Fara í efni
08.06.2026

Útskrift Hólakots - 2026

Deildu

Þann 27. maí 2026 var útskrift barna úr 2020 árgangi Krílakots haldin með hátíðlegri athöfn í sal Dalvíkurskóla. Þar komu saman börn, foreldrar, starfsfólk og aðrir gestir til að fagna þessum mikilvæga áfanga í lífi barnanna áður en þau halda áfram á nýjar slóðir í grunnskóla.

Dagskráin var bæði skemmtileg og hátíðleg. Börnin sungu fyrir gesti lög sem þau höfðu undirbúið. Að lokinni dagskrá buðu foreldrar upp á veitingar og var boðið upp á alls kyns góðgæti sem gestir nutu saman í notalegri stemningu.

Við þetta tækifæri kvaddi núverandi skólastjóri Krílakots einnig leikskólann. Hún flutti hlý orð til barnanna, fjölskyldna þeirra og starfsfólks og þakkaði fyrir ánægjuleg ár í starfi. Útskriftin var því ekki aðeins tímamót fyrir börnin heldur einnig sérstök stund þar sem skólastjórinn kvaddi áður en hún heldur til nýrra ævintýra.

Starfsfólk Krílakots óskar útskriftarbörnunum innilega til hamingju með áfangann og þakkar þeim fyrir allar þær góðu stundir sem þau hafa átt saman á leikskólanum. Við óskum þeim velfarnaðar, gleði og góðs gengis í grunnskólanum og hlökkum til að fylgjast með þeim takast á við ný og spennandi verkefni í framtíðinni.