Þorbjörg bæði skrifar sögurnar og myndskreytir og er þetta önnur bókin um vinkonurnar Sóleyju og Fífu, sem halda áfram að rækta vináttuna og efla hugrekkið í nýju ævintýri. Á leiðinni kynnast þær fleiri fuglum, blómum og öðrum spennandi fyrirbærum í náttúrunni. Jafnvel drekum! 🐉
🌿 Sögurnar eiga sterkar rætur í Svarfaðardal, en Þorbjörg sækir innblástur í æskuminningar sínar úr sveitinni og náttúruna þar í kring. Hún bjó á Dalvík á árunum 1990–1995 og því er sérstaklega ánægjulegt að kynna bókina á þessum kunnuglegu slóðum.
🎶 Í boði verður upplestur, lifandi tónlist og léttar veitingar fyrir börn og fullorðna.
📖 Hægt er að lesa meira um bókina og jafnvel forpanta hana á krota.is.
Hlökkum til að sjá ykkur! 💛
