Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1184. fundur
18. júní 2026 kl. 13:15 - 16:24
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Börkur Þór Ottósson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá Innviðaráðuneytinu og SSNE; Endurskoðun á byggðakvótakerfinu; drög að umsögn
Málsnúmer 202605068
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 13. mái sl, þar sem upplýst er að möguleiki er að sækja um frest til að veita umsögn um endurskoðun á byggðakvótakerfinu fram í miðjan júní. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn eigi síðar en 26. maí sl.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig erindi frá Innviðaráðuneytinu dagsett þann 8. maí sl., þar sem fram kemur að Innviðaráðuneytið hefur hafið heildarendurskoðun á byggðakvótakerfinu þ.m.t. með það að markmiði að móta skýrari, markvissari og skilvirkari umgjörð um ráðstöfun þeirra aflaheimilda sem ætlaðar eru til stuðningssjávarbyggðum. í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga sem hafa notið almenns og/eða sértæks byggðakvóta (Aflamarks Byggðastofnunar) um áhrif þessara veiðiheimilda á sveitarfélagið og einstök byggðarlög innan þess, ef við á. Sérstök áhersla er lögð á að umsagnir endurspegli bæði reynslu af núverandi fyrirkomulagi og afstöðu til framtíðarskipanarkerfisins. Óskað er eftir að umsagnir berist með því að svara meðfylgjandi atriðum til umsagnar. Heimilt er að skila frekari athugasemdum eða greinargerð samhliða, en svör við atriðunum teljast meginhluti umsagnar.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna drög að umsögn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og leggja fram á næsta fundi byggðaráðs."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög sveitarstjóra að umsögn sem var farið yfir á fundinum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri umsögn til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
2.
Siðareglur kjörinna fulltrúa.Endurskoðun í upphafi kjörtímabilsins 2026-2030
Málsnúmer 202605181
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Í upphafi kjörtímabils skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða siðareglur sveitarstjórnar. Ef niðurstaðan er að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Sjá nánar 29. gr. sveitarstjórnarlaga.Til máls tók:Helgi Einarsson, sem leggur til að siðareglum kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð verði vísað til byggðaráðs til endurskoðunar.Fleiri tóku ekki til máls.Niðurstaða : Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu gildandi siðareglur kjörinna fulltrúa með hugmyndum að breytingum til umræðu.Til umræðu.Niðurstaða : Afgreiðslu frestað."Á fundinum var farið yfir ofangreindar hugmyndir að breytingum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum siðareglur kjörinna fulltrúa eins og þær liggja fyrir með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
3.
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla; endurskipun
Málsnúmer 202502144
Á 379. fundi sveitarstjórnar þann 15. apríl 2025 var eftirfarandi bókað:"Á 304.fundi fræðsluráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:Farið yfir stöðuna á verkefninu.Fræðsluráð leggur til með fjórum atkvæðum að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og vinnuhópurinn taki líka til skólalóðar Árskógarskóla.Niðurstaða : Enginn tók til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðusluráðs að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og taki einnig til skólalóðar við Árskógarskóla.Eftirtaldir starfsmenn skipa vinnuhópinn: Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og skólastjóri grunnskóla. Endurskipa þarf kjörna fulltrúa frá fjölskylduráði og framkvæmdaráði.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að formenn fjölskylduráðs og framkvæmdaráðs taki sæti kjörinna fulltrúa í vinnuhópnum.
b)Byggðaráð leggur til við sveitarstjórn að deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar haldi utan um vinnuhópinn.
c) Byggðaráð leggur til að deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar sé falið að gera drög að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
a) Tímarammi - verkefni byggðaráðs skv. tímaramma.Með fundarboði fylgdi samþykktur tímarammi vegna vinnu við fjárhagsáætlun. Farið yfir stöðuna og verkefni byggðaráðs:a.1. Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslur, forgangsröðun og stefnu a.2. Umræður um tillögur að verklagi, fjárhagsleg markmið, áhættumat.a.3. Sameiginlegur fundur kjörinna fulltrúa, með sveitartjóra og sviðsstjórum og stjórnendum framkvæmdasviðs þann 24.6.2026b) Forsendur með fjárhagsáætlun 2027Með fundarboði byggðaráðs fylgdi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031 frá Sambandi íslenskra sveitarfélag og drög að forsendur Dalvíkurbyggðar með fjárhagsáætlun 2027.c) Fleira ?
Lagt fram til kynningar.
5.
Málefni Krílakots
Málsnúmer 202606066
Undir þessum lið komu á fundi byggðaráðs Elvý Guðríður Hreinsdóttir, leikskólastjóri, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:04.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað leikskólastjóra með upplýsingum um a) fjölda nemenda eftir árgöngum, b) fjöldi á biðlista, boð um leikskóla í haust og aldur þeirra sem verða áfram á biðlista, c) fjöldi barna sem var boðið vistun á Kötlukoti í stað Krílakots, d) er hægt að bregðast við öllum umsóknum um vistun á Krílakoti í haust.Til umræðu ofangreint.Elvý vék af fundi kl. 14:44.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Öryggi barna í skólaakstri
Málsnúmer 202605143
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 11.06.2026 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 3. júní sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til kaupa á 17 barnabílstólum til afnota við skólaakstur fyrir yngstu börnin í grunnskóla að upphæð kr. 510.000.Reglur um skólaakstur í grunnskóla:https://island.is/stjornartidindi/nr/3ea87645-dc2a-40f3-aceb-fbacb4e6042fTil umræðu ofangreint.Gísli vék af fundi kl. 13:57.Afgreiðslu frestað."Gísli vék af fundi kl. 15:03.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umsagnar og afgreiðslu fjölskylduráðs hvað varðar stefnubreytingu í skólaakstri.
7.
Mánaðarlegar skýrslur 2026; jan- maí 2026
Málsnúmer 202602002
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirfarandi skýrslur sem sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir:Samanburður bókhalds janúar - maí 2026 við heimildir í fjárhagsáætlun.Yfirlit yfir viðauka sem samþykktir hafa verið á árinu 2026.Samanburður launakostnaðar janúar - maí 2026 við heimildir í fjárhagsáætlun.Yfirlit yfir áætluð framlög Jöfnunarsjóðs 2026 í samanburði við áætlun Dalvíkurbyggðar.Yfirlit yfir staðgreiðslu Dalvíkurbyggðar janúar - maí í samanburði við fyrra ár og önnur sveitarfélög.Yfirlit yfir fjárfestingar og framkvæmdir samkvæmt fjárhagsáætlun 2026 með viðaukum ársins og þriggja ára áætun.
Lagt fram til kynningar.
8.
Frá Miðstöð héraðsskjalasafna; Aðalfundur MHR 2026
Málsnúmer 202606100
Tekið fyrir erindi frá Miðstöð héraðsskjalasafna, dagsett þann 11. júní sl., þar sem boðað er til aðalfundar MHR í gegnum TEAMS fimmudaginn 25. júní nk. kl. 10:30.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela starfandi forstöðumanni safna og menningarhúss að sitja fundinn ef hún hefur tök á og til vara sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs.
9.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; umsögn
Málsnúmer 202603123
Á 1178. fundi byggðaráðs þann 24. mars sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 19. mars sl., þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um rekstrarleyfi veitinga í flokki II frá Fjöruböðunum ehf, vegna Fjörukaffis. Yfirlitsmynd fylgir með, útisvæðið er pallar og setusvæði og pottarnir samkvæmt upplýsingum umsækjandaFasteignanúmerið er skráð sem landeignanúmer en framkvæmdir vegna þjónustuhúss eru framundan.Á 44. fundi fundi skiplagsráðs þann 3. mars sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett þann 12. febrúar 2026 þar sem Fjöruböðin ehf. sækja um stöðuleyfi til eins árs fyrir kaffihús við Fjöruböðin á Hauganesi.Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við erindið og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Samkvæmt upplýsingum inn á fundinn þá hefur byggingarfulltrúi ekki afgreitt stöðuleyfi og slökkviliðsstjóri getur ekki tekið málið til vinnslu fyrr en byggingin er risin.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta umfjöllun og afgreiðslu."Með fundarboði byggðaráðs fylgdi jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við að ofangreint leyfi sé veitt með fyrirvara um umsagnir byggingafulltrúa og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
10.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202602001
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambandsins nr. 1000, frá 9. júní sl.
Lagt fram til kynningar.