Menningarhúsið Berg: verkefnastjórar
Vilt þú taka þátt í að skapa öflugt og lifandi menningarstarf?
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa bæði á Bókasafni Dalvíkurbyggðar og í Menningarhúsinu Berg.
Menningarhúsið Berg er lifandi menningarmiðstöð í hjarta Dalvíkur þar sem eru bókasafn, fjölnota salur og veitingarekstur. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi, meðal annars tónleikar, sýningar, ráðstefnur, fundir, námskeið, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir.

Menningarhúsið Berg: verkefnastjórar
Menningarhúsið Berg auglýsir tvær tímabundnar stöður, önnur með möguleika á áframhaldandi starfi:
- 50% tímabundin staða verkefnastjóra í afleysingu til loka árs 2026.
- 30% staða við undirbúning og umsjón viðburða, mögulegt framtíðarstarf.
Vinnutími 50% stöðuhlutfalls skiptist annars vegar í undirbúningsvinnu á skrifstofutíma og hins vegar í viðveru og umsjón á viðburðum hússins einstaka kvöld. Vinnutími 30% stöðuhlutfalls er að mestu viðvera á viðburðum en unnið í nánu samstarfi við verkefnastjóra og hentar einstaklega vel þeim sem vilja auka vinnu kvöld og helgar eða tengja við starf á bókasafni (sjá auglýsingu um laus störf á bókasafni).
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Safna og Menningarhússins Bergs.
Helstu verkefni:
- Skipulagning dagskrár í Bergi, auk tilfallandi viðburða á bókasafni.
- Umsjón með bókunum vegna viðburða/sýninga og samskipti við listamenn, leigjendur og viðburðahaldara.
- Hugmyndavinna, skipulagning og umsóknargerð þegar þess er þörf.
- Markaðssetning. Auglýsingagerð og samfélagsmiðar.
- Undirbúningur og frágangur fyrir viðburði og útleigu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi eða sambærileg starfsreynsla.
- Góð færni á markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla er mikill kostur
- Sjálfstæði, sveigjanleiki og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð færni í íslensku í máli og riti. Góð færni í ensku í máli og riti er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 24.8.2026
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Sótt er um starfið á umsóknarvef Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs Dominique Sigrúnardóttir dominique@dalvikurbyggd.is
Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar launafulltrui@dalvikurbyggd.is