Byggðaráð Dalvíkurbyggðar
1185. fundur
2. júlí 2026
kl.
13:15
-
14:55
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Börkur Þór Ottósson
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar; Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 13:15.Á 390. fundi sveitarstjórnar þann 12. maí sl. voru fyrirliggjandi útboðsgögn vegna útboðs á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029 samþykkt samhljóða.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra, dagsett þann 30. júní sl., þar sem farið er yfir ferli útboðsins. Útboð á Vetrarþjónustu fyrir Dalvíkurbyggð var auglýst frá 19. maí með tilboðsfrest til 22. júní 2026. Útboðinu var skipt í tvo samningshluta, annars vegar þjónusta á Dalvík (samningshluti 1) og hins vegar þjónusta á Hauganesi og Árskógssandi (samningshluti 2). Ráðgjafi hjá Consensa sá um vinnu við útboðsgögn og að auglýsa útboðið. Ráðgjafi Consensa tók einnig á móti og opnaði tilboð og sá um mat á tilboðum í samvinnu við deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar. Tvö tilboð bárust í Samningshluta 1 frá EB ehf. og Steypustöðinni á Dalvík. Fjögur tilboð bárust í Samningshluta 2 frá EB ehf., G. Hjálmarssyni hf., Kötlu ehf., og Steypustöðinni á Dalvík. Eftir yfirferð og mat á tilboðum er lagt til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda sem er Steypustöðin á Dalvík um framkvæmd Vetrarþjónustu í Dalvíkurbyggð 2026 - 2029 á grundvelli tilboða, bæði í Samningshluta 1 og Samningshluta 2.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og samþykkir að gengið verði til samninga við Steypustöðina á Dalvík á grundvelli tilboðs bæði um Samningshluta 1 og Samningshluta 2 vegna Vetrarþjónustu í Dalvíkurbyggð 2026-2029.
2.
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla; drög að erindisbréfi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar
Á 392. fundi sveitarstjórnar þann 23. júní sl. var samþykkt að fela deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn um skólalóðir í Dalvíkurskóla og Árskógarskóla.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að erindisbréfi frá deildarstjóra.Helga Íris vék af fundi kl. 13:30.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að erindisbréfi vinnuhópsins, með þeirri breytingu að Gittu Unn Ármannsdóttir verði bætt við í vinnuhópinn samkvæmt tillögu fjölskylduráðs.
3.
Mótorkrosssvæði - aðstaða
Til umræðu aðstaða og staðsetning fyrir mótorkross.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til skoðunar hjá framkvæmdaráði.
4.
Frá skipulagsfulltrúa; Kambhóll - umsókn um stækkun húss
Á 389. fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl sl. var eftirfarandi samþykkt:"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir aðgerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem lóðinni Kambhól verði breytt úr íbúðarsvæðií blandaða notkun íbúðarsvæðis / miðsvæðis.Að mati sveitarstjórnar er um óverulega breytingu að ræða í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010þar sem breytingin hefur hvorki í för með sér verulegar breytingar á landnotkun né er hún líkleg til að hafa mikil áhrifá einstaka aðila eða stór svæði."Tekið fyrir erindi, dagsett 18.mars 2026, þar sem Eyrún Anna Finnsdóttir f.h. Bergmanna ehf. sækir um stækkun hússins Kambhóls við Karlsrauðatorg á Dalvík. Fyrirhugað er að reisa viðbyggingu við íbúðarhús. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Að mati byggðaráðs er ekki talin þörf á grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem áformin varða ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa Kambhóls.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
5.
Frá HMS; Staðfesting frá Dalvíkurbyggð á stofnframlagi, Brák íbúðafélag hses.
Tekið fyrir erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), dagsett þann 26. júní sl., þar sem fram kemur að borist hefur umsókn frá Brák íbúðafélagi hses. í úthlutun 2026-2 um stofnframlag ríkisins á grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Sótt er um vegna byggingar á 8 íbúðum á Dalvík fyrir tekju- og eignalága. Með erindi þessu er óskað eftir staðfestingu sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar á stofnframlagi sveitarfélags vegna kaupanna. Í því samhengi er bent á að það er forsenda fyrir veitingu stofnframlags ríkisins að sveitarfélag þar sem almenn íbúð verður staðsett veiti umsækjanda jafnframt stofnframlag sveitarfélags, sbr. 7. mgr. 11. gr. laga nr. 52/2016.Ef sveitarfélagið hyggst veita stofnframlag sitt til verkefnisins er jafnframt óskað eftir upplýsingum um form stofnframlags og sundurliðun á fjárhæð þess, sbr. viðhengt skjal,einnig er óskað eftir fundarbókun byggðaráðs.Umsókn verður ekki afgreidd fyrr en staðfesting sveitarfélags liggur fyrir og því er óskað eftir staðfestingu sem fyrst.Á 392. fundi sveitarstjórnar þann 23. júní sl. var samþykkt samhljóða að verða við umsókn frá Brák íbúðafélagi um stofnframlag að upphæð kr. 46.920.000 í ofangreint verkefni og sveitarstjóra falið að undirbúa viðaukabeiðni til byggðaráðs varðandi stofnframlagið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að útfæra stofnframlag Dalvíkurbyggðar og sundurliðun fjárhæðar þess í samræmi við meðfylgjandi skjal frá HMS sem og að leggja fyrir viðaukabeiðni til byggðaráðs sem endurspeglar útfærsluna á stofnframlaginu.
6.
Frá slökkviliðsstjóra; Beiðni um viðauka vegna búnaðarkaupa
Tekið fyrir erindi frá slökkviliðsstjóra, dagsett þann 24. júní 2026, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna búnaðarkaupa. Óskað er eftir kr. 1.783.760 vegna endurnýjunar á þurrkskáp og loftpressu á lið 07210-2810. Meðfylgjandi er einnig uppfærð búnaðarkaupabeiðni.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 28 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 07210-2810 hækki um kr. 1.783.760. Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
7.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
a) Forsendur með fjárhagsáætlun.Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð drög að forsendum Dalvíkurbyggðar með fjárhagsáætlun 2027. Í forsenduskjalinu er nokkrar forsendur sem byggðaráð þarf sérstaklega að taka afstöðu til.b) Drög að ramma 2027 Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög#1, frumdrög, að fjárhagsramma 2027 vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2027.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að forsendum Dalvíkurbyggðar með fjárhagsáætlun 2027 eftir yfirferð og með breytingum sem gerðar voru á fundinum. Forsenduskjalið verður tekið fyrir og uppfært ef/þegar ytri forsendur breytast og/eða ef byggðaráð endurmetur innri forsendur.
b) Lagt fram til kynningar. Samkvæmt tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun þá verður fjárhagsrammi lagður fram næst 27. ágúst, 3. september er tillaga lögð fram til afgreiðslu og þann 10. september nk. er gert ráð fyrir að byggðaráð staðfesti fjárhagsramma 2027.

8.
Frá Landssambandi eldri borgara; Öldungaráð - erindi til nýkjörinna sveitarstjórna
Tekið fyrir erindi frá Landssambandi eldri borgara (LEB), dagsett þann 23. júní sl., þar sem í viðhengi er að finna áhersluatriði sem LEB setti fram fyrir síðustu sveitarstjórnakosningar ásamt erindi frá sambandinu varðandi það áríðandi mál að skipa í Öldungaráð sveitarfélaga (hafi það ekki verið gert nú þegar). Þess er óskað að sveitarfélagið kynni sér þetta efni vel og bregðast við hafi Öldungaráð ekki verið skipað. Jafnframt er það ítrekað sem kemur fram í niðurlagi bréfsins að Landssambandið hvetur sveitarstjórnir til á leggja áherslu á öflugt starf Öldungaráðs frá upphafi kjörtímabils og sambandið er reiðubúin til frekara samtals og samstarfs um þessi málefni.Samkvæmt Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar þá er Öldungaráð starfandi sem samstarfsvettvangur; Sveitarstjórn kýs þrjá fulltrúa í öldungaráð skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999, sbr. lög nr. 38/2018. Öldungaráð er skipað 3 fulltrúum byggðaráðs, 3 fulltrúum frá Félagi eldri borgara og 1 fulltrúa frá HSN. Starfsmaður ráðsins er sviðsstjóri félagsmálasviðs. Fundir Öldungaráðs fara fram á fundum byggðaráðs þar sem sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sitja einnig fundinn.Samkvæmt málefna- og samstarfssamningi á milli K-lista og B-lista framsóknarmanna og óháðra 2026-2030 þá er gert ráð fyrir að Öldungaráð verði að fastanefnd innan sveitarfélagsins. Gera þarf þá breytingar á Samþykktum um stjórn Dalvíkurbyggðar með tveimur umræðum í sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.
9.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Framboð til stjórnar Sambandsins
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 26. júní sl.,þar sem fram kemur að kjörnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga er tekin til starfa, en á næsta landsþingi Sambandsins verður kosin ný stjórn í samræmi viðsamþykktir þess.Kjörnefnd óskar eftir því að þeir fulltrúar í sveitarstjórnum sem hafa áhuga á að gefa kost á sér til setu í stjórn Sambandsins tilkynni um það.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegsfyrirtækja 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 98 frá 12. júní sl.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fjölskylduráð - 4; frá 30.06.2026
Fundargerðin er í 14 liðum.
Liður 11.1 er sér mál á dagskrá, mál 202603039.
Liður 11.2 er sér mál á dagskrá, mál 202502063.
Liður 11.4 er sér mál á dagskrá; mál 202502144.
Liður 11.1 er sér mál á dagskrá, mál 202603039.
Liður 11.2 er sér mál á dagskrá, mál 202502063.
Liður 11.4 er sér mál á dagskrá; mál 202502144.
11.1
Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027
Ósk um breytingu á skóladagatali leikskólans á Krílakoti.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á skóladagatali Krílakots fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Niðurstaða
Samkvæmt minnisblaði leikskólans, dagsett þann 26. júní sl., þá er óskað breytingar á skóladagatali Krílakots vegna fyrirhugaðrar námsferðar starfsmanna Krílakots þannig að tveir skipulagsdagar ferði færðir en það eru dagarnir 22. febrúar og 4. júní og færa þá sitt hvoru megin við Uppstigningardag þ.e. dagana 5. maí og 7. maí. Einnig er þess óskað að setja inn í dagatalið starfsdag Dalvíkurbyggðar en þá myndi leikskólinn loka kl 12:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og samþykkir umbeðnar breytingar á skóladagatali Krílakots.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og samþykkir umbeðnar breytingar á skóladagatali Krílakots.
11.2
Samningu um skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, rannsóknir og úttektir
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir drög að samningi um skólaþjónustu við Háskólann á Akureyri.
Einnig tekið fyrir minnisblað frá sviðstjóra og stjórnendum skóla. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að ganga til samninga við Miðstöð skólaþróunnar Háskólans á Akureyri til þriggja ára. Niðurstaða Samkvæmt meðfylgjandi samningsdrögum er um að ræða samning á milli Dalvíkurbyggðar og Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri um skólaþjónustu við leik- og grunnskóla Dalvíkurbyggðar, rannsóknir og úttektir á skólastarfi.Miðstöð skólaþróunar HA (MSHA) tekur að sér að veita leik- og grunnskólum í Dalvíkurbyggð skólaþjónustu á grundvelli 21.?23. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008, 40. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og reglugerðar um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 444/2019. Starf þjónustunnar skal beinast að því að efla leik- og grunnskóla í
Dalvíkurbyggð sem faglegar stofnanir sem geti leyst flest þau viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi og nýtt eigin bjargir. Þjónustan við skólana skal taka til stjórnunar, kennsluráðgjafar og starfsþróunar.Samningur er gerður til þriggja ára og gildir frá og með 1. júní 2026. Samningurinn er
uppsegjanlegur með 3 mánaða fyrirvara af beggja hálfu. Uppsögn skal þá taka gildi miðað við 1. júní.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda og meðfylgjandi samning eins og hann liggur fyrir.

11.3
Pólskukennsla í Dalvíkurskóla
Tekið fyrir bréf frá Önnnu Mariu Rudnicka-Ostrowska dags. 06.06. 2026. Þar sem að hún er að hrósa sveitarfélaginu fyrir frábært samstarf um pólskukennslu í grunnskólanum.
Fjölskylduráð fagnar því að þetta gangi vel og telur mikilvægt að halda þessu áfram.
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
11.4
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla
Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna - og framkvæmdadeildar, kemur inn á fund upplýsir um stöðuna á verkefninu.
Lagt fram til kynningar. Fjölskylduráð þakkar Helgu Írisi fyrir góða kynningu á verkefninu
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að formenn fjölskylduráðs og framkvæmdaráðs taki sæti kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum.
b)Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar haldi utan um vinnuhópinn.
c) Byggðaráð leggur til að deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar sé falið að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.
María Björk Stefánsdóttir, formaður fjölskylduráðs tekur sæti í vinnuhópnun.
Fjölskylduráð óskar eftir að Gitta Unn Ármannsdóttir, verði í hópnum fyrir hönd starfsfólks á leikskóla.
Niðurstaða Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu fjölskylduráðs um að Gitta Unn Ármannsdóttir taki sæti í vinnuhópnum um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla.

11.5
Innra mat skóla
Tekin fyrir innra mats skýrsla fyrir Dalvíkurskóla. Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla fer yfir helstu niðurstöður.
Lagt fram til kynningar
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
11.6
Öryggi barna í skólaakstri
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir málið.
Fjölskylduráð leggur til að sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs,
kanni þörf hjá foreldrum barna sem eru háð skólaakstri. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
kanni þörf hjá foreldrum barna sem eru háð skólaakstri. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
11.8
Framlenging á samningi um skólaakstur 2026 - 2027
Bókun Byggðaráðs 12. mars 2026.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs um að nýta seinni heimild til framlengingu á samningi við Ævar og Bóas ehf. um eitt ár vegna skólaaksturs nemenda í Dalvíkurskóla og Árskógarskóla.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. Málefni frestað Niðurstaða Lagt fram til kynningar.

11.9
Fjárframlag til rekstrar Bjarmahlíðar fyrir árið 2027
Tekið fyrir erindi dags. 12.05.2026 frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra. Undanfarin ár hafa sveitarfélög á Norðurlandi eystra komið að kostnaði við rekstur Bjarmahíðar. Í dag eru tvö stöðugildi starfsmann í Bjarmahlíð en þar er boðið upp á þjónustu fyrir þolendur ofbelis. Markmið Bjarmahlíðar eru að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis. Bjarmahlíð er gjaldfrjáls, lágþröskulda þjónusta og ekki þarf tilvísun til að fá þjónustu. Unnið er út frá áfallamiðaðri nálgun þar sem einstaklingum er boðin ráðgjöf, stuðningur og upplýsingar. Einstaklingum er mætt á þeirra forsendum, í hlýlegu og öruggu umhverfi. Einnig er boðið upp á fjarþjónustu ef þörf er á. Venjan er að viðtölin séu 1-3 talsins. Í Bjarmahlíð er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu stofnana og samtaka með það að leiðarljósi að kortleggja stöðu einstaklins í viðtölum og greiða leið hans í kerfinu þar sem hann fær áframhaldandi stuðning og ráðgjöf hjá viðeigandi aðilum. Bjarmahlíð sinni einnig fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis ásamt því að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi verði ekki liðið.
Tillögur af kostnaðarskiptingu eru meðfylgjandi í meðfylgjandi rafbréfi. Lagt er til að framlag Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 verði kr. 782.358 kr. Fjölskylduráð smþykkir með fimm atkvæðum Niðurstaða Lagt fram til kynningar.

11.10
Samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 23.06.2026
Forsaga málsins er sú að 2025 barst sveitarfélögum landsins erindi þar sem kynnt var samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis.
Á grundvelli samkomulagsins mun ríkið eigi síðar en 1. janúar 2026 taka ábyrgð á þriðja stigs þjónustu við börn með flóknar og fjölþættar þjónustuþarfir sem búsett eru utan heimilis. Á móti skuldbinda sveitarfélögin sig til að tryggja að viðunandi úrræði séu í boði fyrir þennan hóp barna á fyrsta og öðru stigi þjónustunnar. Eingöngu verður veitt framlag vegna barna sem sérfræðingateymi hefur staðfest að þurfi vegna fötlunar sinnar annars konar og meiri þjónustu en unnt er að veita á heimilum fjölskyldna þeirra.
Þann 23. 06.2026 berst erindi frá Samband íslenskra sveitarfélaga þar athygli er vakin á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt reglugerð sem að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda. Með nýrri reglugerð hefur ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og sent reikninginn á sveitarfélög landsins. Samkomulagið fól í sér að ríkið tæki að sér framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis. Nú hefur mennta- og barnamálaráðuneytið hins vegar einhliða ákveðið að endurskilgreina þann hóp sem um ræðir og þrengja hann verulega þrátt fyrir að umrædd skilgreining hafi verið lögð til grundvallar í öllum þeim skýrslum sem unnar hafa verið undanfarin ár og þessir hópar aldrei fyrr verið aðgreindir. Ríkið er því að skilgreina sig frá ábyrgð á tilteknum hóp barna með tilheyrandi óvissu og auknum kostnaði sveitarfélaga.
Þýðing þessarar breyttu skilgreiningar er veruleg. Samkvæmt þeirri skýrslu sem lá til grundvallar samkomulaginu voru 34 börn og ungmenni í skilgreindum hópi barna með fjölþættan vanda árið 2024. Samkvæmt útreikningum Sambandsins í aðdraganda samkomulagsins var gert ráð fyrir sambærilegum fjölda barna á þessu ári. Á þessu ári hefur hins vegar eingöngu verið samþykkt greiðsla fyrir 17 börn og því ljóst að fyrirhugað er að hópurinn sem um ræðir mun minnka verulega.
Af þessu tilefni ítrekar Sambandið að samkomulagið snérist um skýra ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga til framtíðar en ekki um það að ríkið myndi leggja málaflokknum til ákveðið fjármagn. Með samkomulaginu tók ríkið að sér ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustu við þennan hóp. Það er óásættanlegt að ríkið ætli nú að skilgreina hópinn með öðrum hætti en samið var um þar sem það fjármagn sem ríkið ætlaði til málaflokksins er ekki fullnægjandi.
Sambandið telur að engin fagleg rök liggi að baki þessari breytingu heldur fyrst og fremst fjárhagsleg sjónarmið. Jafnframt er um að ræða alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögunum sem treystu á að ríkið myndi standa við samkomulagið.
Það er ljóst að þessi niðurstaða er mikil vonbrigði. Sambandið mun áfram berjast fyrir hagsmunum sveitarfélaga í þessu máli.
Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.

11.11
Hvetjum til samveru í sumar
Tekið fyrir erindi frá SAMAN-hópnum dags. 10.05.2026 þar sem SAMAN hópurinn er að hvetja til samveru fjölskyldunnar í sumar.
Þeir sem vinna fyrir SAMAN-hópinn eiga það sammerkt að vinna á einhver hátt með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun, meðferð og ráðgjöf.
SAMAN-hópurinn minnir á mikilvægi samveru foreldra/forsjáraðila og unglinga sem lykilþátt í forvörnum. Rannsóknir hafa sýnt að samvera fjölskyldunnar er einn helsti skýringarþátturinn fyrir góðu gengi í forvörnum á undanförnum árum. Bent er á efni á miðlum SAMAN-hópsins, samanhopurinn.is Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.

11.12
Stafrænt samstarf í velferðarþjónustu
Lagt fram til kynningar rafpóstur frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 12.06.2026. Fram kemur í erindinu að Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband Íslenskra sveitarfélaga muni fara í samstarf um öflun og nýtingu gagna í velferðarþjónustu og stofnunum þannig að yfirsýn fáist yfir aðstæður þeirra sem þurfa á þjónustu að halda og stuðlað sé að samfellu í þjónustunni. Meðal annars á að koma á sameiginlegu skipulagi gagnamála, hægt verði að nýta miðlæg lykilgögn sem gefa heildarsýn yfir velferðarþjónustuna á Íslandi. Markmið með þessari samvinnu er að tryggja samfellda þjónustu þvert á stjórnsýslustig og tengingu stefnu og fjárfestinga í þágu notenda þjónustu.
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
11.13
Íþróttavika Evrópu - Sveitarfélög
Tekið fyrir bréf frá Ólympíusambandi Íslands dag. 05. júní 2026
Fjölskylduráð óskar eftir að íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar sæki um styrk í sjóðinn.
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
11.14
Starfsáætlun Fjölskylduráðs
Farið yfir starfs - og fundaskipulag fjölskylduráðs.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að fundir verði annan og fjórða þriðjudag í mánuði.
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
12.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 50
Fundargerðin er í 7 liðum.
Liður 12.1, mál 202208122, er sér mál á dagskrá.
Liður 12.2, mál 202503112, er sér mál á dagskrá.
Liður 12.1, mál 202208122, er sér mál á dagskrá.
Liður 12.2, mál 202503112, er sér mál á dagskrá.
12.1
Erindisbréf skólanefndar TÁT og fundaskipulag
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir erindisbréf skólanefndar TÁT.
Lagt fram til kynningar, Skólanefnd TÁT gerir ekki athugasemdir við erindisbréf Skólanefndar TÁT.
Óskað er eftir að sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs komi með fundaskipulag á næsta fund hjá ráðinu. Niðurstaða Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreint og gildandi erindisbréf skólanefndar TÁT.

12.2
Starfsmannamál hjá TÁT
Tekið fyrir minnisblað frá Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, sviðsstjóra velferðasviðs Fjallabyggðar um fyrirkomulag stjórnunar TÁT næsta skólaár.
Skólanefnd samþykkir með þremur atkvæðum að ráða Þorvald Eyfjörð Kristjánsson núverandi aðstoðarskólastjóri TÁT tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi skólastjóra og 50% kennslu og Hauk Orra Kristjánsson, núverandi kennara við TÁT tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi aðstoðarskólastjóra.
Niðurstaða
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu skólanefndar TÁT um að ráða Þorvald Eyfjörð Kristjánsson núverandi aðstoðarskólastjóri TÁT tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi skólastjóra og 50% kennslu og Hauk Orra Kristjánsson, núverandi kennara við TÁT tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi aðstoðarskólastjóra.
12.3
Samstarfssamnigur Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar um tónlistarskóla TÁT
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir samstarfssamning milli Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar um samrekstur á Tónlistarskóla.
Lagt fram til kynningar
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
12.4
Ritun fundargerða - leiðbeiningar skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Tekin fyrir auglýsing um leiðbeiningar um ritun fundagerða sveitarstjórna dags. 04. okt. 2021.
Lagt fram til kynningar.
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
12.5
Birting gagna á heimasíðu undir fundargerðum
Tekið til umræðu.
Lagt fram til kynningar
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
12.6
Endurskoðun á Reglur Dalvíkurbyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri TÁT, fór yfir endurskoðaaðar reglur er varða nemendur sem óska eftir að stunda nám fyrir utan lögheimili sveitarfélags.
Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar og sviðsstjóra velferðasviðs Fjallabyggðar er falið að koma með fullbúnar reglur inn á fund hjá nefndinni í ágúst og samræma reglur milli sveitarfélaga.
Niðurstaða
Lagt fram til kynningar.
12.7
Trúnaðarmál
202606067 - Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
Niðurstaða
Frestað.