Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1189. fundur
20. ágúst 2026
kl.
13:15
-
15:12
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Bessi Ragúels Víðisson
varamaður
Erla Björk Jónsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2027; innkomin erindi
Í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og þriggja ára áætlun var auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar. Lagt er til að teymi starfsmanna eftir eðli og innihaldi erinda fundi um erindin þar sem markmiðið er að koma með tillögu að í hvaða ferli erindin verða sett og/eða tillögu að afgreiðslu. Markmiðið er að þau verði undirbúin eins og hægt er til umfjöllunar og afgreiðslu áður en þau fara fyrir viðkomandi fagráð. Gagna og upplýsinga verði aflað eftir því sem metin er þörf á.Skilafrestur var til og með 17. ágúst sl.https://www.dalvikurbyggd.is/frettir/fjarhagsaaetlunargerd-2027-4https://www.dalvikurbyggd.is/frettir/fjarhagsaaetlunargerd-2027-3Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um að
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu hvað varðar breytt verklag.
2.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Sundfélaginu Rán; yfirbreiðsla yfir sundlaug Dalvíkur
Tekið fyrir erindi frá Sundfélaginu Rán, dagsett þann 22. júlí sl., þar sem félagið óskar eftir að Dalvíkurbyggð komi upp yfirbreiðslu fyrir Sundlaug Dalvíkur. Með yfirbreiðslu yfir haust- og vetrartíma myndi hitastig vatns í lauga verða stöðugra og minni vindkæling.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
3.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Unni Valgeirsdóttur; infrarauður klefi
Tekið fyrir erindi frá Unni Valgeirsdóttur, dagsett þann 25. júní sl, þar sem bent er á lýðheilsulegan ávinning bæjarbúa ef settur yrði upp innfrarauður klefi í Íþróttamiðstöðinni.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
4.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Lenku Uhrová; frá sjósundhópi
Tekið fyrir erindi frá Lenku Uhrová, dagsett þann 16. ágúst sl., þar sem hún sem meðlimur í óformlegu sjósundhópi fylgir eftir máli nr. 202206095 til að tryggja að þaðverði sett tilheyrandi fjármagn í fjárhasáætlun fyrir næstu ár til að byggja upp aðstöðu austur á sandi.Málið var tekið fyrir í byggðaráði þann 23. júní 2022 og því vísað áfram til íþrótta- og æskulýðsráðs.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
5.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Kvenfélaginu Tilraun; endurbætur á Tunguseli
Tekið fyrir erindi frá Kvenfélaginu Tilraun, dagsett þann 13. ágúst sl., þar sem óskað er eftir fjárstuðningi frá Dalvíkurbyggð vegna vinnu við endurbætur á húsnæði félagsins Tunguseli við Tungurétt. Meðfylgjandi er kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
6.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Sjómannadeginum í Dalvíkurbyggð; beiðni um styrk vegna Sjómannadags
Tekið fyrir erindi frá Sjómannadagsnefd Dalvíkurbyggðar, móttekið 10. ágúst sl. þar sem óskað er eftir föstum árlegum fjárstuðningi til Sjómannadagsins fyrir árin 2027-2030. Óskað er eftir kr.1.000.000 í styrk næstu fjögur árin sem og húsaleigu vegna árshátíðar Sjómanna og Landkrabba. Meðfylgjandi er áætlun fyrir verkefnið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
7.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Whale Music Festival ehf.; Ósk um samstarf við uppbyggingu tónlistar-, lista- og þekkingarhátíðar
Tekið fyrir erindið frá Whale Music Festival ehf., þar sem óskað er eftir samstarfi við uppbyggingu Whale Music Festival á Dalvík fyrir tímabilið 2027-2030. Óskað er eftir fjárframlagi að upphæð kr. 5.000.000 árið 2027 og langtímasamstarfi við Dalvíkurbyggð. Meðfylgjandi er lýsing á verkefninu og áætlaður kostnaður.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
8.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Miðgarði Akstursíþróttafélagi; Samstarfstillaga - uppbygging akstursíþrótta
Tekið fyrir erindi frá Miðgarði Akstursíþróttafélagi, þar sem lögð er til samstarfstillaga við Dalvíkurbyggð hvað varðar uppbyggingu akstursíþrótta og útivistar í Dalvíkurbyggð.a) Dalvík Snocross og Dalvík FjallarallMarkmið verkefnisins er að efla Dalvík Snocross og Dalvík Fjallarall enn frekar með því að bæta aðstöðu, styrkja umgjörð og fjölga gestum.Óskað er eftir 500.000 kr. samstarfsframlagi. b) MotocrossFélagið vill hefja undirbúning að framtíðarsvæði fyrir motocross í Dalvíkurbyggð. Verkefnið felur í sér val á svæði, frumhönnun, samráð og undirbúning skipulags.Óskað er eftir 500.000 kr. samstarfsframlagi.c) FjallahjólastígarMiðgarður vill vinna með Dalvíkurbyggð að kortlagningu, uppbyggingu og endurbótum á fjallahjólastígum.Markmiðið er að styrkja útivist, efla ferðaþjónustu og skapa fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa og gesti.Óskað er eftir 500.000 kr. samstarfsframlagi.d) RekstrarsamningurFélagið óskar eftir að hefja samstarf við Dalvíkurbyggð um rekstrarsamning sambærilegan þeim sem önnur íþróttafélög njóta. Með því skapast grundvöllur fyrir reglulegum æfingum, auknu öryggi og skipulögðu starfi fyrir börn, ungmenni og fullorðna.Óskað er eftir 500.000 kr. rekstrarframlagi.Miðgarður leggur fram að lágmarki sambærilegt framlag í formi eigin fjár, styrkja, vinnuframlags og sjálfboðaliðastarfsMeðfylgjandi er ársreikningur félagsins 2025 ásamt lögum félagsins.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
9.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Ungmennafélagi Svarfdæla- knattspyrna, Ráðing á starfsmanni fyrir knattspyrnuna
Tekið fyrir erindi frá Ungmennafélagi Svarfdæla, dagsett þann 16. ágúst sl., þar sem stjórn Knattspyrnudeildar Dalvíkur/Reynis (m.fl kk og kvk) og stjórn Barna- og unglingaráðs Knattspyrnudeildar Dalvíkur óska eftir aðkomu Dalvíkurbyggðar í ráðningu á starfsmanni fyrir knattspyrnuna. Meðfylgjandi er lýsing á verkefnum framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar, drög að starfslýsingu og áætlaður kostnaður vegna starfsins.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
10.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Golfklúbbnum Hamar; beiðni um styrk til framkvæmda á Arnarholtsvelli
Tekið fyrir erindi frá Golfklúbbnum Hamar, dagsett þann 13. ágúst sl., þar sem óskað er eftir styrk til framkvæmda á Arnarholtsvelli, kr. 10.000.000 árið 2027 og síðan samtals kr. 20.000.000 fyrir árin 2028-2030. Um er að ræða framkvæmdir er varða áframhaldandi vegferð að bæta völlinn og aðstöðuna í hægum viðráðanlegum skrefum samkvæmt hugmyndum og áætlununum unnum af Edwin Roald golfvallahönnuði.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
11.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Ungmennafélagi Svarfdæla- fimleikar; beiðni um styrk vegna kaupa á búnaði
Tekið fyrir erindi frá fimleikadeild Ungmennafélags Svarfdæla, dagsett þann 11. ágúst sl., þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 1.500.000 fyrir endurnýjun og kaupum á nýjum áhöldum fyrir félagið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
12.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Lenku Uhrová; ræktun á lífrænum mat fyrir skóla
Tekið fyrir erindi frá Lenku Uhrová, dagsett þann 17. ágúst sl., þar sem lagt er til að sett verði í fjárhagsáætlun tilraunaverkefni sem mun hjálpa að innleiða meira af lífrænum mat úr héraði í skólann og leikskólann (lífrænir ávextir, grænmeti, brauð sem er gert á staðnum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
13.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Stærri- Árskógskirkju; lagfæring og malbikun á veg
Tekið fyrir erindi frá formanni sóknarnefndar Stærri-Árskógsskirkju, dagsett þann 15. ágúst sl., þar sem óskað er eftir því að Dalvíkurbyggð setji í fjárhagsáætlun næsta ár að gera verði ráð fyrir að lagfæra og malbika veginn upp að kirkjunni, og gera það vel svo ekki þurfi að fara í lagfæringar við hann næstu árin.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
14.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Íbúasamtökum á Árskógssandi; ábendingar frá íbúaráði
Tekið fyrir erindi frá Íbúasamtökum á Árskógssandi, dagsett þann 10. ágúst sl.,þar sem fram koma ábendingar frá íbúaráði og óskað er eftir að gert sé ráð fyrir þeim í fjárhagsáætlun 2027. Ábendingar varða gangstéttar, ljósastaura, biðskýli, hraðaskilti, dælustöð, bakki við höfn, drena tún, lúpínuátak og flotbryggju.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
15.
Fjárhagsáætlun 2027; Frá Hauki Guðjónssyni; hundasvæði
Tekið fyrir erindi frá Hauki Guðjónssyni, dagsett þann 26. júní sl., þar sem hann leggur til að fjármagni og landi verðir úthlutað í gerð afgirts hundasvæðis á jafnsléttur. Fram koma tillögur um stærð og mögulega staðsetningu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til teymis starfsmanna til skoðunar og úrvinnslu fyrir fundi fagráða og byggðaráðs.
16.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Á 1188. fundi byggðaráðs þann 13. ágúst sl. var m.a. eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi skýrsla og samantekt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs yfir þróunmálaflokka og deilda 2023-2026 og farið var yfir hana á fundinum.a)Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslur, forgangsröðun og stefnub) Umræður um tillögur að verklagi, fjárhagsleg markmið, áhættumat.c) Fundur kjörinna fulltrúa vegna vinnu við fjárhagsáætlun 26. ágúst nk. samkvæmt tímaramma."Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór fyrir skýrslur yfir þróun stöðugilda og launakostnaðar 2022-2026 vegna undirbúnings vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun.
Lagt fram til kynningar.
17.
Vinnuhópur um húsnæði byggðasafnsins; endurskipan
Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Á 1178. fundi byggðaráðs þann 24. mars sl. var m.a. eftirfarandi bókað:Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Fanney Hauksdóttir, arkitekt, og fulltrúar í vinnuhópi um húsnæði byggðasafns, Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, Emil J. Einarsson, Lovísa María Sigurgeirsdóttir, formaður menningarráðs, Björk Eldjárn Kristjánsdóttir, kl. 14:00.Til umræðu fyrirliggjandi tillögur og hugmyndir að nýbyggingu byggðasafns við Menningarhúsið Berg.Fanney, Helga Íris, Emil, Lovísa María, Björk og Gísli viku af fundi kl. 14:40.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærðar tillögur að hugmyndum að nýbyggingunni þar sem búið er að setja innbreytingar frá fundi vinnuhópsins þann 10. mars sl.Helga íris vék af fundi kl. 14:36.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að taka saman gögn til birtingar tilupplýsingar fyrir íbúa á vefmiðlum Dalvíkurbyggðar og þar á meðal skýrslu vinnuhópsins."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu ofangreind gögn ásamt fundargerðum vinnuhópsins.
Formaður byggðaráðs leggur til að vinnuhópinn skipi forstöðumaður safna og Bergs, deildarstjóri Eigna-og framkvæmdadeildar og einn fulltrúi frá hverjum flokki sem eru eftirfarandi samkvæmt tilnefningu:
Emil J. Einarsson áfram fyrir hönd K-listann.
Börkur Þór Ottósson fyrir A-listann.
Monika Margrét Stefánsdóttir fyrir B-listann.
D-listinn afþakkar sæti í vinnuhópnum.
Bessi Ragúels Víðisson leggur fram eftirfarandi bókun:
"Við í D - listanum afþökkum sæti í vinnuhóp um byggðasafn. Okkur finnst forgansröðun meirihlutans á villigötum þar sem mun brýnari verkefni þurfa að vera í sjóndeildarhringnum. Eins og slökkvistöð, framtíð húsnæðismála á fræðslusviði sem og styrking á innviðum hitaveitunar. Öryggismál og grunnstoðir sveitarfélagsins verða að vera í forgangi."
Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að fela deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að uppfæra erindisbréf vinnuhópsins.
Byggðaráð samþykkir jafnframt með 2 atkvæðum ofangreinda tillögu að skipun vinnuhópsins
Bessi Ragúels Víðisson greiðir atkvæði á móti.

18.
Frá SSNE; Viðbygging fyrir verknámsaðstöðu VMA; samningur
Á 1187. fundi byggðaráðs þann 30. júlí sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdi tölvupóstur frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, bæjarstjóra á Akureyri. Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá framkvæmdastjóra SSNE, dagsettur þann 14. águst sl., þar sem teknir eru saman punktar varðandi áform um viðbyggingu við VMA.Meðfylgjandi er einnig samningur frá 17. maí 2024 sem þáverandi barna- og menntamálaráðherra gerði við VMA og sveitarfélögin við Eyjafjörð um viðbyggingu fyrir verknámsaðstöðu við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.
19.
Fyrirspurn um gagnaver í Dalvíkurbyggð
Á 5. fundi framkvæmdaráðs þann 13. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:Lögð fram til umræðu fyrirspurn um hugsanlega lóð fyrir gagnaver í Dalvíkurbyggð.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að afla nánari upplýsinga.
20.
Framkvæmdaráð - 5; frá 13.08.2026
Fundargerðin er í 18 liðum.Liður 4 er sér mál á dagskrá, mál 202205033.Liður 12 er sér mál á dagskrá; mál 202607052.
Lagt fram til kynningar.