Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1188. fundur
13. ágúst 2026 kl. 13:15 - 15:40
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202607186
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030;
Málsnúmer 202605002
Á 1186. fundi byggðaráðs þann 9. júlí sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdi samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar. Sveitarstjóri fer yfir tímaramma vinnu við fjárhagsáætlun.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi skýrsla og samantekt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs yfir þróun málaflokka og deilda 2023-2026 og farið var yfir hana á fundinum.a)Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslur, forgangsröðun og stefnu b) Umræður um tillögur að verklagi, fjárhagsleg markmið, áhættumat.c) Fundur kjörinna fulltrúa vegna vinnu við fjárhagsáætlun 26. ágúst nk. samkvæmt tímaramma.
Lagt fram til kynningar.
3.
Álagning fasteignagjalda 2027; framhald umfjöllunar
Málsnúmer 202606054
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi upplýsingar um fasteignamat 2027 eftir sveitarfélögum skv. upplýsingum af heimasíðu HMS.Fyrir Dalvíkurbyggð er breytingin eftirfarandi á milli áranna 2026 og 2027 eða 4,1% að meðaltali:Íbúðareignir 3,1%Sumarhús 4,1%Atvinnueignir 7,0%Stofnanir og samkomustaðir 7,2%Jarðir 4,5%Óbyggðar lóðir og lönd 6,9%Aðrar eignir 6,5%4,10%Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig prufuálagning 2027 miðað við nýtt fasteignamat 2027 og óbreyttarforsendur.Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."
Byggðaráð óskar eftir að fá útreikninga á álagningu fasteignagjalda miðað við 0,42, 0,40, 0,38 hvað varðar íbúðarhúsnæði.
Varðandi atvinnuhúsnæði að miðað sé útreikninga við 1,60, 1,55, 1,50.
4.
Stöðumat stjórnenda janúar- júní 2026
Málsnúmer 202607074
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi stöðumat stjórnenda vegna samanburðar bókhalds við heimildir í fjárhagsáætlun janúar - júní 2026.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir skil stjórnenda.
Lagt fram til kynningar.
5.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Sjá sbr. lið 4 hér að ofan og mál 202607074Með fundarboði byggðaráðs fylgi skýrsla yfir raunlaunakostnað janúar - júní í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun fyrir sama tímabil.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir skýrsluna.
Lagt fram til kynningar.
6.
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29.08.2026; ákvörðun um fjölda kjördeilda og kjörstað.
Málsnúmer 202606018
Lögð fram eftirfarandi tillaga:"Ákvörðun sveitarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst nk., sbr. 11. gr. III. kafla kosningalaga nr. 112 frá 25. júní 2021 og sbr. 78 gr. XIII. kafla sömu laga, með síðari breytingum.Sbr. 11. og 78. gr. kosningalaga nr. 112 frá 25. júní 2021 með síðari breytingum samþykkir sveitarstjórn eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og verður hún í Dalvíkurskóla, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og að það verði ein kjördeild í Dalvíkurbyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. og að hún verði í Dalvíkurskóla.
7.
Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Endurnýjun á gólfefni í sal Íþróttamiðstöðvar; tilboð og viðaukabeiðni
Málsnúmer 202606043
Á 1186. fundi byggðaráðs þann 9. júlí sl. var m.a. eftirfarandi bókað:"Niðurstaða : a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verð til samninga við Horn í horn ehf. á grundvelliofangreinds tilboðs um kaup og lagningu á nýju gólfefni í Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 29 við fjárhagsáætlun2026, þannig að fjárfestingaáætlun vegna endurnýjunar á gólfefni hækki um kr. 16.000.000 og á móti lækkifjárfestingaáætlun vegna saunaklefa um sömu upphæð, breytingin er innan 32200-11603."a) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 11. ágúst sl., þar sem fram kemur að deildarstjóri auglýsti eftir tilboðum í upptekt og förgun á gólfefni í sal Íþróttamiðstöðvar á heimasíðu sveitarfélagsins nú nýverið. Óskað var eftir tilboðum í verkið í heild sinni þ.e. upptekt á tveimur lögum af krossviðsplötum á gúmmípúðum, gúmmíundirlagi og dúk á svæði sem er 1.100 fermetrar að stærð. Inni í tilboðinu var líka förgun á gólfefninu.Tilboðum átti að skila inn rafrænt á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is í síðasta lagi mánudaginn 10. ágúst 2026.Tvö tilboð bárust í verkið:EB ehf. Kr. 5.335.000Tréverk hf. Kr. 4.780.000Deildarstjóri leggur til að gengið verði til samninga við Tréverk hf um verkið á grundvelli lægra tilboðs þeirra.b) Þessu tengt óskar deildarstjóri eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 þar sem fjármagn á deild 32200 Eignir Eignasjóðs og lykil 11900 Gatnakerfi - nýframkvæmdirverði lækkað sem nemur kr. 5.000.000 og fært á lykil 11603 Íþróttamannvirki á sömu deild.Þau verkefni sem lagt er til að lækka fjármagn til eru:-Útsýnisstaðir í Dalvíkurbyggð E2605. Verkefni fellt niður. Kr. 3.000.000. (Næst ekki)-Árskógarskóli, skólalóð E2603. Lækkað um kr. 2.000.000. (Verkefni enn í hönnun)
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við lægst bjóðanda sem er Tréverk ehf vegna upptektar og förgun á gólefni í sal Íþróttamiðstöðvar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum beiðni um viðauka, viðauka nr. 32 (viðauki nr. 31 er vegna heildarviðauka I) við fjárhagsáætlun 2026, þannig að liður 32200-11603 hækki um kr. 5.000.000 og á móti verði liður 32200-11900 lækkaður um sömu fjárhæð, annars vegar verk E2605 að upphæð kr. 3.000.0000 og hins vegar verk E26003 að upphæð kr. 2.000.000.
8.
Heiti stofnana og fyrirtækja Dalvíkurbyggðar-samræming
Málsnúmer 202606055
Til umræðu samræming á heitum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins þannig að almennt beri þær heiti sem undirstrika sameinað sveitarfélag, eftir því sem við á.
Byggðaráð vísar ofangreindu til stjórnendafundar til umfjöllunar og skoðunar.
9.
Frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum
Málsnúmer 202602077
Á 1187. fundi byggðaráðs þann 30. júlí sl. var eftirfarandi bókað:"Forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar hefur óskað eftir fundi með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra vegna fyrirhugaðra breytinga í tengslum við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Um er að ræða breytingar á reglugerðum til einföldunar eftirlits, málið er í samráðsgátt stjórnvalda til 17.ágúst nk. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi yfirlit yfir þau verkefni sveitarfélaga sem verða hjá sveitarfélögunum frá og með 1.janúar 2027.Lagt fram til kynningar."Tekinn fyrir rafpóstur frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu, dagsettur þann 28. júlí sl., í gegnum SSNE.Vísað er bréfs SSNE, dags. 9. júlí sl., til ráðuneytisins í tilefni af nýsamþykktum lögum er varða breytingu á stjórnsýslu þess eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum sem heilbrigðisnefndir og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa sinnt. Í bréfinu er komið inn á næstu skref við yfirfærslu verkefna, verkefni sem verða áfram hjá sveitarfélögum og þjónustu við atvinnulíf og sveitarfélög. Í ljósi þess að Umhverfis- og orkustofnun (UOS) tekur yfir verkefni er lúta að hollustuháttum og heilbrigðiseftirliti næstu áramót hefur stofnuninni verið falið það verkefni að innleiða breytingarnar með öllum viðkomandi aðilum og hefur stofnunin unnið að þeim þétt með öðrum viðkomandi stofnunum varðandi matvælaþáttinn. Samkvæmt upplýsingum frá forstjóra UOS þá átti stofnunin fund með fulltrúum Landshlutasamtaka sveitarfélaga nýverið þar sem rædd voru næstu skref við yfirfærslu þessara verkefna. Varðandi verkefni sem verða áfram hjá sveitarfélögum þá hafa öll verkefni heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirlits sem fram koma í reglugerðum verið kortlögð og liggja fyrir tillögur að tilfærslu þeirra verkefna í reglugerðardrögum sem hafa verið birt í samráðsgátt. Sveitarfélögum er í sjálfsvald sett hvernig þau vinna þau verkefni sem þeim verða falin, en í breytingalögunum er að finna heimild fyrir sveitarfélög að hafa samvinnu sín á milli um framkvæmd þessara verkefna, t.d. með því að fela byggðasamlagi eða öðru sveitarfélagi framkvæmdina. UOS hefur nú þegar farið yfir það hvaða verkefni þetta eru með fulltrúum landshlutasamtaka og kynnt þau með glærum. https://island.is/samradsgatt/mal/4260
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að senda inn umsögn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
10.
Aðalfundur Leigufélagsins Bríetar ehf.
Málsnúmer 202604028
Tekinn fyrir rafpóstur frá Leigufélaginu Bríet ehf., dagsettur þann 31. júlí sl., þar sem meðfylgjandi er ársreikningur félagsins 2025 ásamt fimm ára fjárhagsáætlun.Eignahlutur Dalvíkurbyggðar er 3%.
Lagt fram til kynningar.