarskólans á Siglufirði. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.7 Breytingar á tónmennt í Fjallabyggð
Haukur Orri Kristjánsson, aðstoðarskólastjóri TÁT, fer yfir breytingar á tónmennt í Fjallabyggð næsta skólaár. Lagt fram til kynningar. Boðið verði uppá tónlistargleði fyrir nemendur í Frístund á Siglufirði, einnig verður söngsalur í grunnskólanum fyrir 1. - 5. bekk á Siglufirði. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
16.8 Erindisbréf skólanefndar TÁT og fundaskipulag
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs lagði fram tímasett fundaskipulag skólaárið 2026 - 2027. Skólanefnd TÁT samþykkir með tveimur atkvæðum fundaskipulag TÁT fyrir skólaárið 2026 - 2027. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 159; frá 21.08.2026
Málsnúmer 2608007F
Fundargerðin er í 11 liðum.Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Lagt fram til kynningar.
17.1 Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Verkfundur var haldinn í gær fimmtudaginn 20.ágúst var fundargerð sett undir málið að honum loknum. Sveitarstjóri fór yfir fundargerð verkfundar.
Verkið er á áætlun en fram kom að þar sem mánaðartöf var á því að hægt var að byrja vegna snjóa.
Stefnt er að því að hefja þrýstiprófanir í byrjun september.
Lagt fram til kynningar.
Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.2 Samningur um mælaleigu, þjónustu og notkunarmælingar orkusölumæla
Dalvíkurbyggð er með samning við Frumherja sem er í gildi til febrúar 2029. Þessi þjónusta er kostnaðarsöm og er hafin vinna við að skoða hvað er í stöðunni þegar samningur rennur út. Verkefnastjóra þvert á svið falið að fá heildarlista yfir mæla í notkun til að kanna hvort endurlöggilding hafi átt sér stað frá Frumherja. Í kjölfarið verði leitað álits hjá bæjarlögmanni um næstu skref og túlkun samnings.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.3 Ósk um formlega staðfestingu vatnstökuheimildar Laxóss ehf.
Með fundarboði fylgdi erindi frá Laxós ehf., þar sem þess er óskað að sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar staðfesti með formlegum hætti vatnstöku úr Þorvaldsdalsá. Sveitarstjóra og verkefnastjóra þvert á svið falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.4 Mánaðarlegar skýrslur 2026
Sveitarstjóri kynnti eftirfarandi skýrslur:
Staða bókhalds janúar - júlí 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.
Staða launakostnaðar janúar - júlí 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.
Stöðumat sveitarstjóra vegna fjárhagsáætlunar janúar - maí 2026.




Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.5 Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Sveitarstjóri og verkefnastjóri fert á svið fara yfir fjárfestingar og framkvæmdir á árinu 2026. Yfirlit lagt fram á fundinum. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.6 Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Með fundarboði fylgdi tímarammi vinnu við fjárhagsáætlun.
a) Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslur, forgangsröðun og stefnu.
b) Fundur kjörinna fulltrúa vegna vinnu við fjárhagsáætlun 26. ágúst nk. samkvæmt tímaramma.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.7 Gjaldskrár 2027
Teknar fyrir eftirfarandi gjaldskrár:
a) Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar
b) Gjaldskrá Verbúða
c) Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur
d) Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar
e) Gjaldskrá fráveitu Dalvíkurbyggðar

Gjaldskrár má sjá á heimasíðu Dalvíkurbyggðar
Lagt fram til kynningar.

Óðinn og Stefán fóru af fundi kl. 9:28
Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.8 Nýr vigtarskúr
Á 157. fundi veitu- og hafnaráðs þann 16. júní sl. undir máli 202406129 var eftirfarandi bókað:
Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að byggja nýtt vigtarhús á grunni þess gamla og felur sveitarstjóra að vinna að málinu eins hratt og auðið er."

Þá bókaði sveitarstjórn undir sama máli eftirfarandi:
Til máls tóku: Benedikt Snær Magnússon. Börkur Þór Ottósson. Helgi Einarsson.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs, þ.e. að sveitarstjóra er falið að vinna að málinu eins hratt og auðið er. Börkur Þór Ottósson, Benedikt Snær Magnússon og Auður Olga Arnarsdóttir greiða atkvæði á móti. Samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun þá er gert ráð fyrir hönnunarkostnaði árið 2026 og framkvæmdum/fjárfestingum á árinu 2027.

Fyrir fundinum liggur minnisblað hafnarstjóra/sveitarstjóra.
Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram, samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.9 Ferjubryggja Árskógssandur, viðgerð
Með fundarboði fylgdi minnisblað Vegagerðarinnar, ástandsskoðun á ferjubryggju á Árskógssandi, með tillögum að úrbótum. Jafnframt kemur fram að koma þurfi þessari framkvæmd inn á Samgönguáætlun næst þegar hún verður endurskoðuð. Veitu- og hafnaráð leggur mikla áherslu á að farið sé í þessa framkvæmd sem fyrst, sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.10 Skýrsla um úttekt á Dalvíkurhöfn
Með fundarboði fylgdi skýrsla um reglubundna úttekt/eftirlit á Dalvíkurhöfn, sem gerð var 2.júlí sl. Úttektin var án frávika og athugasemda. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
17.11 Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, kynningarbréf
Með fundarboði fylgdi kynningarbréf frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem stjórn óskar eftir að það verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn. Þess er vinsamlegast óskað að meðfylgjandi skjöl verði send öllum sveitarstjórnarfulltrúum og jafnframt lögð fyrir þær nefndir eða ráð sveitarfélagsins sem fara með málaflokka er tengjast sjávarútvegi.
Dalvíkurbyggð er aðili að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.

Sveitarstjóri hefur sent meðfylgjandi bréf til allra sveitarstjórnarfulltrúa í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.