Fara í efni

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar

1183. fundur
11. júní 2026 kl. 13:15 - 15:31
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Börkur Þór Ottósson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Frá fræðslu- og menningarsviði; Málefni Safna og Menningarhúss.
Málsnúmer 202605077
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Dominique Gyða Sigrúnardóttir, starfandi forstöðumaður safna og menningarhúss, kl. 13:15.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi starfandi forstöðumanns, dagsett þann 9. júní sl., er varðar greiningu á stöðu Menningarhússins Bergs og safna Dalvíkurbyggðar; mannauður, stöðugildi og leiga á sal. Í greinargerðinni er lagt til að fjölga stöðugildum um 2 við söfn og Menningarhús.Einnig þurfi að skýra verkferla og samvinnu innanhúss, umsjón með húsinu, skýra tilgang og stefnu Menningarhússins, þar með talið útleigu. Meðfylgjandi fundarboði er tillaga sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að uppfærðum reglum varðandi útleigu á sal í Menningarhúsinu Bergi sem og greinargerð starfandi verkefnastjóra Menningarhúss.Til umræðu ofangreint.Dominique vék af fundi kl. 13:41.
Unnið verður að málinu áfram og aflað verður frekari gagna á milli funda.
2.
Frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs; Öryggi barna í skólaakstri; beiðni um viðauka.
Málsnúmer 202605143
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 3. júní sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2026 til kaupa á 17 barnabílstólum til afnota við skólaakstur fyrir yngstu börnin í grunnskóla að upphæð kr. 510.000.Reglur um skólaakstur í grunnskóla:https://island.is/stjornartidindi/nr/3ea87645-dc2a-40f3-aceb-fbacb4e6042fTil umræðu ofangreint.Gísli vék af fundi kl. 13:57.
Afgreiðslu frestað.
3.
Frá 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl.; Styrkbeiðni frá Ferðafélagi Svarfdæla
Málsnúmer 202603164
Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl., var eftirfarandi bókað:"Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí sl. var eftirfarandi bókað:Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi svarfdæla.Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir/hafna með fimm atkvæðum að veita 430.000 kr. styrk úr sjóði Heilsueflandi samfélags. Í erindinu, móttekið í mars 2026, kemur fram kynning á þeim verkefnum sem Ferðafélag Svarfdæla er að vinna að á þessu ári; heimasíða, stikur, Belgingur, fjarskipti. Áætlaður kostnaður um kr. 830.000. Fram kemur að kostnaður við að koma þessum verkefnum af stað er ekki mikill, en Ferðafélag Svarfdæla vonast eftir styrk frá Dalvíkurbyggð í þessa vegferð öllum til hagsbóta. Ferðafélagið vinnur alla vinnu í sjálfboðavinnu eins og endranær, svo sem að viðhalda stikuðum gönguleiðum, brúm, skálum auk metnaðarfullrar dagskrár yfir árið.Niðurstaða : Til máls tóku:Forseti sveitarstjórnar sem leggur til að þessum lið verði vísað til byggðaráðs til umfjöllunar.Fleiri tóku ekki til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar að Ferðafélag Svarfdæla hefur verið að fá greitt á undanförnum árum kr. 500.000 í framlag af málaflokki umhverfismála og kr. 200.000 á undanförnum árum frá málaflokki íþrótta- og æskulýðsmála vegna gönguferða félagsins á miðvikudögum. Greiðslur til félagsins frá 2012 er um 8,2 m.kr.Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir að fá forsvarsmenn Ferðafélags Svarfdæla á fund byggðaráðs þar sem til umræðu yrði að setja framlög sveitarfélagsins í formlegan samning við félagið.
4.
Frá 391. fundi sveitarstjórnar frá 5. júní sl.; Siðareglur kjörinna fulltrúa.Endurskoðun í upphafi kjörtímabilsins 2026-2030
Málsnúmer 202605181
Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var eftirfarandi bókað:"Í upphafi kjörtímabils skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða siðareglur sveitarstjórnar. Ef niðurstaðan er að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Sjá nánar 29. gr. sveitarstjórnarlaga.Til máls tók:Helgi Einarsson, sem leggur til að siðareglum kjörinna fulltrúa í Dalvíkurbyggð verði vísað til byggðaráðs til endurskoðunar.Fleiri tóku ekki til máls.Niðurstaða : Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Helga Einarssonar."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu gildandi siðareglur kjörinna fulltrúa með hugmyndum að breytingum til umræðu.Til umræðu.
Afgreiðslu frestað.
5.
Frá 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl.; Fundaþóknun áheyrnafulltrúa í byggðaráði
Málsnúmer 202605179
Á 391. fundi sveitarstjórnar þann 5. júní sl. var samþykkt samhljóða sú tillaga að vísa til byggðaráðs að koma með tillögu til sveitarstjórnar um fundaþóknun áheyrnarfulltrúa í byggðaráði.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga þar sem lagt er til að áheyrnarfulltrúi fá greitt 3% af þingfararkaupi eða kr. 48.339 fyrir hvern fund, sbr. gildandi Samþykkt um starfskjör, laun og þóknanir kjörinna fulltrúa Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2026.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
6.
Frá Eignahaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Kosning í fulltrúaráð EBÍ
Málsnúmer 202605163
Tekið fyrir erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 26. mái sl., þar sem minnt er á breytingar á samþykktum EBÍ er varðar kjör sveitarstjórnar í fulltrúarráð félagsins.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kaus Valdimar Bragason sem aðalfulltrúa í fulltrúaráð EBÍ á fundi sínum þann 5. júní sl. og Þorstein Kristinn Björnsson til vara.
7.
Starfs- og kjaranefnd 2026 - fundargerðir, erindi og samskipti
Málsnúmer 202601115
Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynntu fundargerðir starfs- og kjaranefndar frá 26.mars, 13. apríl, 5. maí, 19. maí, 4. júní, 6. júní.
Lagt fram til kynningar.
8.
Frá Brák íbúðafélagi hses; Umsókn um samstarf og stofnframlag vegna byggingu fjölbýlishúss á Dalvík.
Málsnúmer 202606025
Tekið fyrir erindi frá Brák íbúðafélagi, dagsett þann 3. júní sl., þar sem fram kemur að félagið hefur áhuga á að byggja allt að 8 íbúða fjölbýlishús á Dalvík og stefnir á að leggja fram umsókn um stofnframlag hjá HMS í næstu úthlutun en umsóknarfrestur er til 26. júní nk. Fram kmeur að staðsetning og framkvæmdartími verður unninn í nánaara samstarfi með sveitarfélaginu, eins og reglur Dalvíkurbyggðar um stofnframlög kveða á um, en miðað er við að hefja framkvæmdir haustið 2026 og ef allt gengur vel að taka í notkun íbúðir fyrir árslok 2027. Óskað er eftir samþykki Dalvíkurbyggðar á stofnframlagi í þessu verkefni að upphæð kr. 46.920.000.Áður samþykkt stofnframlag að hálfu sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar á 381. fundi sínum þann 19. júní 2025, að upphæð kr. 72.478.925, félli þar með úr gildi.https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Reglugerdir/fjarmala/Eldra/180823.reglur-dalvikurbyggdar-um-stofnframlog_.pdf
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi er varðar stofnframlagið og leggur til við sveitarstjórn stofnframlag frá Dalvíkurbyggð allt að kr. 46.920.000 í verkefnið.
9.
Álagning fasteignagjalda 2027; fasteignamat og prufuálagning
Málsnúmer 202606054
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi upplýsingar um fasteignamat 2027 eftir sveitarfélögum skv. upplýsingum af heimasíðu HMS.Fyrir Dalvíkurbyggð er breytingin eftirfarandi á milli áranna 2026 og 2027 eða 4,1% að meðaltali:Íbúðareignir 3,1%Sumarhús 4,1%Atvinnueignir 7,0%Stofnanir og samkomustaðir 7,2%Jarðir 4,5%Óbyggðar lóðir og lönd 6,9%Aðrar eignir 6,5%4,10%Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig prufuálagning 2027 miðað við nýtt fasteignamat 2027 og óbreyttar forsendur.
Lagt fram til kynningar.
10.
Frá Innviðaráðuneytinu og SSNE; Endurskoðun á byggðakvótakerfinu
Málsnúmer 202605068
Tekið fyrir erindi frá SSNE, dagsett þann 13. mái sl, þar sem upplýst er að möguleiki er að sækja um frest til að veita umsögn um endurskoðun á byggðakvótakerfinu fram í miðjan júní. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn eigi síðar en 26. maí sl.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig erindi frá Innviðaráðuneytinu dagsett þann 8. maí sl., þar sem fram kemur að Innviðaráðuneytið hefur hafið heildarendurskoðun á byggðakvótakerfinu þ.m.t. með það að markmiði að móta skýrari, markvissari og skilvirkari umgjörð um ráðstöfun þeirra aflaheimilda sem ætlaðar eru til stuðnings sjávarbyggðum.í því skyni er óskað eftir umsögn sveitarfélaga sem hafa notið almenns og/eða sértæks byggðakvóta (Aflamarks Byggðastofnunar) um áhrif þessara veiðiheimilda á sveitarfélagiðog einstök byggðarlög innan þess, ef við á. Sérstök áhersla er lögð á að umsagnir endurspegli bæði reynslu af núverandi fyrirkomulagi og afstöðu til framtíðarskipanarkerfisins.Óskað er eftir að umsagnir berist með því að svara meðfylgjandi atriðum til umsagnar. Heimilt er að skila frekari athugasemdum eða greinargerð samhliða, en svör við atriðunumteljast meginhluti umsagnar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna drög að umsögn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og leggja fram á næsta fundi byggðaráðs.
11.
Frá Almannavarnarnefnd Norðurlandseystra; Vorfundur almannavarnanefndar í umdæmi LSNE
Málsnúmer 202605057
Tekið fyrir erindi frá Almmanvarnarnefnd Norðurlands eystra, dagsett þann 6.maí sl., þar sem meðfylgjandi er fundargerð nefndarinnar frá 4. maí sl., ásamt undirrituðum ársreikningi af viðstöddum stjórnarmönnum.
Lagt fram til kynningar.
12.
Ársfundur; Brák íbúðafélag hses. 28.apríl 2026
Málsnúmer 202604223
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags hses vegna ársins 2025 frá 28. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
13.
Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2026
Málsnúmer 202605082
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsett þann 11. maí sl., þar sem boðað er til aðalfundar sem fór fram 26. maí sl.
Lagt fram til kynningar.
14.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri 2026
Málsnúmer 202602009
Á 1174. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar sl. var eftirfarandi bókað:"Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 3. febrúar sl., þar sem fram kemur að dagana 23.-25. september 2026 verður landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga haldið á Akureyri.Landsþingið verður sett seinnipartinn þann 23. september og lýkur á hádegi 25. september.Öll sveitarfélög sem eiga aðild að Sambandinu eiga rétt til að senda fulltrúa á landsþingið í samræmi við íbúafjölda í viðkomandi sveitarfélagi 1. janúar 2026, sbr. ákvæði 5. gr.samþykkta Sambandsins. Þá eiga framkvæmdastjórar sveitarfélaga, þ.e. bæjar- ogsveitarstjórar, auk formanna og framkvæmdastjóra landshlutasamtaka sveitarfélaga, rétt til setu á landsþingi með málfrelsi og tillögurétti.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að taka frá herbergi fyrir landsfulltrúa á vegum Dalvíkurbyggðar, í samræmi við rafpóst Sambandsins."Til umræðu gisting fulltrúa Dalvíkurbyggðar en afbókun þarf að eiga sér stað fyrir lok ágúst mánaðar.
Lagt fram til kynningar.
15.
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsagnarbeiðni tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer 202605140
Með fundarboði fylgdi erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 19. maí sl., þar sem óskað er umsagnar um umsókn um tímabundið áfengisleyfi frá K6 veitingum ehf. vegna Sjómannadagshátíðar á Dalvík.Með fundarboði fylgdi jákvæð umsögn sveitarstjóra fyrir hönd Dalvíkurbyggðar, með fyrirvara um umsögn slökkviliðsstjóra og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra, dagsett þann 29. maí. Fram kemur að þar sem sveitarstjórnarkosningar eru ný afstaðnar og ný sveitarstjórn ásamt nefndum og ráðum hefur ekki tekið til starfa þá afgreiðir sveitarstjóri erindið.Meðfylgjandi er einnig jákvæð umsögn slökkviliðsstjóra, dagsett þann 3. júní sl.
Lagt fram til kynningar.
16.
Haustþing SSNE 9.september 2026 á Dalvík
Málsnúmer 202605166
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar að haustþing SSNE verður haldið á Dalvík, nánar tiltekið í Menningarhúsinu Bergi, 9. september nk. Til stóð að halda ársþing SSNE á Dalvík þann 26. mars sl. en færa þurfti það yfir á TEAMS vegna ófærðar og veðurs. Gert er ráð fyrir að Dalvíkurbyggð bjóði upp á fordrykk.
Lagt fram til kynningar.
17.
Aðalfundur Greiðrar leiðar ehf
Málsnúmer 202605172
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi aðalfundarboð Greiðar leiðar 2026, dagsett þann 27. maí sl., en fundurinn var haldinn þriðjudaginn 9. júní sl. Ársreikningur er meðfylgjandi.Einnig fylgdi með tillaga um hluthafafund sama dag, með fyrirvara um samþykki aðalfundar.Með fundarboði fylgdi einnig fundargerð frá aðalfundinum en Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sat fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar. Á fundinum var samþykkt tillaga um slit á félaginu.
Lagt fram til kynningar.
18.
Ársreikningur Flokkun Eyjafjörður ehf. maí 2026
Málsnúmer 202605152
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi undirritaður ársreikningur 2025 fyrir Flokkun Eyjafjarðar ehf. ásamt fundargerð stjórnar frá 26. maí sl. þar sem ársreikningurinn er samþykktur og honum vísað til aðalfundar. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri, sat fundinn.
Lagt fram til kynningar.
19.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202602001
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 997-999.
Lagt fram til kynningar.
20.
Hluthafafundur í Greiðri leið ehf.
Málsnúmer 202602106
Með fundarboði fylgdi boðun um hlutahafafund í Greiðri leið ehf. sem fór fram 9. júní sl. ásamt fundargerð af fundinum.Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri, sat fundinn.
Lagt fram til kynningar.